Draumurinn um danska rafbílinn

Borgþór Arn­gríms­son skrifar um Hope Whisper, danska raf­magns­bíl­inn, og draum­inn um hann.

Fyrir skömmu var frum­sýnd ný dönsk kvik­mynd, Dan Dream. Tví­menn­ing­arnir Casper og Frank sem að henni standa eru kannski best þekktir fyrir sjón­varps­þætt­ina Klovn, Trúð. Dan Dream, sem hefur hlotið mis­jafna dóma gagn­rýnenda, er laus­lega byggð á sögu danska raf­bíls­ins Hope Whisper. Sú saga er sér­stök, að ekki sé meira sagt.

Árið 1941 fædd­ist í Kaup­manna­höfn drengur sem skírður var Thure Barsøe-Carnfeldt. Hann átti fremur erf­iða æsku, ólst upp hjá ein­stæðri móður sem flutti oft. Strák­ur­inn var mjög athafna­samur og móð­irin hafði um tíma miklar áhyggjur af honum. Fékk svo að vita að hann væri það sem nú er kallað „ofvirkur“ og hún þyrfti ekki að hafa sér­stakar áhyggjur af því.

„Snemma beyg­ist krók­ur­inn“ segir mál­tækið. Það á sann­ar­lega við Thure Barsøe sem ungur fékk mik­inn áhuga á raf­magni og bílum. Tólf ára gam­all tók hann ásamt félaga sínum þátt í kassa­bíla­keppni á Bellahöj í Kaup­manna­höfn. Kassa­bíll þeirra var öðru­vísi en hinir sem tóku þátt í keppn­inni, hann var raf­knú­inn. Fyrir þá félaga varð keppnin enda­slepp, bíll­inn valt þegar hann rann niður brekk­una frá rásmark­inu og þar með lauk þátt­töku raf­kassa­bíls­ins og jafn­framt síð­ustu ferð hans.

Lærði og vissi allt um rafmagn

Þeim sem þekktu til Thure Barsøe kom ekki á óvart að hann skyldi leggja stund á raf­magns­tækni­fræði. Að loknu námi flutti Thure Barsøe til Hadsund á Austur-Jótlandi og stofn­aði þar nokkur fyr­ir­tæki, þekkt­ast þeirra vafa­lítið Hope Computer sem hann stofn­aði og rak í sam­vinnu við banda­ríska fjöl­skyldu, Hope. Það gustaði um Thure Barsøe og fyr­ir­tækið lenti margoft í deilum vegna kjara­mála.

Bæjarráðsmaður, þingmaður og fangi

Árið 1978 var Thure Barsøe kjör­inn bæj­ar­ráðs­maður í Hadsund. Þremur árum síðar, 1981, var hann kjör­inn á þing, fyrir fram­fara­flokk Mogens Glistrup. Hann stopp­aði stutt við í Fram­fara­flokknum, gekk úr Fram­fara­flokknum 1982, var um tíma utan­flokka en hætti afskiptum af stjórn­málum árið 1984. Síðar átti Thure Barsøe eftir að kom­ast í kast við lögin og árið 1988 var hann dæmdur í þriggja og hálfs árs fang­elsi fyrir fjár­svik. Hann sat inni í tvö ár og sagði síðar að þessi tvö ár hefðu lengt líf sitt um fimm til tíu ár. „Tvö ár án ferða­laga, lúx­us­fæðis, funda og áfengis er bein­línis sum­ar­frí fyrir heils­una“.

Draumurinn um rafbílinn

Þótt Thure Barsøe kæmi víða við og hefði margt í tak­inu gleymdi hann aldrei draumnum um raf­bíl­inn. Eftir að hafa gengið með hug­mynd­ina í mag­anum í nokkur ár á átt­unda ára­tugnum keypti hann lít­inn Fíat, fjar­lægði bens­ín­vél­ina og setti raf­mótor í stað­inn. Þetta fyrsta skref (ef frá er tal­inn kassa­bíll­inn) tókst ekki sér­lega vel og Fíatinn end­aði úti í skurði, ljós­laus í myrkri. Thure Barsøe er ekki maður sem leggur árar í bát og hélt til­raunum sínum áfram og árið 1982 réð hann fjóra menn í vinnu og tók á leigu gam­alt verk­stæð­is­hús skammt frá Hadsund, þar höfðu verið fram­leiddir tommu­stokkar og þvottaklemmur en húsið stóð nú autt.

Í kapphlaupi við tímann

Thure Barsøe vissi að árið 1983 átti að halda stóra bíla­sýn­ingu í Forum í Kaup­manna­höfn, þar vildi hann frum­sýna nýja raf­bíl­inn. Sjálfur var hann búsettur í Kaup­manna­höfn en Henning Bitch, sem var raf­virki að mennt, stjórn­aði verk­stæð­inu. Þar var unnið í kapp við tím­ann, oft 12 til 14 tíma á sól­ar­hring. Danskir fjöl­miðlar fylgd­ust grannt með og köll­uðu Hadsund „Detroit Dan­merkur“. Hvorki Thure Barsøe né þeir sem unnu að smíði bíls­ins þekktu mikið til slíkra hluta og á ýmsu gekk. Fyrst var ætl­unin að bíll­inn yrði ein­ungis með einu aft­ur­hjóli en síðar var ákveðið að hverfa frá því og hafa aft­ur­hjólin tvö, eins og fram­hjólin. „Þetta verður fjög­urra manna, tveggja dyra, fjöl­skyldu­bíll, sann­kall­aður fram­tíð­ar­bíll“. Þótt smíði bíls­ins gengi þokka­lega var eitt vanda­mál óleyst: raf­hlaðan, eða rétt­ara sagt tæknin til að hlaða raf­hlöð­una. En Thure Barsøe hafði ekki þungar áhyggjur af þeim málum, það myndi redd­ast. Bíla­sýn­ingin í Forum átti að hefj­ast 14. októ­ber 1983 og allt mið­að­ist við það.

100 kílómetra á hleðslunni

Kostn­að­ur­inn var nú far­inn að valda Thure Barsøe áhyggjum. Hann lagði því ofurá­herslu á að aug­lýsa þennan „bylt­ing­ar­kennda bíl“ eins og það var orðað. Og þar skorti ekki lof­orðin: það yrði hægt að aka 100 kíló­metra á hleðsl­unni og bíll­inn gæti náð 80 kíló­metra hraða. „Ég svitn­aði þegar ég sá lof­orðin“ sagði verk­stæð­is­for­mað­ur­inn Henning Bitch. Í lit­skrúð­ugum aug­lýs­inga­bæk­lingum var líka til­greint hvað bíll­inn, Hope Whisper, myndi kosta.

Nótt við dag

14. októ­ber nálg­að­ist og ennþá mörg mál óleyst. Thure Barsøe til­kynnti sínum mönnum að hvað sem taut­aði og raulaði yrði bíll­inn að vera til­bú­inn til kynn­ingar þegar bíla­sýn­ingin í Forum hæf­ist. Vinnu­dag­ur­inn á verk­stæð­inu varð sífellt lengri og ekki lengur talað um 12 til 14 tíma á sól­ar­hring. Verk­stæð­is­for­mað­ur­inn Henning Bitch hætti, sagði áætl­anir for­stjór­ans algjör­lega óraun­hæfar. Claus Fjeld­gaard sem tók við verk­stæð­is­for­mennsk­unni svaf ekki dúr þrjá síð­ustu sól­ar­hring­ana áður en sýn­ingin hófst. Afleið­ingar þess komu síðar í ljós. Daginn áður en sýn­ingin átti að hefj­ast varð óhapp á verk­stæð­inu, hluti mótorfest­ingar brotn­aði. Annað boddí var til á verk­stæð­inu og mót­or­inn, hurðir og allt annað var flutt þangað. Aðfara­nótt 14. októ­ber var bíll­inn fluttur á kerru frá Hadsund til Kaup­manna­hafnar. Eig­in­kona Claus Fjeld­gaard ók bílnum sem dró kerruna, treysti ekki bónd­anum, sem ekki hafði sofið sól­ar­hringum saman, fyrir akstr­inum. Þau komu til Kaup­manna­hafnar klukku­stund áður en sýn­ingin skyldi hefj­ast. Tak­mark­inu var náð.

Sýningin sem aldrei gleymist

Nýi raf­bíll­inn, Hope Whisper, var aug­lýstur sem aðal­númer sýn­ing­ar­innar. Fyrsti raf­bíll sem fram­leiddur hafði verið, danskur! Á annað þús­und gesta og rúm­lega eitt hund­rað frétta­menn voru mættir til að fylgj­ast með. Sýningin var opnuð kl. 10.30, Thure Barsøe flutti ávarp og það gerði líka Poul Schluter for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og ýmsir fleiri. Hope Whisper stóð efst í eins­konar renni­braut, hul­inn dökkri ábreiðu, með sér­staka stopp­klossa við fram­hjólin. Undir stýri sat verk­stæð­is­for­mað­ur­inn Claus Fjeld­gaard en þegar bíll­inn hefði runnið niður af pall­inum átti hann að aka nokkra hringi. Loks var ræðu­höld­unum lokið, stopp­kloss­unum kippt burtu og ábreið­unni svipt af.

Áhorf­endur fylgd­ust spenntir með þegar Hope Whisper rann af stað en öku­ferðin var stutt. Þegar bíll­inn var að verða kom­inn niður renn­una skall hann á stólpa og stöðv­að­ist þar. Claus Fjeld­gaard sem, eins og áður sagði, hafði ekki komið dúr á auga sól­ar­hringum saman hafði að lík­indum sofnað undir ræðu­höld­unum og hrökk ekki upp fyrr en um seinan. Sjálfur sagð­ist hann hafa blind­ast af flass­ljósum frétta­manna. Við árekst­ur­inn brotn­aði stuð­ari Hope Whisper og önnur hurðin losn­aði. Starfs­menn verk­stæð­is­ins hlupu til og eftir nokkra töf gat Claus Fjeld­gaard ekið nokkra hringi í sýn­ing­ar­höll­inni. allt í einu fór bíll­inn að hökta og Claus ók rak­leiðis inn i hlið­ar­sal hall­ar­innar. Í ljós kom að hjól í drif­inu hafði brotnað. Myndir af Hope Whisper voru á for­síðum fjöl­miðla og í fréttum víða um heim (var upp­nefndur No Hope Whisper) og þótt bíll­inn vekti vissu­lega athygli var hún ekki með þeim hætti sem vonir stóðu til.

Ekki af baki dottinn

Óhappið í Forum var mikið áfall fyrir Thure Barsøe. Alls voru fram­leiddir 14 Hope Whisper bílar og ein­ungis fjórir þeirra voru nokkru sinni skráðir og fengu núm­era­plötur. Thure Barsøe vildi ekki gef­ast upp og gerði samn­ing um fram­leiðslu raf­bíls við fyr­ir­tæki í Þýska­landi. Sá skyldi heita Whisper II. Ekki tókst hins­vegar að útvega nauð­syn­legt fjár­magn til fram­leiðsl­unnar og Thure Barsøe seldi Whisper fyr­ir­tækið til Sví­þjóðar. Síðar var fyr­ir­tækið selt til Kali­forníu og þar var bíll­inn fram­leiddur, tals­vert breyttur, um ára­bil.

Af Thure Barsøe er það að segja að hann er enn, 76 ára gam­all, með háleitar hug­myndir. Í sam­vinnu við franskan tækni­fræð­ing hefur hann lengi unnið að þróun bíls sem gengur fyrir þrýsti­lofti, sem fram­leitt er með raf­magni. Til­rauna­bíll sem þeir félagar hafa smíðað getur að sögn keyrt 150 kíló­metra á hleðsl­unni og ein­ungis tekur tvær mín­útur að hlaða þrýsti­loft­skút­inn. „Við erum ekki komnir í mark en vel áleiðis“ sagði Thure Barsøe í við­tali fyrir nokkrum dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár