Sköpunarkrafturinn beislaður - #MoMA

Inn á mið­svæði Man­hattan í New York, á 53. stræti, er sköp­un­ar­kraft­ur­inn beisl­aður í einu áhrifa­mesta lista­safni sam­tím­ans, Nýlista­safn­inu í New York, MoMA (Museum of Modern Art). Á und­an­förnum fimm árum hafa orðið miklar breyt­ingar á safn­inu sem hafa skilað sér í því að fjölgun gesta á ári hefur verið mikil. Árið 2009 heim­sóttu rúm­lega tvær millj­ónir manna safnið árlega en nú er fjöld­inn kom­inn upp í 3,1 milljón, og eru með­limir (mem­bers) um 120 þús­und. Til sam­an­burðar heim­sækja Ísland rúm­lega millj­ónir erlendir ferða­menn á hverju ári. Safnið er rekið fyrir aðgangs­eyri, fram­lög úr styrkt­ar­sjóðum og opin­berum sjóðum.

Safnið hefur fest sig enn betur í sessi sem eitt af kenni­leitum borg­ar­innar sem aldrei sefur og er á sama tíma afar mik­il­vægur hlekkur í ferða­þjón­ustu borg­ar­innar. Óhætt er að segja að hún sé stór­iðja á Man­hattan en um 50 millj­ónir ferða­manna heim­sækja svæðið árlega, bæði erlendis frá og einnig frá öðrum stöðum í Banda­ríkj­unum.


Með sköpunina að vopni

Saga safns­ins er stór­merki­leg, en um leið lýsandi fyrir þá þungu menn­ing­ar­strauma sem liggja um New York borg og eru hluti af sjálfs­mynd hennar og krafti. Abby Aldrich Rockerfeller, eig­in­kona John D. Rockerfeller Jr., fékk hug­mynd­ina að safn­inu á því herr­ans ári 1929, þegar Kreppan mikla skall á af miklum þunga yfir íbúa New York borgar. Hún kom safn­inu upp ásamt vinum sínum, Lillie P. Blis og Mary Quinn Sullivan. Það opn­aði 7. nóv­em­ber 1929, í brá­birgða­hús­næði á 57. stræti, níu dögum eftir hrunið á verð­bréfa­mörk­uðum sem var und­an­fari hrika­legrar nið­ur­sveiflu í efna­hags­bú­skap heims­ins. Hinn 29. októ­ber er kall­aður Svarti þriðju­dag­ur­inn en þá hrundi hluta­bréfa­mark­að­ur­inn um 23 pró­sent, eftir mik­inn upp­gangs­tíma. Dagana á eftir fór svo botn­inn næstum alveg úr honum. Við tók tíma­bil atvinnu­leysis og von­leysis og það á versta tíma; þegar vet­ur­inn var að skella á.

Listin blómstraði

Fyrstu árin voru safn­inu svo­lítið erfið. Ekki vegna þess að það kæmu ekki gestir, síður en svo. Það var fullt nær alla daga. En það þótti fram­sækið og sá stóri hópur sem stund­aði lista­söfnin í borg­inni og gall­erýin á götu­horn­unum var ekki fylli­lega sáttur við það sem boðið var upp á. „Taldist þetta allt saman vera list?“ spurðu gestir for­viða. En það voru líka und­an­tekn­ingar og reynd­ust teikn­ingar hol­lenska snill­ings­ins Vincent Van Gogh, sem safnið fékk að láni til sýnis skömmu eftir að það opn­aði, mik­ill happa­fengur fyrir safn í mótun. Van Gogh hafði orð á sér fyrir dulúð, dýpt og frum­leika, eitt­hvað sem Abby hafði lagt upp með að fanga í safn­inu. Þannig varð safnið ekki aðeins vett­vangur heimsklassa lista­manna heldur um leið vett­vangur heim­speki­legra sam­ræðna um list­ina, til­gang hennar og stefnu.

Mótast af kreppunni

Einn fyrsti starfs­maður safns­ins, fyrir utan stofn­endur þess, var Suichi Sunami, jap­ansk ætt­aður ljós­mynd­ari sem

[caption id="attachment_37532" align="align­right" width="234"] Ein af frægum myndum Sunami af dans­ar­anum Mörthu Graham, en þær opn­uðu leið­ina fyrir hann inn á hið nýstofn­aða MoMA safn, árið 1930. Mynd: vefur MoMA.[/caption]

Ein af frægum myndum Sunami af dansaranum Mörthu Graham, en þær opnuðu leiðina fyrir hann inn á hið nýstofnaða MoMA safn, árið 1930. Mynd: vefur MoMA.
Ein af frægum myndum Sunami af dans­ar­anum Mörthu Graham, en þær opn­uðu leið­ina fyrir hann inn á hið nýstofn­aða MoMA safn, árið 1930. Mynd: vefur MoMA.

hafði getið sér gott orð fyrir myndir af dans­ar­anum Mörthu Graham. Þetta átti eftir að reyn­ast afdrifa­rík ráðn­ing því Sunami varð fljótt hluti af safn­inu, ef svo má að orðið kom­ast. Myndir hans þóttu snilld­ar­legar og hann hafði ein­stakt auga fyrir upp­setn­inga sýn­inga. En umfram allt var dugn­aður hans og ástríða fyrir upp­bygg­ingu safns­ins það sem skipti mestu máli. Þó hann hefði ekki starfs­titil sem list­rænn stjórn­andi, þá var hann mik­il­vægur hluti af hinum skap­andi anda. Hann starf­aði sem opin­ber ljós­mynd­ari safns­ins frá árunum 1930 til 1968, í tæp­lega fjöru­tíu ár, og mark­aði djúp spor í sögu þess. MoMA er á vissan hátt afrakstur Krepp­unnar miklu og þeirra ráð­staf­ana sem gripið var til með for­dæma­lausum aðgerðum hins opin­bera, bæði New York borgar og rík­is­sjóðs Banda­ríkj­anna. Vegna bágs efna­hags­á­stands ákváðu borg­ar­yf­ir­völd að fara út í viða­mikil upp­bygg­ing­ar­verk­efni á innviðum og stór­efl­ingu lista­starfs sömu­leiðis. Mark­miðið var ekki aðeins að skapa atvinnu, með bygg­ingu brúa, við­halds­verk­efna og lestar­teina, svo eitt­hvað sé nefnt, heldur ekki síður að efla „and­ann“. Atvinnu­leysi mæld­ist 24,9 pró­sent árið 1932 og staðan var einna alvar­leg­ust í New York þar sem fjöl­margir voru án heim­ilis, atvinnu og vonar.

Kraftar að verki - Listamenn í lykilhlutverki

Í þessum aðstæðum varð til kraftur - sum part alveg óvart - sem MoMA greip á lofti, og raunar allt lista­líf New York borgar sömu­leiðis. Tvær áætl­anir á vegum hins opin­bera voru miklir áhrifa­valdar í því að leysa úr læð­ingi hug­mynda­flug lista­manna og almenn­ings. Hin svo­nefnda CCC-áætlun (Civilian Conservation Corps) og einnig áætl­unin sem var hvað umdeild­ust á hinu póli­tíska sviði; WPA-áætl­unin (Works Progress Administration). Hin síð­ar­nefnda var risa­vaxið fram­lag úr opin­berum sjóðum til upp­bygg­ingar á lands­vísu. Samtals var 8,5 millj­örðum Banda­ríkja­dala eytt í upp­bygg­ingu sam­göngu­mann­virkja, hús­næðis og ann­arra inn­viða­verk­efna á átta ára tíma­bili, frá 1935 til 1943. Í New York borg voru hluti upp­hæð­ar­innar í að búa til föt fyrir almenn­ing, enda fór nístandi kuld­inn yfir vetr­ar­tím­ann illa með heim­il­is­lausar fjöl­skyldur. Og hluti upp­hæð­ar­innar í CCC-áætl­un­inni fór í að fegra opin svæði borg­ar­innar, ekki síst stóra og smáa almenn­ings­garða. Þeir sem list­ræna hæfi­leika höfðu, á sviði hönn­unar meðal ann­ars, gengdu lyk­il­hlut­verki í þess­ari vinnu. Og eins og alltaf þar sem list­rænir kraftar eru að verki, þá gegna sam­ræður og sam­komur lyk­il­hlut­verki í að móta sýn á verk­efnin og svara spurn­ingum sem vakna. Þar voru lista­söfnin eins og suðu­pottur hug­mynda, ekki síst MoMA. Sá fersk­leiki sem safnið hefur ávallt lagt upp með að fanga á sér ekki síst rætur í þessum erf­iðu tímum í sögu New York. Listin var bjarg­vættur borg­ar­innar, hafa sumir sagt, því án hennar hefði von­leysið rist dýpra og við­spyrnan úr hörm­ungum Krepp­unnar miklu orðið kraft­laus.

Fortíð, nútíð og framtíð

MoMA hefur lengi verið vett­vangur umdeildra sýn­inga, og er nær­tækt að nefna sýn­ingu um stór­brot­inn feril Bjarkar Guð­munds­dóttur í vor. Sitt sýn­ist hverjum þegar kemur að list­inni, svo mikið er víst. Metnaður safns­ins, sem hefur verið við 53. stræti frá árinu 1939, stendur til þess að ögra formum og ríkj­andi hefðum, hverjar sem þær eru, og varpa fram spurn­ingum um lífið og til­ver­una. Þar eru for­tíð, nútíð og fram­tíð undir. Safnið hefur ávallt verið „opið í báða enda“; fjallar um það sem telst til hámenn­ingar en á sama tíma hafa tón­list­ar­menn og kvik­mynda­mynd­gerð­ar­menn ekki síður tek­ist á við krafta safns­ins og lagt sitt að mörkum. Eins og alltaf þegar safna­starf er ann­ars vegar þá deilir fólk um hvort það sé á réttri leið og hvort verkin sem til sýnis eru á hverjum tíma eigi heima á safn­inu. Þetta á svo sann­ar­lega við um MoMA.

This week: @Teishi per­forms in #MoMAG­ar­den, @MoMAFilm celebrates #Ingrid­Berg­man, & more. http://t.co/p33HJSpzFg pic.twitter.com/VTSqKUxTo3 — Museum of Modern Art (@MuseumModernArt) August 24, 2015

En dramat­ískur bagrunnur sögu þess - þar sem hörm­ungar mann­lífs­ins hjálp­uðu til við að móta fyrir hvað það stendur - ætti að segja manni það, að það verður seint líf­laust. Það þarf eitt­hvað mikið til að slökkva list­rænan líf­sneista þess, eins og lif­andi umræða á sam­fé­lags­miðlum undir hashtag-inu #MoMA ber með sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár