Áform Kadeco um flugvallarborg standa

Kadeco ætlar að halda sam­keppni um skipu­lag á landi milli Reykja­nes­bæjar og flug­vall­ar­ins á næsta ári. Svæðið er hugsað undir flug­tengda starf­semi og fyr­ir­tæki sem reiða sig á flug­sam­göngur.

Kadeco hafði það hlutverk að selja fasteignir sem Bandaríkjaher skildi eftir á Ásbrú.
Kadeco hafði það hlut­verk að selja fast­eignir sem Banda­ríkja­her skildi eftir á Ásbrú. Mynd: Kadeco

Áætlanir Kadeco um upp­bygg­ingu svo­kall­aðrar flug­vall­ar­borgar í nágrenni Kefla­vík­ur­flug­vallar hafa ekki breyst þrátt fyrir að fjöldi far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl hafi fækkað mikið á síð­asti ári. Þetta segir fram­kvæmda­stjóri Kadeco, Pálmi Freyr Rand­vers­son í sam­tali við Kjarnann. Hann tekur þó fram að umfang verk­efn­is­ins geti tekið mið af far­þega­tölum sem hann er full­viss um að muni ná fyrri styrk.

„Í mínum huga er engin spurn­ing um að vöxt­ur­inn heldur áfram en hversu mik­ill hann verður verður þá að koma í ljós núna eftir það sem hefur dunið á. Við auð­vitað skölum okkar upp­bygg­ing­ar­á­form út frá far­þega­fjölda og umferð um flug­völl­inn,“ segir Pálmi Freyr.

[adspot]

Hjá Kadeco stendur nú yfir und­ir­bún­ings­vinna fyrir sam­keppni sem á að halda á næsta ári um skipu­lag svæð­is­ins. Pálmi segir að flug­vall­ar­borgir og svæði nálægt flug­völlum séu í skoðun, hvernig slík svæði nýti sér flug sér­stak­lega og hvað það sé sem að gerir flug­vall­ar­borg öðru­vísi en aðrar borgir eða önnur svæði. Þegar þeirri grein­ing­ar­vinnu verður lokið er hægt að efna til sam­keppni um fram­tíð­ar­skipu­lag.

Vill að þar skapist fjölbreytt atvinnustarfsemi

Þrátt fyrir að umferð fólks um Kefla­vík­ur­flug­völl hafi minnkað, þá skipta þær tölur ekki öllu máli þegar horft er til fram­tíð­ar­upp­bygg­ingar á svæð­inu að mati Pálma. Ekki megi heldur ein­blína um of á ferða­þjón­ustu þegar kemur að upp­bygg­ingu í kringum flug­völl­inn.

„Það sem við erum að vilja með þessu er að dreifa þessum eggjum í aðeins fleiri körfur. Vera með aðeins fleiri tæki­færi. Auðvitað munu þau tengj­ast mest flugi, þess vegna erum við að gera þetta hérna við flug­völl­inn. Ef að túrism­inn fer eða hann klikkar eitt­hvað aftur þá eru önnur tæki­færi á svæð­inu. Núna eru frakt­flutn­ingar alveg á fullu, verið að nota far­þega­vél­arnar í það, þannig að ef við getum til dæmis boðið upp á ein­hverja frá­bæra fraktað­stöðu með nútíma­tækni þá er það eitt tæki­færi.“

Mikilvægt að horfa langt fram í tímann

Hann segir að það sé mik­il­vægt að horfa langt fram í tím­ann í skipu­lags­málum og það sé akkúrat það sem Kadeco ein­blíni á. Þá telur hann félagið vera góðan sam­ræðu­vett­vang fyrir ríkið og sveit­ar­fé­lög á svæð­inu til að eiga sam­tal um skipu­lagið.

„Þá ertu ekki að skipu­leggja eitt­hvað sér­stak­lega hér því það er innan þessa sveit­ar­fé­lags eða innan marka flug­vall­ar­ins. Heldur á þetta að vera það sem virkar til fram­tíðar. Þá ertu ekki að tíma­setja upp­bygg­ing­una út frá því innan hvaða skipu­lags­marka hún er, þú ert að tíma­setja hana út frá því hvað vantar, hver þörfin er og hvar tæki­færin eru,“ segir Pálmi.

Þá telur hann mikil verð­mæti vera fólgin í land­svæð­inu sem félagið hefur til umráða. „Það gefur okkur ákveðin tæki­færi að vera á þessum stað og að vera með ótrú­lega mikið land­svæði sem við getum þróað, það eru ekki allir flug­vellir sem búa við það. Við getum bætt við flug­brautum og við getum stækkað flug­stöð­ina, við þurfum ekki að rífa niður nein hverfi eða þorp til þess eins og sumir eru að gera. Þannig að það verður ódýr­ara í okkar til­felli að stækka flug­völl­inn, miðað við marga aðra.“

Kadeco er í eigu rík­is­ins og var stofnað í októ­ber 2006 eftir að Banda­ríkja­her yfir­gaf her­stöð­ina á Mið­nes­heiði. Upp­runa­legt hlut­verk félags­ins var að selja fast­eign­irnar sem her­inn skildi eftir sig en nú er helsta hlut­verk félags­ins að hafa umsjón með og ráð­stafa lóðum og landi í eigu rík­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár