Númer eitt, tvö og þrjú að ná tökum á aðstæðum

Hertar sótt­varn­ar­að­gerðir taka gildi á hádegi á morgun og gilda til tveggja vikna. For­sæt­is­ráð­herra segir það gert til að hægt sé að fá yfir­sýn yfir stöðu mála og ná tökum á þeim aðstæðum sem upp eru komnar.

Frá fundi stjórnvalda í Safnahúsinu við Hverfisgötu í apríl.
Frá fundi stjórn­valda í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu í apríl. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir þær aðgerðir sem nú er gripið til ekki koma á óvart. „Þessar til­lögur eru algjör­lega eins og búast má við miðað við þá stöðu sem er uppi. Þar sem við erum að sjá þessa miklu og hröðu fjölgun smita hér inn­an­lands þá hefur það algjör­lega legið ljóst fyrir af okkar hálfu að þá yrði gripið inn í með afger­andi hætti,“ sagði Katrín í við­tali við RÚV eftir að blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu lauk fyrr í dag.

Á blaða­manna­fund­inum voru hertar sótt­varn­ar­ráð­staf­anir kynntar. Frá og með morg­un­deg­inum verður sam­komu­bann miðað við 100 manns. Tveggja metra reglan verður nú skylda þar sem fólk kemur saman. Grím­notkun verður skylda á ákveðnum stöðum þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra regl­una, til dæmis í almenn­ings­sam­göngum, inn­an­lands­flugi og far­þega­ferjum.

[adspot]

Hún sagði að skoða þyrfti hvort að grípa þyrfti til rek­ari aðgerða. „Hér er verið að leggja til aðgerðir í tvær vikur meðan við erum í raun og veru að fá yfir­sýn yfir þessa stöðu og ná tökum á aðstæðum sem ég held að sé númer eitt tvö og þrjú núna,“ sagði Katrín í við­tal­inu.

[links]

Þá sagði hún það ótíma­bært að ræða um frek­ari upp­sagnir í atvinnu­líf­inu. Nú sé ekki verið að ráð­ast í umfangs­miklar lok­anir eins og í fyrri aðstæðum. Heldur sé verið að horfa til þess að lögum okkur að aðstæðum og hugum að sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum.

Spurð að því hvort of hratt hafi verið farið í aflétt­ingar tak­mark­ana og hvar mis­tökin í ferl­inu lægi sagði Katrín við hafa farið var­færn­is­lega í öllum til­slök­unum . „Ég held að hér sé ekki hægt að tala um mis­tök. Heldur erum við stödd í heims­far­aldri sem við vitum ekki hvernig hegðar sér fyrir fram. Það eru allar þjóðir að ganga í gegnum þetta sama lær­dóms­ferli og við sögðum það í upp­hafi þegar við léttum tak­mörk­unum að við værum mjög með­vituð um það að það gæti þurft að grípa inn í með afger­andi hætti ef þetta bloss­aði upp aftur,“ sagði Katrín í við­tal­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár