Íhaldsflokkurinn að ná hreinum meirihluta - Milliband og Clegg báðir sagðir vera að hætta

Spár breskra ljós­vaka­miðla benda allar til þess að Íhalds­flokk­ur­inn hafi náð hreinum meiri­hluta í bresku þing­kosn­ing­unum sem fram fóru í gær. Samkvæmt spá Sky News nær flokk­ur­inn 326 sætum á breska þing­inu og þar með tveggja sæta meiri­hluta, en alls eru 650 sæti í neðri deild breska þings­ins. Talningu atkvæða í Bret­landi er nán­ast lokið.

David Cameron verður því áfram for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og þarf ekki að reiða sig á sam­starf við aðra flokka, líkt og hann þurfti á síð­asta kjör­tíma­bili. Árangur Íhalds­flokks­ins er mun betri en skoð­ana­kann­anir gerðu ráð fyrir í aðdrag­anda kosn­ing­anna, en sam­kvæmt þeim átti flokk­ur­inn að fá mjög svipað magn þing­sæta og Verka­manna­flokk­ur­inn og vera nokkuð fjarri því að ná hreinum meiri­hluta. Hann er líka betri en útgöngu­spá gær­kvölds­ins benti til, en sam­kvæmt henni átti flokk­ur­inn að ná 316 sætum.

Því er um mik­inn kosn­inga­sigur að ræða fyrir Íhalds­flokk­inn og David Cameron.


Afhroð Frjálslyndra demókrata og léleg útkoma Verkamannaflokksins


Frjáls­lyndir demókratar, sem mynda í dag sam­steypu­stjórn með Íhalds­flokknum, biðu sögu­legt afhroð í kosn­ing­unum. Þeir fá að öllum lík­indum ein­ungis átta þing­sæti en voru með 57 áður. Búist er við því að Nick Clegg, for­maður flokks­ins og núver­andi aðstoð­ar­for­sæt­is­ráð­herra, hætti eftir það afhroð sem flokkur hans beið í kosn­ing­unum.

[caption id="attachment_28127" align="alignnone" width="615"] Stopp hér. Ed Milli­band er lík­lega á útleið sem for­maður Verka­manna­flokks­ins.[/caption]

Stopp hér. Ed Milliband er líklega á útleið sem formaður Verkamannaflokksins.
Stopp hér. Ed Milli­band er lík­lega á útleið sem for­maður Verka­manna­flokks­ins.

Verka­manna­flokk­ur­inn beið líka mik­inn ósigur í kosn­ing­unum. Flokk­ur­inn var með 258 sæti í neðri deild breska þings­ins fyrir kosn­ing­arnar og miklar vonir voru innan hans um að Ed Milli­band væri að stýra flokknum aftur í valda­stól, mögu­lega í sam­steypu­rík­is­stjórn með annað hvort Frjáls­lyndum demókrötum eða Skoska þjóð­ar­flokknum. Kannanir í aðdrag­anda kosn­ing­anna sýndu að flokk­ur­inn og væri nán­ast hnífjafn Íhalds­flokknum þegar kom að fjölda þing­sæta. En raunin var önnur.

Samkvæmt spám, nú þegar nán­ast öll atkvæði hafa verið talin, fær flokk­ur­inn ein­ungis 235 þing­sæti og tapar því 25 slíkum. Búist er við því að Ed Miliband, for­maður flokks­ins, segi af sér því emb­ætti á næstu dögum í kjöl­far kosn­inga­ó­sig­urs­ins.

Skoski þjóðarflokkurinn sigurvegari kvöldsins


Stærsta ástæðan fyrir tapi flokks­ins er ein­föld, hún heitir Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn (SNP). Skotland er með 59 þing­sæti á breska þing­inu. Sögulega hefur landið verið mjög sterkt vígi fyrir Verka­manna­flokk­inn og á því kjör­tíma­bili sem er að ljúka var hann með 41 sæti. Nú er hann með eitt. Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn vann nefni­lega ótrú­legan kosn­inga­sigur, lík­lega einn þann ótrú­leg­asta í breskri kosn­inga­sögu, með því að ná 56 af 59 sætum sem í boði voru í Skotlandi. Hann var með sex sæti á þing­inu á því kjör­tíma­bili sem er að líða. Hinir flokk­arnir þrír, Verka­manna­flok­ur­inn, Íhalds­flokk­ur­inn og Frjáls­lyndir demókratar fá eitt sæti hver í Skotlandi. Á meðal þeirra sem misstu sæti sitt í land­inu eru margir nafn­tog­aðir menn, meðal ann­ars nokkrir núver­andi ráð­herrar Frjáls­lynda demókrata.

[caption id="attachment_28126" align="alignnone" width="675"] Nicola Sturgeon, for­maður Skoska þjóð­ar­flokks­ins, og fylg­is­menn hennar höfðu ærna ástæðu til að fagna í gær­kvöldi. Hún mun sjálf ekki setj­ast á breska þingið. Alex Salmond, fyrrum for­maður flokks­ins, mun leiða þann hóp. MYND:EPA [/caption]

h_51922552 (1)
h_51922552 (1)

Einna mesta athygli vakti sigur Mhairi Black í kjör­dæm­inu Paisley í Skotlandi. Hún er tví­tug að aldri og bauð fram fyrir Skoska þjóð­ar­flokk­inn. Þar var helsti and­stæð­ingur hennar Douglas Alex­ander, þunga­vigt­ar­maður í Verka­manna­flokknum sem talið er að hefði orðið utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands ef Verka­manna­flokk­ur­inn hefði kom­ist til valda. Black sigr­aði hann með miklum yfir­burðum.

Fylgi UKIP eykst en skilar bara tveimur sætum


Breski sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn UKIP, sem hefur upp­lifað mikla fylg­is­aukn­ingu und­an­farin ár, fær ein­ungis tvö þing­sæti. Kosn­inga­kerfið í Bret­landi, þar sem öll kjör­dæmi eru ein­menn­ings­kjör­dæmi, kemur í veg fyrir að fylg­is­aukn­ing flokks­ins skili sér í fleiri þing­sætum. Hinn umdeildi leið­togi flokks­ins, Nigel Farage, náði ekki kjöri en hann var búinn að heita því að bjóða sig ekki aftur fram ef hann næði ekki inn í þessum kosn­ingum. Ljóst er þó að mál­staður UKIP, sem vill ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu og herða mjög inn­flytj­enda­lög til að tak­marka þann fjölda sem sest að í Bret­landi, á fylgi að fagna.

En það verður því David Cameron sem fer á fund Elísa­betar Bret­lands­drottn­ingar að loknum þing­kosn­ingum til að óska eftir umboði til að stjórna land­inu næstu fimm árin, líkt og hann hefur gert síð­ustu fimm ár. Það þýðir líka að breska þjóðin mun kjósa um áfram­hald­andi veru lands­ins í Evr­ópu­sam­band­inu árið 2017, en það var eitt af helstu kosn­inga­lof­orðum Camerons.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár