„Stjórnvöld í Bretlandi hafa brugðist almenningi“

Misjöfn við­brögð eru hjá stjórn­völdum ríkja heims­ins við far­aldr­inum sem nú geisar. Í Bret­landi hamstrar fólk nauð­synja­vörur og nokkuð hefur þótt skorta á upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings þar í landi.

Að sjá mun­inn á því hvernig stjórn­völd hafa brugð­ust við far­aldr­inum er ótrú­legt. Mér fannst Ísland að mörgu leyti hafa brugð­ist við á góðan hátt en íslensk stjórn­völd byrj­uðu fyrr með blaða­manna­fundi en hér. Upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings hefur verið mikið betri á Íslandi.“

Þetta segir Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, aðgerðasinni og for­maður Trans Íslands, en hún býr í strand­bænum Brighton í Bret­landi. Hún segir ástandið vera mjög ein­kenni­legt þar í landi. Kjarninn sló á þráð­inn til Uglu til að kanna hvernig hún upp­lifði stöð­una sem upp er komin vegna COVID-19 far­ald­urs­ins sam­an­borið við Ísland.

Ugla segir að þessi skortur á upp­lýs­inga­gjöf hafi valdið mik­illi hræðslu hjá fólki. „Fólk í Bret­landi fékk engar upp­lýs­ingar um hvað nákvæm­lega væri í gangi, hvað það gæti gert og hvað myndi ger­ast. Þannig að það sem gerð­ist var að allir héldu að allt myndi klár­ast í búðum og þá byrj­aði fólk að hamstra og hamstra – enda­laust,“ segir hún.

Mat­vöru­versl­anir víða í Bret­landi eru nán­ast tómar, að hennar sögn – líka þær stærstu. „Fólk er jafn­vel að bíða í marga klukku­tíma fyrir opnun til þess að ná í ákveðnar vörur. Þannig að ástandið hér er rosa­lega skrítið,“ segir hún.

Stjórnvöld hafa ekki staðið sig

Ugla segir að fólk sé almennt mjög ótta­slegið og það skilj­an­lega. „Stjórn­völd hafa ekki staðið sig í því að veita fólki upp­lýs­ingar og róa fólk. Og mynda þessa sam­stöðu og sam­ein­ingu sem er miklu meiri á Íslandi. Eða alla­vega eins og ég hef upp­lifað það.“

Sömu­leiðis bendir hún á að blaða­manna­fund­irnir á Íslandi séu leiddir af sér­fræð­ingum; fólki sem veit um hvað það er að tala. Í Bret­landi sé þetta leitt af for­sæt­is­ráð­herra sem er ekki læknir og hefur ekki þá þekk­ingu sem þarf, þrátt fyrir að fá auð­vitað upp­lýs­ingar frá sér­fræð­ingum. Það sé ekki nóg.

Bor­is John­son, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, greindi sjálfur frá því í síð­ustu viku á Twitter að hann væri með með kór­ónu­veiruna. Hann er nú í sjálf­skip­aðri ein­angrun.

Ugla gagn­rýnir Johnson og vinnu­brögð hans. „For­sæt­is­ráð­herra lands­ins getur ekki einu sinni sett for­dæmi í því að passa sig og sjá til þess að fólk sé að fara eftir reglum og virða ákveðin mörk. Þá er ekki skrítið að almenn­ingur hér viti ekki hvernig eigi að snúa sér í þessu,“ segir hún.

Erfitt ástand fyrir sjálfstætt starfandi

Varðandi áhrif á nán­asta umhverfi Uglu þá segir hún að flestir sem hún þekkir séu sjálf­stætt starf­andi og að í Bret­landi sé ennþá ekki verið að aðstoða fólk nægi­lega mikið í slíkri aðstöðu.

„Mér finnst stjórn­völd hér ekki hafa hugsað til þess hvernig þetta ástand muni hafa áhrif á sjálf­stætt starf­andi fólk sem getur ekki unnið sína vinnu eða fær ekki verk­efni – og nái þar af leið­andi ekki endum saman. Það er að vísu búið að opna fyrir ákveðnar bætur sem allir geta sótt um en þær eru mjög lágar og fólk getur ekki lifað af þeim til lengri tíma litið. Sömu­leiðis er verið að segja að fólk geti ekki fengið bætur fyrr en í júní, þannig að hvernig á fólk að lifa fram að því þegar það er ekki lengur að fá inn­komu eða verk­efni?“ spyr hún.

Þá þurfi fólk að treysta á að fá lán­aða pen­inga og það sé ekki ástand sem er ásætt­an­legt í krísu sem þess­ari.

Heilbrigðiskerfið ekki í stakk búið til að takast á við COVID-19

Þrátt fyrir að margir sem Ugla þekkir taki ástand­inu alvar­lega þá séu þó aðrir sem tak­ist ekki á við það eins og best verður á kosið. „Sumir halda jafn­vel áfram með lífið eins og ekk­ert sé í gangi, sem er auð­vitað ekki í lagi. Svo mér finnst stjórn­völd ekki hafa sinnt sínu hlut­verki í upp­lýs­inga­gjöf eða gripið til aðgerða nægi­lega snemma. Ég tel að Bretland sé að stefna í það að verða eins og Ítalía og Spánn á þessum tíma­punkti miðað við þessar aðstæður,“ segir hún.

Þá telur Ugla að heil­brigð­is­kerfið í Bret­landi sé ekki í stakk búið til að takast á við far­ald­ur­inn. „Heil­brigð­is­kerfið hér hefur verið fjársvelt mjög lengi og það hefur verið við­var­andi fjár­skortur í því. Og þessi krísa sýnir fram á að það er allt of lítið fjár­magn sett í heil­brigð­is­kerfið og það er engan veg­inn að halda utan um allan þennan fjölda fólks sem nú leitar sér þjón­ustu.“

Hún bendir á að heil­birgð­is­yf­ir­völd hafi þurft að leigja aðstöðu hjá einka­sjúkra­húsum og borga sér­stak­lega fyrir það. „Mér finnst það rosa­lega skrítið við svona aðstæður, við ættum öll að vera í þessu saman og ætti þess vegna ekki að þurfa sér­stak­lega að borga fyrir slíka aðstöðu. Þetta ætti að vera sjálf­sagt. Þannig að mér finnst þetta sýna okkur hvernig stjórn­kerfið í Bret­landi er ekki í raun­inni að virka. Og hvernig stjórn­völd hafa fjársvelt þessar stofn­anir sem eru til staðar til að takast á við svona ástand. Stjórn­völd taka þessu ein­hvern veg­inn ekki alvar­lega,“ bætir hún við. Í raun hafi stjórn­völd í Bret­landi brugð­ist almenn­ingi að mörgu leyti.

Verslanir eru nú lokaðar í Brighton á Englandi.
Versl­anir eru nú lok­aðar í Brighton á Englandi.

Ætlar ekki að koma til Íslands eins og er

Íslensk stjórn­völd réðu Íslend­ingum frá ferða­lögum og hvöttu Íslend­inga á ferða­lagi erlendis til að íhuga að flýta heim­för. Margir fóru eftir þeim til­mælum en þetta á ekki við um Uglu þar sem hún býr í Bret­landi með maka sínum og hefur ákveðið tengsla­net þar í landi. „Það var eitt­hvað sem ég velti fyrir mér en ég á heim­ili hér og maka – við eigum gælu­dýr og mak­inn á fjöl­skyldu, svo það er annað en að segja það að fara aftur til Íslands. En auð­vitað væri ég til í það ef það væri auð­veld­ara.“ Hún segir að þess vegna hafi þau ákveðið að dvelja í Bret­landi eins og er og sjá hvað ger­ist.

Vegna þess að Ísland og Bretland eru innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins þá hafði hún rétt til að flytja þangað á sínum tíma og öðl­að­ist hún þau rétt­indi sem fylgja því að vera með breska kenni­tölu. Hún hefur þannig aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu ef á þarf að halda í fram­tíð­inni. „Ef ég hefði það ekki hefði ég hik­laust komið heim strax,“ segir hún.

Ekki allir átta sig á afleiðingunum

Ugla brýnir fyrir fólki að virða reglur og fara eftir þeim. „Því fleiri sem gera það því færri munu smit­ast og þá mun taka minni tíma að ná tökum á þessu ástandi,“ segir hún. Þá telur hún jafn­framt marga í Bret­landi ekki gera sér grein fyrir því hversu lengi þetta ástand muni vara.

„Það upp­lifi ég mikið hér, að fólk áttar sig ekki á afleið­ing­unum. Þó svo að þetta hafi ekki áhrif per­sónu­lega á fólk – þannig – þá mun þetta samt hafa langvar­andi áhrif á alla og suma mjög verr en aðra,“ segir hún. Svona ástand komi auð­vitað verst niður á öryrkum, flótta­fólki, fötl­uðu fólki, eldra fólki og lang­veikum og þess vegna sé ótrú­lega mik­il­vægt að við hin sýnum ábyrgð og gerum okkar besta til að stöðva útbreiðsl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár