Hreiðar Már segir Sérstakan saksóknara hafa leynt mikilvægum sönnunargögnum

Fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings fer fram á lög­reglu­rann­sókn á starfs­mönnum Sérstaks sak­sókn­ara. Hann telur emb­ættið hafa leynt mik­il­vægum sönn­un­ar­gögnum sem hefðu hugs­an­lega geta leitt til sýknu hans í tveimur dóms­málum.

Hreiðar Már Sigurðsson var bankastjóri Kaupþings banka á árunum 2003 til 2008.
Hreiðar Már Sig­urðs­son var banka­stjóri Kaup­þings banka á árunum 2003 til 2008.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, hefur farið fram á að lög­regla rann­saki starfs­hætti starfs­manna emb­ættis Sérstaks sak­sókn­ara. Hann segir starfs­menn­ina hafa leynt mik­il­vægum sönn­un­ar­gögnum í saka­málum gegn sér sem hefðu hugs­an­lega geta leitt til sýknu hans í þeim málum sem hann hefur verið dæmdur í. Frétta­stofa RÚV greindi frá þessu í kvöld.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sýkn­aði Hreiðar Má, Sigurð Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­mann Kaup­þings, og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, í svoköll­uðu CLN-máli í jan­úar þar sem þre­menn­ing­unum var gefið að sök að hafa við­haft flókin við­skipti sem voru til þess fallin að sýna bank­ann sterk­ari en hann raun­veru­lega var. Þá hafði hér­aðs­dómur kveðið upp úrskurð um að sak­born­ing­arnir ættu rétt á aðgengi að öllum þeim gögnum sem emb­ætti Sérstaks sak­sókn­ara hefði aflað úr tölvu­kerfi Kaup­þings. Hreiðar Már telur að aðgengi að öllum gögn­unum hafi ráðið úrslitum um að hann hafi verið sýkn­aður í mál­inu.

Hreiðar Már er, ásamt þeim Magnúsi Guð­munds­syni og Lárusi Welding, sá ein­stak­lingur sem Sér­stakur sak­sókn­ari ákærði oft­ast eða alls fjórum sinnum. Hreiðar Már hefur tvisvar verið sak­felldur í Hér­aðs­dómi í málum sem Sér­stakur sak­sókn­ari hafði til rann­sóknar; fyrst í Al Thani-mál­inu í des­em­ber árið 2013, sem Hæsti­réttur stað­festi svo, og svo í Marple-mál­inu í októ­ber í fyrra.

Í CLN-mál­inu voru Hreiðar Már og Sigurður Ein­ars­son ákærðir fyrir stór­felld umboðs­svik með því að lána fjórum eign­ar­halds­fé­lögum 260 millj­ónir evra. Félögin fjögur laun­uðu féð áfram til tveggja ann­arra félaga sem not­uðu það til að kaupa láns­hæf­istengd skulda­bréf (Credit Linked Notes, eða CLN) sem tengd voru skulda­trygg­ing­ar­á­lagi Kaup­þings.

Þegar þýski bank­inn Deutsche Bank hóf veð­köll vegna máls­ins fengu síð­ari félögin tvö 260 millj­ónir evra til við­bótar lánuð. Samtals nemur láns­upp­hæðin 510 millj­ónum evra eða um 70 millj­örðum króna á gengi dags­ins í dag. Í ákæru sér­staks sak­sókn­ara kemur fram að talið sé að útlánin séu að öllu leyti töpuð. Þar segir einnig að menn­irnir tveir hafa valdið Kaup­þingi „stór­felldu tjóni“ með hátt­semi sinni. Sem fyrr segir voru banka­menn­irnir þrír sýkn­aðir af þessum ákærum.

Hreiðar Már seg­ist hafa ítrekað gagn­rýnt Sér­stakan sak­sókn­ara fyrir að hafa ekki veitt sak­born­ingum fullan aðgang að þeim gögnum sem sak­sókn­ara­emb­ættið hafði undir höndum, eftir bæði hús­leit í Kaup­þingi og leit í tölvu­kerfi hins fallna banka. Gögnin sem sak­born­ingar hefðu fengið að sjá voru aðeins þau gögn sem emb­ættið setti fram til rök­stuðn­ings fyrir dómi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár