Samfylkingin yfir 30 prósentin

Stuðn­ingur við Sam­fylk­ingu mælist nú yfir 30 pró­sent og er flokk­ur­inn sá langstærsti sam­kvæmt nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Vinsæl
Vinsæl Sam­fylk­ingin er vin­sæl­asti flokk­ur­inn á lands­vísu, miðað við nýjar tölur Gallup. Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ingar, leiðir rík­is­stjórn flokka sem hafa sam­an­lagt yfir 52 pró­senta fylgi. Mynd: Golli

Sam­fylk­ingin mælist með yfir 30 pró­senta fylgi í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Flokkur Kristrúnar Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra hefur 9 pró­sentu­stiga fylg­is­for­skot á Sjálf­stæð­is­flokk­inn, sem er næst stærstur með 21,7 pró­senta fylgi. 

RÚV greindi frá nið­ur­stöð­unum síð­degis. 

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna - Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins - mælist 52,6 pró­sent í Þjóð­ar­púls­inum. Viðreisn með 14,4 pró­sent og Flokkur fólks­ins með 7,5 pró­sent.

Fylgi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á þingi - Sjálf­stæð­is­flokks, Mið­flokks og Fram­sókn­ar­flokks - mælist 36,3 pró­sent. Mið­flokk­ur­inn með 9,1 pró­sent fylgi og Fram­sókn­ar­flokkur með 5,5 pró­sent. 

Vinstri græn og Píratar, sem féllu af þingi í síð­ustu kosn­ingum, mæl­ast með 3,6 og 3,3 pró­senta fylgi. Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem aldrei hefur náð á þing en yfir 2,5 pró­senta þrösk­uld­inn til að hljóta rík­is­styrk, mælist með 3,5 pró­sent. 

Könnun Gallup 1. maí–30. júní 2025
Samfylkingin
30,7%
Sjálfstæðisflokkurinn
21,7%
Viðreisn
14,4%
Miðflokkurinn
9,1%
Flokkur fólksins
7,5%
Framsókn
5,5%
Vinstri græn
3,6%
Sósíalistaflokkurinn
3,5%
Píratar
3,3%
Heimild: Gallup. Úrtak 11.521, svarhlutfall 44,9%. Strikalínan er 5% þröskuldurinn fyrir jöfnunarsæti.
Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár