Evruhópurinn hafnar framlengingu á lánum til Grikkja og heldur áfram fundum án þeirra

Fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna, evru­hóp­ur­inn svo­kall­aði, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem fram kemur að Grikkir hafi slitið við­ræðum um áfram­hald­andi neyð­ar­lána­veit­ingu til þeirra seint í gær­kvöldi. Í ljósi þessa hafna þeir fram­leng­ingu á núver­andi fyr­ir­komu­lagi, eins og Grikkir höfðu óskað eftir, sem þýðir að á þriðju­dag mun allt sam­komu­lag um lána­mál Grikkja renna út.

Ráð­herr­arnir hafa fundað í dag í Brussel. Hlé var gert á fund­inum og Jeronen Dijs­sel­bloem, for­seti hóps­ins, hélt blaða­manna­fund þar sem þetta kom fram. Í kjöl­farið var fundi evru­ríkj­anna haldið áfram án Grikkja.

Dijs­sel­bloem sagði að til­lög­urnar sem lán­ar­drottnar Grikkja höfðu lagt á borðið hefðu verið eins sveigj­an­legar og hægt hefði verið. Það væri því afskap­lega slæmt að grísk stjórn­völd hefðu í gær­kvöldi ákveðið að hafna til­lög­unum, jafn­vel þótt þær hafi ekki verið orðnar end­an­legar á þeim tíma­punkti, en eins og greint var frá seint í gær­kvöldi ákváðu stjórn­völd að boða til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um til­lög­urnar.

Sú atkvæða­greiðsla fer ekki fram fyrr en 5. júlí, en núver­andi lána­samn­ingar renna út á þriðju­dag­inn, 30. júní.

Yanis Varoufakis, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, hélt einnig blaða­manna­fund þar sem hann sagði að ef gríska þjóðin kysi með sam­komu­lagi lán­ar­drottna þá yrði því fram­fylgt. Dijs­sel­bloem sagði hins vegar á sínum fundi að þrátt fyrir að stjórn­völd segðu það væri erfitt að taka það trú­an­legt. Yfir­leitt virk­uðu svona umbóta­til­lögur aðeins ef stjórn­völd styddu úrbæt­urnar. Hann sagði ekki ljóst hvernig Grikkir ætl­uðu að lifa af án þess að fá fjár­magn. Þessi skref sem tekin væru í dag væru vegna þess að evru­svæðið þyrfti að vernda sjálft sig.

Varoufakis gagn­rýndi hina fjár­mála­ráð­herrana harð­lega á sínum fundi. Hann sagði þá skemma eigin trú­verð­ug­leika sem lýð­ræð­is­legt sam­band nú þegar þeir hefðu neitað grísku þjóð­inni um að fá að ráða. Það væru miklar líkur á því að gríska þjóðin færi gegn rík­is­stjórn­inni og kysi með sam­komu­lag­inu. Hann sak­aði lán­ar­drottn­ana um að fara aftur í gamla skil­mála fyrir neyð­ar­lánum, sem myndu leiða til frek­ari kreppu, frekar en að leyfa Grikkjum að anda og koma hag­vexti í gang. „Þetta er sorg­legur dagur fyrir Evrópu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár