Er stjórnarmeirihlutinn kominn niður í 33?

Í nýjasta sjón­varps­þætti Kjarnans fjöll­uðu tveir þing­menn, með algjör­lega and­stæðar skoð­anir á mál­inu, um van­traust­s­til­lögu á dóms­mála­ráð­herra og hvað nið­ur­staðan í atkvæða­greiðslu um hana þýði. Hér er hægt að horfa á þátt­inn í heild sinni.

Tveir stjórn­ar­þing­menn, Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir úr Vinstri grænum, kusu með van­traust­s­til­lögu á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra í lið­inni viku. Það þýddi að ein­ungis 33 af 35 þing­mönnum flokk­anna sem mynda rík­is­stjórn studdu ráð­herr­ann og í kjöl­farið hefur því verið velt fyrir sér hvort að rétt sé að líta svo á að stjórn­ar­meiri­hlut­inn hafi misst tvo þing­menn við þessa atkvæða­greiðslu.

Málið var til umræðu í síð­asta sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut sem frum­sýndur var á mið­viku­dag. Þar var van­traust­s­til­lagan aðal­við­fangs­efni þátt­ar­ins. Hægt er að horfa á hann í heilu lagi hér:

Birgir Ármanns­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, var annar gesta þátt­ar­ins. Hann taldi það ekki alveg liggja fyrir hvort að stjórn­ar­meiri­hlut­inn hefði minnkað. „Við eigum eftir að heyra í félögum okkar í VG um það, hvernig þeir líta á það. Þeir þekkja auð­vitað betur til. Hvernig svo sem það er þá lít ég svo á að þessi rík­is­stjórn hafi traustan meiri­hluta. Og heldur ótrauð áfram að vinna að þeim málum sem hún er að und­ir­búa og fram­kvæma.“

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagð­ist hafa séð það hjá Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, iðn­aðar og nýsköp­unar og vænt­an­lega næsta vara­for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að hún líti svo á. „Ég veit ekki hvað ráð­herrar VG eru að hugsa eða aðrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár