Bjarni Bene­dikts­son Slapp vel frá Panama-lek­anum og end­aði sem for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Kristinn Magnússon

Forsætisráðherra af gráu svæði stjórnmála og viðskipta

Bjarni Benediktsson var umsvifa­mikill í viðskiptum samhliða þing­mennsku. Félög sem hann stýrði eða átti aðkomu að stefna í að skilja eftir sig tæplega 130 milljarða króna af afskriftum, sem nemur næstum því tvöfaldri upphæð leið­réttingar verð­tryggðra húsnæðis­lána. Bjarni og faðir hans tóku ákvarðanir um sölu hluta­bréfa þegar hann var í kjör­aðstæðum til að njóta upplýsinga sem almennur aðili á markaði hafði ekki.

Á ferli Bjarna Benedikts­sonar hafa fjölmörg mál komið upp sem hefðu fellt flesta aðra stjórn­málamenn. Honum hefur hins vegar tekist að snúa sig út úr þeim öllum og styrkja stöðu sína innan flokksins. Í dag stendur hann uppi sem forsætis­ráðherra þjóðarinnar. 

„Hann er nátt­úrlega algjört teflon,“ segir einn viðmælandi Stundarinnar um það hvernig Bjarna Benedikts­syni hefur tekist að snúa hverju málinu á fætur öðru sér í hag. 

Í aðdrag­anda hrunsins var hann atkvæða­mikill í íslensku viðskipta­lífi samhliða þing­störfum. Hann og faðir hans seldu hlutabréf sín í Glitni þegar æðstu ráða­mönnum þjóðarinnar var orðið ljóst að bankarnir stæðu höllum fæti en héldu öðru fram opinber­lega.

Í október árið 2008, þegar Bjarni dró sig út úr ábyrgðar­stöðum í viðskiptum, námu skuldir félaga­nets hans og fjöl­skyldu hans á annað hundrað milljarða króna. Flest þeirra áttu eftir að verða gjald­þrota. Alls má ætla að afskriftir vegna félaga sem Bjarni stýrði eða tók þátt í að stýra nemi hátt í 130 milljörðum króna. Bjarni tilkynnti sérstak­lega að hann ætlaði að hætta þátttöku í viðskipta­lífinu þegar hann varð formaður Sjálfstæðis­flokksins en skráning Bjarna á einkamála­síðu sýnir fram á notkun á tölvu­póstfangi hans löngu eftir að hann sagðist hafa látið af afskiptum af félögunum.

Gott aðgengi að upplýsingum

Faðir Bjarna Benedikts­sonar, Benedikt Sveinsson, seldi hluti sína í Glitni að verðmæti um 850 milljónir króna í kringum 18. febrúar 2008, nokkrum mánuðum fyrir efnahags­hrunið. Bjarni seldi einnig fyrir 126 milljónir króna um svipað leyti.

Það sem ekki var á almennu vitorði á hlutabréfa­markaði á þessum tíma var að vikurnar áður höfðu örvæntingar­fullar tilraunir verið gerðar til björgunar á Glitni, sem Bjarni átti sjálfur aðkomu að, auk þess sem hópur stjórn­málamanna hafði verið upplýstur um að Glitnir ætti í verulegum erfið­leikum og væri kominn í fjárhags­lega hættu. 

Bjarni hefur alla tíð neitað því að hafa búið yfir trúnaðar- eða innherja­upplýsingum þegar hann ákvað að selja hluta­bréfin sín. Á þeim tíma sat hann í efnahags- og skatta­nefnd Alþingis, sem fjallar meðal annars um eignir ríkisins og gjaldeyrismál. 

Dagana áður höfðu átt sér stað leynilegar aðgerðir í viðskiptum og fundir í stjórn­mála- og embættis­manna­kerfinu sem sýndu fram á alvarlega stöðu banka­kerfisins. Alvarleiki stöðunnar var ekki á vitorði margra, en Bjarni tók sjálfur þátt í hluta atburða­rásarinnar. Bjarni var lykil­maður í Vafnings­málinu svokallaða, sem snerist um að koma í veg fyrir keðju­verkandi áhrif af veðkalli bandaríska bankans Morgans Stanley á stöðu Glitnis og Milestone. Liður í því var lán sem veitt var Milestone 8. til 12. febrúar, um viku áður en Bjarni og faðir hans seldu bréf sín í Glitni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár