Hryðjuverkin í París: Atburðir dagsins

Umsát­urs­á­stand­inu í Frakk­landi er lokið eftir að ráð­ist var til atlögu gegn hryðju­verka­mönnum seinni part­inn í dag. Hryðju­verka­menn­irnir voru drepnir, og minnst fjórir gíslar í verslun í París lét­ust einnig. Kjarninn fer yfir atburð­ina und­an­farið í París.

Cherif og Said Kouachi, sem voru grun­aðir um morðin á tólf manns á mið­viku­dag, þar af tíu á rit­stjórn­ar­skrif­stofum skop­mynda­blaðs­ins Charlie Hebdo. Þeir flúðu frá París og rændu bens­ín­stöð í nágrenni Villers-Cotterets. Vitni sögðu bræð­urna hafa verið þung­vopn­aða.

[caption id="attachment_16287" align="aligncenter" width="300" class=" "] Franska lög­reglan segir að bræð­urnir Said Kouachi og Cherif Kouachi hafi framið ódæð­is­verkin í og við höf­uð­stöðvar skop­mynda­blaðs­ins Charlie Hebdo í gær­morgun.Tólf lét­ust, þar á meðal rit­stjóri blaðs­ins og þekkt­ustu skop­mynda­teikn­arar þess.[/caption]

Í morgun bár­ust fréttir af því að skotum hefði verið hleypt af í Dammartin-en-Goele, sem er norð­austur af París og mjög nálægt alþjóða­flug­vell­inum Charles de Gaulle. Flug­völl­ur­inn er opinn en umferð stýrt þannig að ekki sé flogið yfir umsát­urs­svæðið. Skólar og vinnu­staðir í nágrenn­inu hafa verið rýmdir og öllum ráð­lagt að halda sig inn­an­dyra frá gluggum.

Lögregla hefur rætt við bræð­urna um að leysa gísl­inn úr haldi, en franskir fjöl­miðlar hafa greint frá því að gísl­inn sé 26 ára gam­all karl­maður. Þing­maður á svæð­inu hefur sagt fjöl­miðlum að bræð­urnir hafi sagt við lög­reglu að þeir vildu deyja sem písl­ar­vottar.

Fyrir hádegi var svo greint frá því að náin tengsl væru á milli árás­ar­innar á Charlie Hebdo á mið­viku­dag og ann­arrar skotárásar á fimmtu­dag. Þá var lög­reglu­kona skotin til bana og karl­maður særður alvar­lega í suð­ur­hluta Parísar. Áður hafði verið greint frá því að engin tengsl væru talin á milli.

Rétt eftir hádegi var svo greint frá því að önnur gísla­taka væri í gangi í verslun í aust­ur­hluta Parísar. Versl­unin er rekin af gyð­ingum. Fljótt kom í ljós að gísla­töku­maður þar væri tal­inn sá sami og grun­aður væri um morðið á lög­reglu­kon­unni í gær. Gísl­arnir eru minnst sex tals­ins.

Skömmu síðar voru nöfn hinna grun­uðu í seinni árás­unum tveimur birt. Það eru Amedy Coulibaly og Hayat Boumeddiene.

Fréttir hermdu um tíma að minnst tveir gíslar hefðu verið myrtir af gísla­töku­fólk­inu en þær fréttir voru dregnar til baka.

Lög­reglan segir að Coulibaly hafi hótað því að drepa gísla sína ef reynt yrði að hand­sama Kouachi bræður.

BREAKING: Paris police: Market gun­man threa­tens to kill hosta­ges if police storm ter­r­orist brothers.

— The Associated Press (@AP) January 9, 2015

Ráðist til atlögu á báðum stöðum

Lögregla réðst til atlögu gegn öllum hryðju­verka­mönn­unum seinni part­inn í dag. Þeir voru allir drepnir og margir gíslar frels­aðir. Hins vegar kom í ljós seinni part­inn í dag að minnst fjórir gíslar hafi lát­ist. Aðgerð­irnar gegn þeim voru sam­hæfðar og fregnir herma að tek­ist hafi að ná sam­bandi við gísl í París í gegnum far­síma auk þess sem hægt var að fylgj­ast með gísla­tök­unni þar í gegnum örygg­is­mynda­vélar.

Several hosta­ges freed at Jewish super­mar­ket in Paris. Photo Thomas Samson #AFP pic.twitter.com/C9ltgMT0Wl — AFP Photo Depart­ment (@AFPphoto) January 9, 2015

Ekki er vitað hvar Boumeddiene er, en hún var kærasta Coulibaly.

Voru þekktir hryðjuverkamenn


Að sögn dag­blaðs­ins Le Monde voru Amedy Coulibaly og Cherif Kouachi tveir helstu fylg­is­menn dæmda hryðju­verka­manns­ins Djamel Beghal. Beghal var hand­tek­inn árið 2001 fyrir að leggja á ráðin um að sprengja upp sendi­ráð Banda­ríkj­anna í París. Hann og fimm aðrir voru dæmdir árið 2005. Hann við­ur­kenndi meðal ann­ars að hafa farið til Afganistan að hitta Osama bin Laden og skipu­leggja árásir.

Kouachi bræð­urnir og Coulibaly eru sagðir hafa til­heyrt sömu hryðju­verka­sell­unni. Að sögn dag­blaðs­ins Le Monde voru Amedy Coulibaly og Cherif Kouachi tveir helstu fylg­is­menn dæmda hryðju­verka­manns­ins Djamel Beghal. Beghal var hand­tek­inn árið 2001 fyrir að leggja á ráðin um að sprengja upp sendi­ráð Banda­ríkj­anna í París. Hann og fimm aðrir voru dæmdir árið 2005. Hann við­ur­kenndi meðal ann­ars að hafa farið til Afganistan að hitta Osama bin Laden og skipu­leggja árásir.

Cherif var dæmdur árið 2008 fyrir hlut­deild í hryðju­verka­neti sem sendi bar­daga­menn til Íraks til að berj­ast fyrir Al-Kaída. Þá er Said sagður hafa dvalið í Jemen árið 2011 þar sem hann var í þjálfun hjá Al-Kaída. Bræð­urnir voru báðir í banda­rískum gagn­gr­unni yfir grun­aða hryðju­verka­menn og á flug­bann­lista.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár