Hræddur einkaritari breytir gangi sögunnar

Allir vita að það hefði getað breytt gangi sög­unnar ef Adolf Hitler hefði kom­ist inn í lista­skól­ann í Vín­ar­borg eða ef Lenín hefði verið hand­tek­inn í Petr­ograd sum­arið 1917 en getur verið að það hefði orðið jafn afdrifa­ríkt ef lít­ils­meg­andi rit­ari við hirð Aur­el­í­anusar Róm­ar­keis­ara hefði til dæmis fót­brotnað sum­arið 275 og því ekki kom­ist með í her­ferð gegn Persum?

Kannski var það einum lífhræddum einkaritara að kenna að sólarguðinn ósigrandi skyldi ekki verða meginguð Evrópu heldur Kristur hálfri öld eftir fall Aurelíanusar.
Kannski var það einum líf­hræddum einka­rit­ara að kenna að sól­ar­guð­inn ósigr­andi skyldi ekki verða meg­in­guð Evrópu heldur Kristur hálfri öld eftir fall Aur­el­í­anusar.

Herinn lagði af stað í morg­unsárið. Hann hafði verið í búðum sínum í bænum Caenophrurium í Þrakíu þá um nótt­ina og birgða­sveit­irnar fóru að taka niður tjöldin þegar síð­ustu dátar her­deild­anna mar­ser­uðu burt í aust­urátt. Það voru enn tvær dag­leiðir til bæj­ar­ins Býsantíum við Marma­hafið þaðan sem her­inn yrði fluttur yfir Bospórus-sund til Asíu. Þaðan yrði svo mar­serað yfir til Sýrlands og fyrr eða síðar stefnt til orr­ustu við Persa í Mesópótamíu.

Fremst í fylk­ingu her­mann­anna var keis­ar­inn sjálfur, Aur­el­í­anus hinn strangi og harð­lyndi, sjálf­skip­aður „meist­ari og guð“ í end­ur­reistu, end­ur­sam­ein­uðu rík­inu. Hann gekk föstum og ákveðnum skrefum eins og ævin­lega – allt sem Aur­el­í­anus gerði var ein­dregið og ákveðið – og kringum hann voru vagnar hirðar keis­ar­ans, emb­ætt­is­menn hans og helstu legátar, skrif­stofuliðið, kokkar og merkja­menn, brynju­verðir og fána­berar.

Kvenna­vagn­arnir legðu svo af stað síðar í dag þar sem kona keis­ar­ans, Ulpia Severina, réði ríkjum með stall­meyjum …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár