Ríkisstjóri Púertó Ríkó segir af sér

Rosselló, rík­is­stjóri Púertó Ríkó, mun láta af störfum þann 2. ágúst næst­kom­andi vegna fjöl­mennra mót­mæla síð­ustu viku. Mótmælin koma í kjöl­far leka á sím­skeytum rík­is­stjór­ans sem voru afar bíræfin.

Rosselló er fyrir miðju á myndinni
Rosselló er fyrir miðju á mynd­inni Mynd: Wiki commons

Ricardo A. Rosselló, rík­is­stjóri Púertó Ríkó, mun láta af störfum 2. ágúst næst­kom­andi. Afsögn hans kemur í kjöl­far mót­mæla sem hafa staðið yfir í rúm­lega viku og hund­ruðir þús­unda íbúa eyj­unnar hafa tekið þátt í.

Mót­mælin brut­ust út eftir að blaða­menn komust yfir um 900 blað­síður af afritum af sím­skeytum Rosselló og vina hans. Skeytin voru afar bíræf­in, full kven­fyr­ir­litn­ingar og for­dóma gagn­vart sam­kyn­hneigð­um.

[adspot]Þegar Rosselló til­kynnti um afsögn sína í gær fögn­uðu mót­mæl­endur sem voru fyrir utan hús hans ákaft. Rosselló sagð­ist vera fullur auð­mýktar í ávarpi sínu sem var sjón­varpað. Wanda Vázquez mun taka við af Rosselló, en hún er núver­andi dóms­mála­ráð­herra.

[links]Afsögn Rosselló var óum­flýj­an­leg eftir að fjöl­margir sam­flokks­menn hans í Nýja fram­fara­flokknum sögð­ust ekki styðja hann lengur. Auk þess sögðu þing­menn munu leggja fram kæru á hendur Rosselló vegna brota í emb­ætt­is­stöðu, segði hann ekki af sér.

Fjölmennustu mótmæli í sögu Púertó Ríkó

Hund­ruð þús­unda mót­mæl­enda flykkt­ust á götur Púertó Rík­ó í vik­unni og lok­uðu fyrir hrað­brautir og sam­göngur í höf­uð­borg­inni og kröfð­ust afsagnar rík­is­stjór­ans. Mót­mælin eru með þeim stærstu í sögu eyj­unn­ar, að því er kemur fram í frétt The New York Times.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár