Vestmannaeyjar bjóða út fjarskiptainniviði

Vest­manna­eyjar hafa eytt hátt í millj­arð króna til þess að leggja ljós­leið­ara inn á heim­ili þar í bæ. Nú stefnir bæj­ar­stjórn á að selja inn­við­ina.

Njáll Ragnarsson er formaður bæjarráðs undir merkjum Eyjalistans.
Njáll Ragn­ars­son er for­maður bæj­ar­ráðs undir merkjum Eyja­list­ans.

Vest­manna­eyja­bær hefur óskað eftir til­boðum í fjar­skipta­inn­viði sína eftir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið gerði athuga­semdir við sölu sveit­ar­fé­lags­ins á ljós­leið­ar­a­innviðum til Mílu sem var komin á loka­metra þegar hún var dregin til baka. Njáll Ragn­ars­son, bæj­ar­full­trúi Eyja­list­ans og for­maður bæj­ar­ráðs segir sveit­ar­fé­lagið hafa byggt upp ljós­leið­ara í sveit­ar­fé­lag­inu, en nú sé kom­inn tími til þess að losa sveit­ar­fé­lagið undan þeim bagga sem slíkum innviðum fylgir, enda ekki hluti af lög­bund­inni skyldu sveit­ar­fé­lags­ins auk þess sem upp­bygg­ingin er afar kostn­að­ar­söm.

„Það var ákveðið fyrir um fjórum árum síðan að fara í upp­bygg­inu á ljós­leið­ara í sveit­ar­fé­lag­inu,“ segir Njáll og bætir við að sveit­ar­fé­lagið hafi reynt að fá fjar­skipta­fyr­ir­tæki til upp­bygg­ing­ar­innar, en það hafi gengið erf­ið­lega. Því var ákveðið að stofna einka­hluta­fé­lagið Eygló til verks­ins þar sem Njáll er enn­fremur stjórn­ar­for­maður.

Kostnaður um milljarður

„Það var samið við verk­taka og lagður ljós­leið­ari í um tvo þriðju hluta bæj­ar­ins,“ segir Njáll sem …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Vonandi er ljósleiðarinn ekki bara bóla sem á eftir að springa. Sjálfur nota ég 5G til allra minna netferða og dugar bara ágjætlega.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár