Ný ríkisstjórn komin til valda í Grikklandi

Róttæki vinstri­flokk­ur­inn Syriza og hægri­flokk­ur­inn Sjálf­stæðir Grikkir hafa ákveðið að hefja meiri­hluta­sam­starf í gríska þing­inu. Alexis Tsipras, leið­togi Syriza, verður for­sæt­is­ráð­herra í nýrri rík­is­stjórn og sór emb­ætt­is­eið strax í gær. Flokk­arnir hafa þegar myndað rík­is­stjórn.

Greint var frá því snemma í dag að Yanis Varoufakis verður fjár­mála­ráð­herra nýrrar rík­is­stjórnar. Hann hefur verið mjög opin­skár í gagn­rýni á aðhalds­að­gerðir og hefur meðal ann­ars líkt þeim við pynt­ingar.Nikos Pappas, nýr utan­rík­is­ráð­herra Grikk­lands, til­kynnti um ráð­herra­skipan rík­is­stjórn­ar­innar í dag, en ráð­herr­arnir sóru emb­ætt­is­eið nú seinni part­inn. 39 ráð­herra­stöður eru í rík­is­stjórn­inni, konur eru í sex þeirra.

Syriza var ótví­ræður sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna, hlaut 36,3 pró­sent atkvæða og vant­aði aðeins tvö þing­sæti upp á að fá hreinan meiri­hluta í þing­inu. Flokk­ur­inn fékk 149 sæti af 300. Þetta ger­ist vegna þess að sam­kvæmt grískum reglum hlýtur sá flokkur sem fær stærstan hlut atkvæða 50 sæti til við­bótar á þing­inu. Samtals eru flokk­arnir tveir með 162 þing­sæti, en Sjálf­stæðir Grikkir fengu 4,7 pró­sent atkvæða og 13 þing­sæti.

Ólíkir flokkar með eitt sameiginlegt mál


Samstarf þess­ara tveggja flokka kom mörgum á óvart, enda flokk­arnir á önd­verðum meiði í mjög mörgum málum. Það sem sam­einar flokk­ana tvo er and­staðan við aðhalds­að­gerðir og efna­hags­stefnu sem Grikk­land hefur þurft að gang­ast undir síð­ast­liðin ár vegna sam­komu­lags við Seðla­banka Evrópu, Evr­ópu­sam­bandið (ESB) og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn (AGS). Þessi þrenn­ing, eða troika eins og yfir­leitt er talað um í Grikk­landi, er ekki bein­línis vin­sæl í Grikk­landi. Flokk­arnir tveir áttu það sam­eig­in­legt í kosn­inga­bar­áttu sinni að stíla inn á reiði almenn­ings í garð þrenn­ing­ar­innar.

Syriza er hins vegar sós­íal­ískur vinstri­flokkur sem hefur gagn­rýnt valda­blokk­irnar í grískum stjórn­málum harð­lega, á meðan Sjálf­stæðir Grikkir er íhalds­samur hægri flokkur sem hefur verið við­rið­inn þessar valda­blokkir. Flokk­ur­inn aðhyllist einnig harða inn­flytj­enda­stefnu, og hefur orðið upp­vís að kyn­þátta­hatri og andúð í garð sam­kyn­hneigðra. Leiðtogi flokks­ins hefur látið hafa eftir sér að Evrópu sé stjórnað af þýskum nýnas­istum, og hefur látið í veðri vaka að það séu gyð­ingar sem ekki borgi skatta, en skatt­skil eru stórt vanda­mál í grísku sam­fé­lagi.

Grátt leikið Grikkland


Grikk­land hefur verið mjög grátt leikið allt frá því að kreppan skall á árið 2008. Verg lands­fram­leiðsla er til að mynda fjórð­ungi lægri nú en hún var árið 2008. Skuldir rík­is­ins nema um 316 millj­örðum evra, eða 176 pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu, en þetta er hæsta skulda­hlut­fallið á evru­svæð­inu. Ítalía er með næst hæsta hlut­fall skulda af vergri lands­fram­leiðslu, eða 132 pró­sent. Um fjórð­ungur Grikkja er án atvinnu og hlut­fallið er yfir 50 pró­sent hjá ungu fólki. Ríkið hefur fengið 240 millj­arða evra að láni frá árinu 2010 í gegnum sam­komu­lagið. Stærstur hluti skuld­anna er við önnur ríki evru­svæð­is­ins, eða 60 pró­sent.

[quote font="0" align="right"]Enginn trúir því að Grikk­land geti staðið undir þessum skuldum.[/quote]

Í stað­inn fyrir þessi risa­vöxnu lán sem Grikkir fengu til að fara ekki á haus­inn þurftu þeir að gang­ast undir mjög strangar aðhalds­að­gerðir. Eft­ir­laun voru fryst, opin­berum starfs­mönnum sagt upp í stórum stíl og skattar hækk­aðir, svo dæmi séu nefnd. Við­snún­ingur virð­ist hafa haf­ist í fyrsta sinn á nýliðnu ári, og á þriðja árs­fjórð­ungi 2014 var vöxt­ur­inn orð­inn 1,9 pró­sent.

Við­ur­kennt hefur verið að þessar umfangs­miklu nið­ur­skurð­ar­að­gerðir sem ráð­ist var í skil­uðu ekki allar til­ætl­uðum árangri, ekki var gert ráð fyrir að kreppan yrði eins djúp og raun bar vitni og ekki heldur að atvinnu­leysi yrði svo mikið. Þrenn­ingin Seðla­banki Evrópu, AGS og ESB hefur verið gagn­rýnd fyrir sam­komu­lagið, sumum þykir hafa verið ljóst frá upp­hafi að Grikk­land gæti aldrei staðið undir því.

Þessu halda for­víg­is­menn Syriza til dæmis fram nú. Euclid Tsaka­lotos, tals­maður flokks­ins í efna­hags­málum, sagði við BBC í morgun að „eng­inn trúir því að Grikk­land geti staðið undir þessum skuldum.“ Hann hefði aldrei hitt hag­fræð­ing sem af ein­lægni héldi því fram að Grikkir muni borga til baka allar skuldir sínar. „Það er ekki hægt.“

„Vonin er á leiðinni“


Við þessar kring­um­stæður allar komst Syriza til valda. Slagorð flokks­ins var „vonin er á leið­inni“ og í sig­ur­ræðu sinni í gær sagði Tsipras að vonin hefði kom­ist í sögu­bæk­urnar. Flokk­ur­inn sagð­ist vilja draga til baka upp­sagnir opin­berra starfs­manna, hætta nið­ur­skurði í opin­berri þjón­ustu og hækka laun og líf­eyri. Stærsta kosn­inga­málið var vit­an­lega and­staðan við aðhalds­að­gerð­irnar, og lof­orð um að losa þjóð­ina undan yfir­ráðum þess­ara alþjóð­legu stofn­ana. Syriza vill að stór hluti 240 millj­arð­anna sem fengnir hafa verið að láni verði afskrif­aðir og samið verði upp á nýtt um afgang­inn.

Tsipras og Tsaka­lotos hafa meðal ann­arra sagt nú eftir kosn­ingar að þeir séu reiðu­búnir til samn­inga og ætli sér alls ekki út úr evru­sam­starf­inu. Nýja rík­is­stjórnin sé til­búin til við­ræðna á jafn­ingja­grund­velli til þess að kom­ast að líf­væn­legri lausn á mál­inu.

„Ef Grikk­land fellur og þarf að ganga úr evru­sam­starf­inu - þá mun evru­sam­starfið falla. Það væri mín versta martröð. Við sögðum frá upp­hafi að evru­sam­starfið væri í hættu, evran er í hættu, en það er ekki Syriza sem er hættan... hættan stafar af aðhalds­stefn­unni,“ sagði Tsaka­lotos einnig í morgun.

Dræm viðbrögð í Evrópu


Kosn­inga­sigri Syriza var tekið mis­jafn­lega í Evrópu, en flestir stigu var­lega til jarðar. Fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna, evru­hóp­ur­inn svo­kall­aði, hefur hingað til úti­lokað allar afskriftir af skuldum Grikkja. „Það er eng­inn stuðn­ingur við afskriftir í Evrópu,“ sagði fjár­mála­ráð­herra Hollands, Jeroen Dijs­sel­bloem, eftir fund þeirra í gær en hann er jafn­framt í for­sæti evru­hóps­ins. Ríkin ættu að fara eftir reglum og skuld­bind­ingum svæð­is­ins. Hann sagði hins vegar að ef það yrði „nauð­syn­legt“ væri hægt að skoða skuld­irnar og end­ur­greiðslur þeirra eftir heild­ar­skoðun á núver­andi efna­hags­á­standi. Dijs­sel­bloem hefur rætt við nýja fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands og seg­ist hafa lýst yfir miklum vilja til sam­starfs.
. @atsipras I look forward to working with you for the benefit of the citizens of Greece and the European Union pic.twitter.com/5XNGl9R3rr

— Jean-Claude Juncker (@JunckerEU) January 26, 2015

Steffan Seibert, tals­maður þýsku rík­is­stjórn­ar­innar sagði einnig í gær að mik­il­vægt sé að Grikk­land tryggi áfram­hald­andi efna­hags­bata. „Hluti af því er að Grikk­land standi við fyrri skuld­bind­ingar sínar.“ Christine Lagarde, fram­kvæmda­stjóri AGS, sagði við franska blaðið Le Monde að Grikkir yrðu að virða reglur evru­svæð­is­ins og gætu ekki kraf­ist sér­með­ferðar vegna skulda sinna. Hún sagði einnig að málið snérist ekki aðeins í aðhalds­að­gerðum heldur ættu Grikkir enn eftir að ráð­ast í umfangs­miklar umbætur á kerf­inu þar, svo sem skatt­heimtu og dóms­kerf­inu. Ráðamenn í Finn­landi og Belgíu hafa gefið í skyn að þeir væru reiðu­búnir til þess að lengja í lánum Grikk­lands og end­ur­skipu­leggja skuld­irnar. The Economist bendir á að það eru ekki upp­hæð­irnar sem Grikk­land skuldar sem eru stóra málið, heldur það hversu nátengd hag­kerfin á evru­svæð­inu eru.

#Dailychart: If Greece lea­ves the euro, it is clear who would be hit by an ensu­ing default http://t.co/X9cIZnWXnV pic.twitter.com/76sWsZkSmB — The Economist (@TheEconomist) January 26, 2015

Markaðir virð­ast hafa trú á því að úr mál­unum leys­ist þar sem sú kata­st­rófa sem búið var að spá ef Syriza sigr­aði í kosn­ing­unum varð ekki. Lækkun hefur helst verið á grísku mörk­uð­unum.

Hvað svo?


Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar og stefnu nýju rík­is­stjórn­ar­innar er enn samn­ingur í gildi við þrenn­ing­una svoköll­uðu, og hann gildir út febr­úar. Grikk­land á enn eftir að fá 7,2 millj­arða evra úr þessu sam­komu­lagi til þess að fjár­magna sig. Þess vegna þarf nýja rík­is­stjórnin að minnsta kosti fyrst um sinn að fylgja skil­yrðum sam­komu­lags­ins.

Enn er það mjög fjar­lægur mögu­leiki að Grikkir gangi úr evru­sam­starf­inu. En nú þegar búið er að skipa rík­is­stjórn reynir fyrst á. Næstu daga og vikur verður vænt­an­lega áhuga­vert að fylgj­ast með þróun mála og hvort og þá hvernig samn­inga­við­ræð­urnar verða. Stærsta spurn­ingin er hversu mikið evru­ríkin eru til­búin að koma til móts við Grikki og öfugt. Ef ekk­ert gengur verður mögu­leik­inn á því að Grikkir gangi úr sam­starf­inu aðeins meiri, og þá er hætta á ferðum. Hingað til hefur verið gert ráð fyrir því að evru­sam­starfið sé á einn veg og ekki sé hægt að segja sig úr því. Hins vegar er ekki lengur talað á sömu nótum og gert var þegar Grikk­landi var bjargað, að evru­sam­starfið sé dauða­dæmt ef eitt ríki fari úr því.

Víst er að fylgst verður náið með fram­vindu mála á næst­unni. Meðal þeirra sem munu fylgj­ast spenntir með eru stjórn­mála­menn í öðrum ríkjum í svip­aðri stöðu, ekki síst á Ítalíu og Spáni, þar sem syst­ur­flokkar Syriza í and­stöð­unni við aðhalds­að­gerðir und­an­far­inna ára hafa aukið við sig fylgi und­an­farið. Nið­ur­staðan í Grikk­landi gæti haft miklar afleið­ingar fyrir Spán­verja, sem kjósa nýtt þing seinna á árinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár