Meniga semur við einn stærsta banka Spánar

Meniga bætir um einni milljón manns við þær 50 millj­ónir sem hafa aðganga að hug­bún­aði fyr­ir­tæk­is­ins um allan heim með samn­ingi við Ibercaja.

Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga.
Georg Lúð­víks­son, for­stjóri Meniga. Mynd: Skjáskot/Kjarninn

Íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Meniga hefur samið við Ibercaja bank­ann um að inn­leiða net­banka­lausnir fyr­ir­tæk­is­ins. Ibercaja er einn af stærstu bönkum Spánar. Yfir ein milljón hefur nú aðgang að húg­bún­aði Meniga í gegnum Ibercaja bank­ann. Hann hefur nú verið inn­leiddur hjá yfir 70 fjár­mála­stofn­unum víða um heim sem gerir það að verkum að um 50 milljón manns í 20 löndum er með aðgang að honum. Á meðal við­skipta­vina Meniga eru margir stærstu banka heims, þeirra á meðal Sant­ander, Commerzbank, ING Direct og Intesa Sanpaolo. Íslend­ingar geta hins vegar nýtt sér lausnir Meniga gjald­frjálst á vefnum meniga.is eða í Meniga app­inu.

[links]Í til­kynn­ingu frá Meniga segir að fyrsta skrefið í inn­leið­ing­una hjá Ibercaja muni leiða af sér nýja og end­ur­bætta snjall­síma­lausn. „Síðar mun bank­inn taka í notkun fleiri vörur Meniga þar sem við­skipta­vinir koma til með að geta sett upp sjálf­virkt bók­hald, borið sig saman við aðra áþekka ein­stak­lings­hópa, sett sér mark­mið í ákveðnum útgjalda­flokkum og þar með ein­faldað og haldið betur um heim­il­is­fjár­málin sín.“

[adspot]Georg Lúð­víks­son, for­stjóri og einn stofn­enda Meniga, segir að sam­skipti fyr­ir­tækja við við­skipta­vini fari í auknum mæli fram eftir staf­rænum boð­leiðum sem opnar á ný og spenn­andi tæki­færi. „Bankar eru þar engin und­an­tekn­ing. Með því að inn­leiða hug­búnað Meniga getur Ibercaja nú átt sam­skipti við við­skipta­vini sína á mun per­sónu­legri hátt. Á sama tíma geta þeir boðið við­skipta­vinum sínum upp á betri þjón­ustu, yfir­sýn og inn­sýn í fjár­málin sín og þar með gert við­skipta­sam­bandið mun traust­ara.“

Meniga var stofnað árið 2009 og eru starfs­menn í dag um 100. Fyr­ir­tækið þróar heim­il­is­fjár­mála­lausnir fyrir banka og fjár­mála­stofn­anir sem not­aðar eru í næstu kyn­slóð net­banka til að stór­bæta þjón­ustu við við­skipta­vini.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár