Heiða Kristín segist treysta sér til að verða formaður Bjartrar framtíðar

Heiða Kristín Helga­dóttir, vara­þing­maður Bjartrar fram­tíðar og annar stofn­enda flokks­ins, segir að hún treysti sér full­kom­lega til þess að verða for­maður hans. Ef það sé vilji fyrir því innan Bjartrar fram­tíðar þá sé hún til­búin að bjóða sig fram til for­manns. Það getur hún gert í sept­em­ber næst­kom­andi þegar árs­fundur flokks­ins fer fram. Þetta kom fram í þætt­inum Viku­lok­unum á Rás 1 fyrr í dag. Þar gagn­rýndi hún Guðmund Stein­gríms­son, for­mann flokks­ins sem stofn­aði hann með henni á sínum tíma, einnig, sagði hann hafa fengið ágætis tæki­færi til að sanna sig en að for­ysta hans væri aug­ljós­lega ekki að virka.

Í þætt­inum var Heiða Kristín meðal ann­ars spurð út í ummæli sem hún lét falla í við­tali við Kjarnann á þriðju­dag. Þar sagði hún að það þyrfti mikið að ger­ast hjá jartri fram­tíð, flokk­inum sem hún tók þátt í að stofna, til að henni finn­ist ákjós­an­legt að stíga inn á þann vett­vang á ný. „Mér finnst vandi Bjartrar fram­tíðar vera inni í Bjartri fram­tíð, hann er ekki vandi kjós­enda. Vandinn er ekki til­kom­inn vegna þess að kjós­endur skilja ekki flokk­inn heldur er hann vandi for­manns­ins [Guð­mundar Stein­gríms­sonar] og þeirra sem starfa í Bjartri fram­tíð.“

Fylgi Bjartrar fram­tíðar hefur hríð­fallið und­an­farið. Í könnun sem MMR birti í vik­unni sögð­ust ein­ungis 4,4 pró­sent kjós­enda ætla að kjósa flokk­inn, sem er versta útkoma hans í mæl­ingum MMR á þessum kjör­tíma­bili. Miðað við það fylgi myndi Björt fram­tíð ekki ná inn manni í kom­andi kosn­ingum.

[caption id="attachment_30280" align="alignnone" width="800"] Guð­mundur Stein­gríms­son er for­maður Bjartrar fram­tíðar og annar stofn­anda flokks­ins. Hinn stofn­and­inn, Heiða Kristín Helga­dóttir, gagrýndi hann harð­lega í Viku­lok­unum í dag.[/caption]

Segir flokkinn hafa formaliserast og mikið


Í Viku­lok­unum sagði Heiða Kristín að hún hefði verið búin að gera sam­starfs­fólki sínu í Bjartri fram­tíð grein fyrir því í aðdrag­anda þess að hún hætti sem stjórn­ar­for­maður flokks­ins í lok síð­asta árs að hún væri óánægð með ákveðna hluti. Hún seg­ist ekki hafa hætt í ill­deilum eða á vondum nótum en fannst staðan innan flokks­ins vera þannig að hún fann ekki teng­ingu við það sem var að ger­ast og taldi sig ekki vera að koma sínum áherslum á fram­færði. Því velti hún því fyrir sér hvort hún væri vanda­málið frekar en aðrir í for­ystu Bjartrar fram­tíðar og ákvað í kjöl­farið að stíga til hliðar.

Aðspurð hver vandi Bjartar fram­tíðar væri sagði Heiða Kristín: „Mér finnst vand­inn fyrst og fremst vera sá að það er ákveðið teng­ing­ar­leysi. Það er alltaf verið að bera á borð ein­hverjar tækni­legar lausnir við til­finn­inga­legum vanda­málum. [...]Mér finnst flokk­ur­inn hafa formaliser­ast of mikið fyrir mína parta og mér finnst hann vera að elta eitt­hvað form sem er fyr­ir­fram gefið í pólitik. Og mér finnst það ekki vera eitt­hvað sem er mikil eft­ir­spurn eftir.“

Hún sagði einnig að það færi í taug­arnar á sér að Björt fram­tíð væri alltaf að skil­greina sig út frá öðrum. „Mér finnst Björt fram­tíð eiga að tala um sig og hvað það er sem hún er að koma fram með og hvernig hún sér heim­inn. En ekki alltaf ein­hvern veg­inn hvernig Björt fram­tíð er öðru­vísi en Sam­fylk­ingin.“

Myndi mögulega taka þingsæti ef Guðmundur hættir


Helgi Seljan, þátt­ar­stjórn­andi Viku­lokanna, spurði Heiðu Kristínu síðan hvort hún myndi taka þing­sæti Bjartar Ólafs­dóttur, sem er á leið í fæð­ing­ar­or­lof, ef Guð­mundur Stein­gríms­son hætti sem for­maður Bjartrar fram­tíðar. Heiða Krístín er vara­þing­maður Bjartar og sagði við Kjarnann á þriðju­dag að hún myndi ekki taka sæti hennar að óbreyttu vegna óánægju með for­ystu flokks­ins.

Heiða Kristín sagði að hún myndi hug­leiða það að taka sætið á öðrum nótum ef Guð­mundur mundi stíga til hliðar. „Mér finnst hann hafa fengið ágætis tæki­færi til að sanna sig og það er búið að leggja heil­mikið inn í þennan flokk, bæði fylgi frá Besta flokknum og alls­konar hluti[...] Maður verður að horfa í stöð­una. Þrjú til fjögur pró­sent [fylgi] og segja: ok, þetta er kannski ekki að virka og við þurfum að prófa eitt­hvað annað."

Að lokum var hún spurð hvort hún vildi verða for­maður Bjartrar fram­tíðar og svar­aði Heiða Kristín því til að hún treysti sér full­kom­lega til þess ef vilji væri fyrir því að bjóða sig fram til for­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár