Að bera slæðu eða ekki

Nefnd á vegum dönsku rík­is­stjórn­ar­innar leggur til að slæður verði bann­aðar í dönskum grunn­skólum. Tillagan, sem enn er aðeins drög, er mjög umdeild og margir þing­menn telja úti­lokað að til­laga um slæðu­bann yrði sam­þykkt í danska þing­inu.

Frá nefnd á vegum dönsku ríkisstjórnarinnar hefur komið sú tillaga að banna notkun slæðu, eða hijab, í grunnskólum landsins. Ekki eru allir á einu máli um ágæti tillögunnar.
Frá nefnd á vegum dönsku rík­is­stjórn­ar­innar hefur komið sú til­laga að banna notkun slæðu, eða hijab, í grunn­skólum lands­ins. Ekki eru allir á einu máli um ágæti til­lög­unnar. Mynd: Pexels

Fyrr á þessu ári skip­aði danska rík­is­stjórnin nefnd „Kommissionen for den glemte kvindekamp“ eins og nefndin hét í skip­un­ar­bréf­inu. Verkefni nefnd­ar­innar, sem var skipuð ell­efu full­trúum, var að koma með til­lögur og hug­myndir um hvernig hægt væri að tryggja konum sem til­heyra minni­hluta­hópum í Danmörku sömu rétt­indi og frelsi og aðrar konur í land­inu njóta. Formaður nefnd­ar­innar er Christina Krzyrosiak Hansen borg­ar­stjóri í sveit­ar­fé­lag­inu Holbæk. Í skip­un­ar­bréf­inu kom fram að nefnd­inni væri ætlað að ljúka störfum og skila til­lögum sínum í árs­byrjun 2023. Í skip­un­ar­bréf­inu voru nefnd þau gildi sem nefnd­inni bæri að hafa í huga og eiga að ná til allra íbúa Dan­merkur. Í fyrsta lagi að börnum sé tryggt upp­eldi án vald­beit­ingar (uden vold i opdra­gel­sen), eðli­lega umgengni við börn af báðum kynjum, í íþróttum, ferðum á vegum skól­ans, í leikjum og starfi.

Í öðru lagi að ung­lingar, ákveði sjálfir hverja þeir umgang­ist, þar á meðal að velja kærasta, eða kær­ustu, og maka. Ráða sjálfir yfir eigin lík­ama og kyni (seksu­alitet).

Í þriðja lagi að vera hluti sam­fé­lags­ins Dan­merkur, velja menntun og vini, taka þátt í hátíðum og atvinnu­lífi. Ákveða eigin klæðnað og njóta tján­ingar- og trú­frelsis.

Í skip­un­ar­bréf­inu kom fram að nefnd­inni væri ætlað að ljúka störfum og skila til­lögum sínum í árs­byrjun 2023.

Engin sérlög um slæður

Í Danmörku eru ekki í gildi lög sem gilda sér­stak­lega um slæðu­burð. Á vinnu­mark­aðnum eru engar almennar reglur um slæður en hins­vegar er bannað að mis­muna fólki af trúar­á­stæðum. Lögum um dóm­stóla (Retsplejeloven) var breytt árið 2009 og þar var tekið fram að dóm­arar mættu ekki bera trú­ar­leg né póli­tísk tákn í rétt­ar­sölum. Hermenn og lög­reglu­þjónar mega ekki bera slæður sem hluta ein­kenn­is­bún­ings.

Áralangar deilur og umræður

Í byrjun þessa árs voru tæp­lega 850 þús­und manns af erlendu bergi brotið, inn­flytj­endur og afkom­endur þeirra, búsett í Danmörku. Inn­flytj­endum fjölg­aði eftir síð­ari heims­styrj­öld­ina allt fram til árs­ins 1973. Í sumum til­vikum var um að ræða fólk sem hrak­ist hafði frá heima­löndum sínum en einnig var um ræða erlent vinnu­afl, einkum tengt olíu-og gasvinnslu, fyrst og fremst karl­menn. Margir úr þessum hópi sneru ekki heim aftur heldur sett­ust að í Danmörku. Árið 1983 tóku gildi breytt lög um útlend­inga, þau tryggðu aukin rétt­indi, meiri en í flestum öðrum ríkjum Evrópu. Þessi lög mættu vel­vilja Dana í upp­hafi en í kjöl­far auk­innar ásóknar útlend­inga í að setj­ast að í Danmörku kom annað og gagn­rýnna hljóð í strokk­inn.

[adspot]

Málefni erlends fólks sem flutt hefur til Dan­merkur með aðra siði og trú­ar­brögð en Danir eiga að venj­ast hafa þannig árum saman orðið til­efni deilna, bæði í þing­inu, Fol­ket­inget, og meðal almenn­ings. Mikil umræða varð um mál­efni útlend­inga í kjöl­far stríðs­átak­anna í Sýrlandi en árið 2015 ósk­uðu 21 þús­und Sýr­lend­ingar og Sómalar eftir póli­tísku hæli í Danmörku. Af þeim 850 þús­undum íbúa Dan­merkur af erlendum upp­runa eru Tyrkir fjöl­menn­astir, um 65 þús­und, Pól­verjar eru næst fjöl­menn­astir, um það bil 50 þús­und og Sýr­lend­ingar koma næstir þar á eftir, rétt um 44 þús­und.

Slæðubann margoft rætt í þinginu

Á und­an­förnum árum hafa slæðu­mál, eins og gjarna er kom­ist að orði, margoft komið til umræðu í danska þing­inu og skoð­anir ætíð skiptar. Snemma árs 2018 lagði Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn til að öll trú­ar­leg tákn skyldu bönnuð í grunn­skólum lands­ins og fyrir þing­kosn­ing­arnar 2019 sagði Pernille Vermund, for­maður Nýja borg­ara­lega flokks­ins (Nye Borgerlige) að flokk­ur­inn myndi vinna að því að banna múslima­slæður, eins og hún komst að orði, í grunn­skólum lands­ins.

Árið 2018 tók gildi bann við því að hylja and­lit sitt á almanna­færi, kallað búrku­bannið. Þessu banni var fyrst og fremst beint gegn múslímskum konum þótt ekki væri það sagt berum orðum.

Málefni inn­flytj­enda og staða þeirra í dönsku sam­fé­lagi hafa verið áber­andi í danskri þjóð­fé­lags­um­ræðu á síð­ustu árum. Sú umræða stafar ef til vill af þeirri stað­reynd að inn­flytj­endum og fólki af erlendu bergi brotið hefur fjölgað og gerir sig æ meira gild­andi í þjóð­líf­inu. Það hefur þó frekar gilt um karla en konur. Kannanir hafa sýnt að konum af öðrum upp­runa en dönskum hefur ekki reynst auð­velt að hasla sér völl og láta til sín taka í sam­fé­lag­inu. Mörgum hefur verið ljóst að „ekk­ert kemur af engu“ eins og Lér kon­ungur í sam­nefndu leik­riti Shakespe­ares sagði en þó hefur fátt gerst. Nefndin sem stjórnin skip­aði í byrjun árs­ins hefur nú birt til­lögur sínar og þær hafa vakið athygli.

Leggur til slæðubann

Tillögur nefnd­ar­innar sem stjórnin skip­aði eru ekki end­an­legar. Til­lög­urnar eru í níu liðum en sú sem lang mesta athygli hefur vakið er sú sem snýr að slæð­unum marg­nefndu. Nefndin mælir með að slæður verði bann­aðar í öllum grunn­skólum lands­ins. Rökin eru þau að stúlkur sem beri slæður skilji sig frá öðrum og ein­angr­ist og þær myndi ekki vina­tengsl utan mjög tak­mark­aðs hóps. Séu öðru­vísi.

Skiptar skoðanir

Til­lög­urnar sem nefnd rík­is­stjórn­ar­innar lagði fram til kynn­ingar í síð­ustu viku eru mjög umdeildar. Rök þeirra sem styðja til­lög­urnar eru þau að verði slæð­urnar bann­aðar hverfi sú sýni­lega aðgrein­ing sem nú er til staðar. Þeir sem eru and­snúnir slæðu­banni segja að ef það verði lög­fest muni sumir, kannski margir, for­eldrar ein­fald­lega ekki senda dæt­urnar í skóla og þar með ein­angr­ist stúlk­urnar enn frekar. Í Danmörku er ekki skóla­skylda, heima­kennsla er heimil og börn sem læra heima fari á mis við félags­líf sem teng­ist skól­anum. Aðrir gagn­rýnendur slæðu­banns­ins segja að trú­frelsi sé tryggt í dönsku stjórn­ar­skránni og ekki gangi að ætla að banna slæður en ekki önnur trú­ar­tákn, t.d. háls­men með krossi.

Meðal þing­manna eru skoð­anir skiptar. Sama máli gegnir um borg­ar­stjóra vítt og breitt um landið, margir þeirra eru and­snúnir slæðu­banni. Jakob Ellemann Jensen for­maður Venstre hefur ekki sagt af eða á varð­andi hugs­an­legt slæðu­bann. Kaare Dybvad Beck ráð­herra útlend­inga­mála hefur ekki viljað tjá sig um málið. Margir þing­menn sem danskir fjöl­miðlar hafa rætt við telja úti­lokað að lög um slæðu­bann yrðu sam­þykkt í þing­inu, ef til þess kæmi að málið næði svo langt.

Rétt er að geta þess að slæðu­nefndin, eins og nefndin sem rík­is­stjórnin skip­aði er kölluð, á að skila end­an­legum til­lögum sínum í árs­byrjun 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár