Hundruð þúsunda mótmæla í Púertó Ríkó

Mótmælin hafa staðið yfir í rúm­lega viku og beindust í fyrstu að rík­is­stjóra Púertó Ríkó í kjöl­far upp­ljóstr­unar afar ósmekk­legra sam­skipta hans við vini og sam­starfs­menn.

Hundruð þús­unda mót­mæl­enda flykkt­ust á götur Púertó Ríkó í gær og lok­uðu fyrir hrað­brautir og sam­göngur í höf­uð­borg­inni. Mót­mæl­end­urnir krefj­ast afsagnar rík­is­stjóra Púertó Ríkó, Ricardo A. Rosselló. Mótmælin eru með þeim stærstu í sögu eyj­unnar, að því er kemur fram í frétt The New York Times.

Mótmælin hófust fyrr í mán­uð­inum þegar blaða­menn komust yfir um 900 blað­síður af afritum af sím­skeytum Rosselló og vina hans. Skeytin voru afar bíræfin, full kven­fyr­ir­litn­ingar og for­dóma gagn­vart sam­kyn­hneigðum.

[adspot]Mótmælin bein­ast enn gegn Rosselló en auk þess mót­mæla íbú­arnir vegna almennrar óánægju með stjórn rík­is­svæð­is­ins, slægri hag­stjórn síð­ustu ára og spill­ingu stjórn­mála­manna.

Vilja afsögn Rosselló tafarlaust

Til átaka kom á milli lög­reglu og mót­mæl­enda í gær. Lögregla skaut til að mynda táragasi og gúmmí­kúlum á mót­mæl­endur sem mót­mæltu fyrir framan heim­ili Rosselló.

Tveir flokkar hafa lengi verið við völd í Púertó Ríkó. Annar þeirra er flokkur Rosselló sem kall­ast Nýi fram­fara­flokk­ur­inn. Rosselló sagði síð­ast­lið­inn sunnu­dag að hann myndi bráð­lega láta af völdum og að hann muni ekki fara í fram­boð árið 2020. Mót­mæl­end­urnir vilja þó að hann segi taf­ar­laust af sér.

Íbúar langþreyttir á stöðu sinni gagnvart Bandaríkjunum

Í Púertó Ríkó búa 3.2 millj­ónir manna og er ekki fylki í Banda­ríkj­unum en er rík­is­svæði þess (US ter­ritory). Það þýðir að íbúar þess geta ekki kosið sér fram­bjóð­endur á banda­rískt þing eða í for­sæt­is­kosn­ingum en eyjan telst engu að síður ekki sem sjálf­stætt ríki.

Árið 2012 kusu íbúar eyj­unnar um stöðu sína sem rík­is­svæði og vildu 54 pró­sent kjós­enda hætta að vera rík­is­svæði. Engu að síður varð engin breyt­ing á stöðu Púertó Ríkó í kjöl­farið þar sem áætlun um næstu skref skorti.

Náttúruhamfarir árið 2017 skilja enn eftir sig spor

Felli­byl­ur­inn María fór yfir eyj­una árið 2017 og skildi eftir sig mikla eyði­legg­ingu. Í kjöl­farið fluttu þús­undir af brott ásamt því að atvinnu­leysi hækk­aði til muna og var eyjan var nærri gjald­þroti. Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, var harð­lega gagn­rýndur fyrir fram­komu sína gagn­vart eyj­unni og var hann sak­aður um skeyt­ing­ar­leysi gagn­vart íbúum hennar.

Trump hefur sagt Rosselló og stjórn hans vera „algjör­lega van­hæfa“ og spillta. Hann hefur jafn­framt sagst hafa mik­inn skiln­ing á aðstæðum á eyj­unni og að hann sjálfur sé það besta sem gerst hafi fyrir Púertó Ríkó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár