Þingfararkostnaður nam 168 milljónum í fyrra

Þing­far­ar­kostn­aður, sem bæt­ist ofan á þing­far­ar­kaup alþing­is­manna, nam 4,7 millj­ónum á hvern þing­mann að með­al­tali í fyrra. Búið er að lækka þessar greiðslur til að koma til móts við gagn­rýni á launa­hækkun.

Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis.
Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­seti Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þing­far­ar­kostn­aður alþing­is­manna nam rúm­lega 168 millj­ónum króna í fyrra, sem sam­svarar með­al­kostn­aði upp á rúmar 4,7 millj­ónir króna á hvern þing­mann. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari Unnar Brár Kon­ráðs­dóttur, for­seta Alþingis, við fyr­ir­spurn frá Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata.

Þetta eru greiðslur sem þing­menn fá ofan á þing­far­ar­kaup sitt, sem er nú 1.101.194 krónur á mán­uði. Þingmenn eiga rétt á greiðslum vegna hús­næðis- og dval­ar­kostn­aðar, ferða­kostn­aðar í kjör­dæmi og starfs­kostn­aði. Að með­al­tali er því auka­greiðsla vegna þessa um 396 þús­und krónur á mán­uði, en sú tala gefur ekki rétta mynd vegna þess að þing­menn eiga mis­mun­andi rétt á greiðslum eftir búsetu.

Alþing­is­menn fyrir kjör­dæmi utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins fá til dæmis 134 þús­und krónur í hús­næðis- og dval­ar­kostnað á mán­uði. Hins vegar geta þing­menn í þessum kjör­dæmum fengið borgað fyrir að keyra milli Reykja­víkur og heim­ilis, og þá fá þeir aðeins greiddan þriðj­ung af hús­næðis- og dval­ar­kostn­aði, eða 44.680 krónur. Þeir þing­menn sem eiga aðal­heim­ili utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en halda annað heim­ili í Reykja­vík geta óskað eftir því að fá 40 pró­senta álag á þessar greiðslur, sem eru 53.616 krónur.

Ákveðið var í byrjun þessa árs að lækka greiðslur vegna ferða­kostn­aðar og starfs­kostn­aðar þing­manna, til þess að koma til móts við mikla gagn­rýni á launa­hækk­anir sem kjara­ráð úrskurð­aði um á kjör­dag í fyrra.

[links]„Ferða­kostn­aður lækkar um 54 þús. kr. sem jafna má til um 100 þús. kr. í launa­greiðslu, og starfs­kostn­aður lækkar um 50 þús. kr.; sam­an­lagt má jafna þess­ari lækkun við 150 þús. kr. fyrir skatt. Sam­kvæmt þessum breyt­ingum eiga því greiðslur til þing­mann­na, þ.e. þing­far­ar­kaup og fastar mán­að­ar­legar greiðsl­ur, að vera innan þeirrar launa­þró­un­ar sem orðið hefur frá því að kjara­ráð hóf að úrskurða um þing­far­ar­kaup árið 2006,“ sagði þá í til­kynn­ingu frá for­seta Alþingis.

Ferða­kostn­aður alþing­is­manna inn­an­lands er einnig greiddur af Alþingi, og hann nam ríf­lega 66 millj­ónum króna í fyrra, eða um milljón á hvern þing­mann að með­al­tali. Það skipt­ist niður í far­gjöld, dval­ar­kostnað, leigu­bíla­kostnað, bíla­leigu­bíla­kostnað og greiðslur vegna akst­urs á eigin bílum.

Mestur er kostn­að­ur­inn vegna akst­urs þing­manna á eigin bílum, tæp­lega 37 millj­ónir króna, en skrif­stofa Alþingis hefur mark­visst reynt að ná þessum kostn­aði niður og fá þing­menn til að nota bíla­leigu­bíla í stað eigin bíla. Kjarninn greindi frá þessu árið 2015. Skrif­stofa Alþingis gerði samn­inga við bíla­leigu­fyr­ir­tæki í þessum til­gangi, og kostn­aður við bíla­leigu­bíla var tæp­lega 15 millj­ónir króna í fyrra. Í svörum Unnar Brár sést að þetta virð­ist hafa hjálpað til við að minnka kostnað, frá árinu 2013 hafa greiðslur þings­ins vegna akst­urs þing­manna á eigin bílum farið úr tæpum 59 millj­ónum niður í tæpar 37 millj­ónir, og á sama tíma jókst kostn­aður við bíla­leigu­bíla úr rúmum átta millj­ónum í tæpar 15.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár