Þjóðin ætti að fá að vita hve mikil orka fer í rafmyntagröft

Dominic Ward forstjóri Verne Global, sem rekur gagnaver í Reykja­nesbæ, segir að öll önnur gagnaver á Íslandi geri lítið annað en að grafa eftir rafmyntum og segir að upplýsingar um orku­notkun rafmynta­graftar ættu að vera uppi á borðum.

Gagnaver Verne Global á Ásbrú í Reykja­nesbæ lætur ekki mikið yfir sér. Í tveimur byggingum sem áður þjónuðu sem vöru­skemmur Atlantshafs­banda­lagsins er þó nóg að gerast allan sólar­hringinn. Tölvur suða í svölum vélasölum dagana langa.

Lóðin er afgirt og öryggis­hlið tók á móti blaða­manni Kjarnans, sem var eilítið efins um að hann væri að koma á réttan stað, á storma­sömum miðvikudags­morgni í byrjun mars. Öryggið á þessari fyrr­verandi herstöðvarlóð er einn af kostunum við stað­setninguna, segir Dominic Ward, forstjóri Verne Global, sem tók á móti blaða­manni í anddyrinu.

Ward var staddur á landinu í upphafi mánaðar og ræddi við Kjarnann um framtíð gagnavera á Íslandi og hvernig Verne Global sér fyrir sér að stækka sinn rekstur á komandi árum. Hann sagði einnig frá því hvað hann telur að íslensk stjórn­völd þurfi að gera til þess að þessi orkusækna atvinnu­grein, sem orðið hefur til á undan­förnum áratug, geti vaxið enn frekar.

Einnig svaraði hann spurningum blaða­manns um það, sem ekki hefur legið ljóst fyrir opinber­lega, hversu mikil orka fer í að grafa eftir rafmyntum á borð við Bitcoin á Íslandi. Við kannski byrjum bara þar, en Ward svaraði slíkum spurningum, sem blaða­maður hafði talið að yrði ef til vill feimnismál, með glöðu geði.

Hann segir Verne Global nefnilega vera að gera hluti sem önnur gagnaver hér á landi séu ekki að gera, nánar tiltekið að þjóna alþjóð­legum fyrir­tækjum sem þurfa að keyra orku­frekar ofur­tölvur í stórum stíl, fremur en að fást aðallega við rafmynta­gröft.

Ward segir frá því að Verne Global þjónusti meðal annars þýska bíla­fram­leiðandann BMW og að þung tölvu­vinnsla þess fyrir­tækis, meðal annars við hönnunar­ferli nýrra bíla, fari fram á Ásbrú. Þá þjónusti Verne Global einnig vefþjóna fyrir sjálf­virkt þýðingar­forrit, af þeirri tegund sem gerir fólki kleift að eiga samtöl augliti til auglitis þrátt fyrir að tala enga sameiginlega tungu, sem krefjist gríðarlegrar reikni­getu. Af viðskipta­vina­flórunni nefnir hann einnig fyrir­tækið Peptone, sem keyrir risastór gervi­greindar­módel í ofur­tölvum til þess að reyna að koma auga á nýja möguleika við þróun lyfja.

Allt að 160 MW fari í rafmyntagröft í gagnaverum landsins

Í heildina, segir Ward, hafa gagnaver landsins í dag um 200 MW af uppsettu afli (e. data center capacity) til þess að selja viðskipta­vinum sínum. Af þessum 200 MW segist hann telja að einungis um 41 MW fari í eitthvað annað en að grafa eftir rafmyntum. Þar af segir hann að um 40 MW í gagnaveri Verne Global sem fari í aðra vinnslu fyrir viðskipta­vini en rafmynta­gröft. Einungis 1 MW fer í þjónustu við fyrirtæki í öðrum gagna­verum landsins. Restin er rafmynta­gröftur, fullyrðir Ward.

Hann nefnir sérstak­lega að annað fyrirtæki sem sé með gagnaver á Ásbrú, sem noti um 80-85 MW, geri nær ekkert annað þar en að þjónusta rafmynta­gröft. Sama félag sé svo með lítið gagnaver á höfuð­borgar­svæðinu sem þjónusti aðra geira.

„Þú skilur mína stöðu, ég vil gjarnan tala um þetta,“ segir Ward og brosir, en hann deildi því með blaða­manni að Verne Global hafi á undan­förnum árum sagt upp samningum við alla viðskipta­vini sem hafa verið að grafa eftir rafmyntum á borð við Bitcoin í gagnaveri fyrir­tækisins. Í gagnaveri Verne Global er þó enn verið að grafa eftir sýndar­fénu verðmæta – en síðustu samningarnir renna sitt skeið á næsta ári.

Um leyndarmálin í íslenska gagnaveraiðnaðinum

Ward segir að hann vildi gjarnan hafa það uppi á borðum nákvæmlega hversu mikið af orku fer í að grafa eftir rafmyntum á Íslandi á hverjum tíma og furðar sig raunar á því að Orku­stofnun telji sig ekki geta svarað fyrir­spurnum um það vegna samkeppnis­sjónarmiða – ekki einu sinni þegar kjörnir fulltrúar þjóðarinnar á Alþingi fara fram á þær upplýsingar.

Rafmyntir skópu íslenska gagnaveraiðnaðinn

Ward útskýrir að í upphafi reksturs gagna­versins hafi í reynd verið nauðsynlegt að fá inn kúnna sem voru að grafa eftir rafmyntum, til þess að komast yfir 10 MW markið sem þarf til þess að geta samið um raforku sem stór­notandi.

„Bitcoin og hinar rafmyntirnar hafa gert Íslandi kleift að verða gagnavers­land. Þú getur horft á það á einn hátt og sagt það slæmt, eða horft á það á annan hátt og sagt að það hafi hjálpað til við að búa atvinnu­greinina til,“ segir Ward, en hann segir að ákvarðanir hafi fremur snemma verið teknar hjá Verne Global um að horfa frá rafmyntunum og leggja fremur áherslu á að ná inn viðskipta­vinum úr öðrum geirum.

Úr einum tölvusalnum í gagnaveri Verne Global.
Úr einum tölvu­salnum í gagna­veri Verne Global.

„Það að fara út úr rafmyntum er eitthvað sem hefur verið til umræðu frá því eiginlega um leið og við tókum fyrstu kúnnana inn. Við höfum nokkrum sinnum lent í slæmum upplifunum. En árið 2014 vorum við í klemmu og þurftum að koma okkur yfir 10 MW til þess að flokkast sem stór­notendur hjá Orku­stofnun. Við ákváðum þá að taka til okkar nokkra viðskipta­vini sem voru að gera þetta nýja dæmi, sem kallaðist að grafa eftir Bitcoin,“ segir Ward og bætir við að það sé búið að vera áhugavert að fylgjast með þróuninni síðan þá.

„Árið 2014 var þetta varla iðnaður, en hreyfðist svo gríðar­lega hratt og árin 2017 til 2018 varð ljóst að vöxturinn yrði stjarnfræði­legur. Þá voru allir sem voru að grafa eftir myntinni að reyna að finna ódýran stað til þess að gera þetta og Ísland hafði þann kost að vera ódýr staður. Svo við gerðum þetta,“ segir Ward.

Hann lætur það þó fylgja að flestir fyrstu viðskipta­vinanna hafi farið á hausinn innan tveggja ára. „Og þá tókum við inn annan skammt af viðskipta­vinum, sumir þeirra fóru einnig á hausinn en aðrir lifðu lengur. En árið 2018 og 2019 tókum við ákvörðun um að þetta væri komið gott og ákváðum að setja markið á að þjónusta fyrirtæki. En við þurftum að geta komist á þann stað að vera með samninga fyrirtæki sem þurftu meira en 10 MW og ég skal bara vera heiðar­legur, við vorum ekki komin á þann stað árið 2014, það tók okkur fleiri ár og það var ekki fyrr en á árunum 2017 til 2018 sem það var orðið möguleiki,“ segir Ward.

Ekki bjartsýnn á framtíð Bitcoin

Sjálfur er hann ekki bjartsýnn á framtíð fyrstu kynslóðar bálka­keðju­tækninnar sem Bitcoin og fleiri rafmyntir hvíla á, ekki síst sökum þess hve mikla orku þarf til þess að leysa reikni­þrautirnar. Sökum þessa og fleiri ástæðna telur hann Bitcoin vera með gríðar­lega háan „áhættu­prófíl“.

Ward segist ekki vongóður um hvert Bitcoin sé að fara.
Ward seg­ist ekki von­góður um hvert Bitcoin sé að fara.

Hann bendir á að Kína hafi í fyrra bannað gröft eftir Bitcoin með einu penna­striki. „Allur Bitcoin-gröfturinn sem var í Kína og var slökkt á í desember færðist til Banda­ríkjanna. Það er tíma­sprengja sem bíður þess að springa að einhver blaða­maður í Banda­ríkjunum kveiki á þessu, fjalli um málið og það að það þurfti að kveikja á öllum gömlu kolaknúðu orku­verunum til að anna eftir­spurninni. Við erum að tala um þúsundir megavatta sem eru að bætast við kolefnis­fótspor Banda­ríkjanna. Enginn er að fjalla um þetta, en það verður gert, gefum þessu sex mánuði,“ segir Ward.

„Ég er ekki vongóður um hvert Bitcoin er að fara,“ bætir hann við, en bendir þó á að bálka­keðjutækni sem slík sé til margra hluta nytsamleg og eigi eftir að verða mikilvæg til framtíðar – þá sérstak­lega sú tækni sem byggi á svokölluðu proof of stake fremur en proof of work eins og fyrsta kynslóðin sem Bitcoin hvílir á. Sú tækni sé margfalt minna orkufrek og feli í sér tækifæri.

Mikil stækkun framundan

Eigenda­skipti urðu hjá Verne Global síðasta haust, en í september keypti fjár­festinga­félagið Digital 9 Infrastructure fyrir­tækið á 231 milljón punda, sem þá var jafnvirði tæplega 41 milljarðs íslenskra króna.

„Þetta er breskur innviða­fjár­festinga­sjóður sem er á hlutabréfa­markaði í London og þau eru með mjög skýra sýn: þau fjárfesta í sjálf­bærum stafrænum innviðum. Þau heita meira að segja eftir níunda markmiði Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem snýst um sjálfbæra innviði,“ segir Ward.

Spurður hvað nýir eigendur, sem keyptu út íslenska fjárfesta á borð við Novator og Stefni, hyggist fyrir með félagið, segir hann að mörkuð hafi verið stefna um hraðan vöxt. „Þegar fyrir­tækið var keypt í september var eitt af því sem var ákveðið að setja meira fé í vöxt og það eru 90 milljónir dollara [jafnvirði nærri 12 milljarða íslenskra króna] eyrna­merktar stækkuninni. Eftir­spurn viðskipta­vina eykst og eykst og við eigum allt þetta land þarna fyrir aftan okkur,“ segir Ward og bendir út um gluggann í fundarherginu.

Blaða­maður spyr hvort til standi að byggja alla leið út að mörkum malbikaðs bílaplans sem þar stendur – en þá svarar Ward því til að stefnan sé sett á að byggja töluvert lengra. „Sérðu rútuna sem stendur þarna við veginn? Við ætlum alla leiðina þangað,“ útskýrir hann.

„Við erum með tvö hús, samtals um 23 þúsund fermetra. Bygging númer þrjú á að verða 10 þúsund fermetrar og svo ætlum við að koma sex byggingum fyrir á þessu svæði. Þegar við verðum búin að full­byggja svæðið verður heildar­getan á þessu svæði um 100 MW af gagnavers­getu,“ segir Ward.

Íslandi geti verið leiðandi í gagnaverum

Kostirnir við að staðsetja gagnaver á Íslandi eru miklir, segir Ward. Fyrir utan aðgengi að hreinni og stöðugri orku frá vatns- og jarðvarma­virkjunum á samkeppnis­hæfu verði er hita­stigið mjög hagstætt rekstrinum og ekki þarf að kosta miklu til hérlendis til þess að starf­rækja gagnaver í saman­burði við lönd þar sem hita­sveiflur til beggja átta eru meiri.

„Við erum að gera eitthvað sem Ísland gæti verið leiðandi í og við erum alltaf að reyna að staðsetja okkur og þá Ísland, í samtölum við stjórn­völd, sem leiðtoga í sjálf­bærri tölvu­vinnslu,“ segir Ward og bætir því við að það sé hans mat að Ísland ætti að horfa á gagnavera­iðnaðinn sem eina meginstoð vaxtar í hagkerfinu.

„Hugverka­iðnaður á Íslandi var árið 2021 um 16 prósent af lands­framleiðslu. Það er ansi stór hluti og mikið af því er gagnavera­iðnaðurinn. Þetta er stækkandi, en með aðeins meiri hvatningu og skýrari sýn á gagnavera­iðnaðinn gæti þetta orðið enn stærri hluti,“ segir Ward og bætir við að ríki á borð við Svíþjóð og Noreg, sem hafi svipaða kosti upp á að bjóða hvað varðar orku og loftslag, séu að leggja mikla áherslu á þennan geira.

Hvað þarf gagnaveraiðnaðurinn frá stjórnvöldum?

Ward hafði nefnt við blaðamann í aðdrag­anda viðtalsins að hann væri áhuga­samur um að ræða við blaðamann um hvað íslensk yfirvöld gætu gert til þess að stuðla að vexti í gagnavera­iðnaðinum hérlendis. Í því samhengi nefnir hann fjóra hluti; raforku, gagna­tengingar, almenna meðvitund stjórn­valda um iðnaðinn og skilvirkni í skatt­heimtu.

„Það tekur langan tíma að gera áætlanir fyrir orku áratugi fram í tímann og ríkisstjórnin þarf að tryggja að orkumálin gangi upp fyrir gagnaveraiðnaðinn,“ segir Ward.
„Það tekur langan tíma að gera áætl­anir fyrir orku ára­tugi fram í tím­ann og rík­is­stjórnin þarf að tryggja að orku­málin gangi upp fyrir gagna­ver­a­iðn­að­inn,“ segir Ward.

Aðgengi að raforku er auðvitað lykil­þáttur fyrir starfsemina. „Við þurfum orku og tengingar raforku til þess að halda áfram vexti,“ segir Ward og minnist á þá stöðu sem hefur verið hér á landi undan­farna mánuði varðandi skerðanlega raforku. Hann segir þörf á því að horft sé til langs tíma við uppbyggingu flutnings­kerfisins og öflunar raforku. „Það tekur langan tíma að gera áætlanir fyrir orku áratugi fram í tímann og ríkis­stjórnin þarf að tryggja að orkumálin gangi upp fyrir gagnavera­iðnaðinn,“ segir Ward.

Í öðru lagi nefnir hann gagna­tengingar og fagnar því að þriðji sæstrengurinn sem tengir eyjuna okkar við umheiminn verði tekinn í notkun síðar á þessu ári. „Við vorum búin að berjast fyrir öðrum fjarskipta­kapli og það er að hafast, IRIS er að tengja Ísland við Írland og það er gott fyrir okkar iðnað og mögu­leikann á því að tengjast á milli mismun­andi kapla­kerfa,“ segir Ward og bætir því við að það sé gott að geta tengst við Írland með miklum hraða.

„Við komumst hratt til Dublin, sem er risa­markaður fyrir gagnaver, sérstaklegar fyrir þá sem kallast hyperscalers, eins og Google, Microsoft, Amazon, Oracle og aðra sem eru með risastór gagnaver þar,“ segir Ward og bætir því við að í reynd sé mjög mikið af „skýinu“ í Dublin. „Að geta tengst þangað með mjög miklum hraða er kostur,“ segir Ward.

Það þriðja sem hann nefnir er almenn meðvitund stjórn­valda á iðnaðinn og hver fókusinn til framtíðar eigi að vera. „Ég held að ríkis­stjórnin sé byrjuð að hugsa um þetta,“ segir Ward og bætir við að Lands­virkjun hafi verið ansi skýr með þá sýn sína að framtíð gagnavera­iðnaðarins á Íslandi liggi ólíklega í frekari rafmynta­grefti, heldur fremur í þungri tölvu­vinnslu fyrir hátækni­fyrirtæki.

Í fjórða lagi eru það svo skattamál. Segir Ward að það sé í hag atvinnu­greinarinnar að þeir sem kjósa að stunda viðskipti á Íslandi geti gert það með eins auðveldum hætti og hægt er. „Eitt af því sem er vandamál er skilvirkni virðis­auka­skattsins, það er mun flóknara ferli hér en í Svíþjóð, Frakk­landi eða Bretlandi. Það er eitt af því sem við erum sífellt að ræða við stjórn­völd,“ segir Ward, en breytingin sem hann segir að þurfi að gera hérlendis er sú að virðis­aukaskattur í viðskiptum fyrir­tækja, sem fáist endur­greiddur, verði ekki innheimtur nema á pappírum.

Hann segir að á Íslandi þurfi í dag að leggja út fyrir virðis­auka­skattinum og það geti tekið þrjá mánuði að endur­heimta féð frá Skattinum. Því þurfi þeir sem kjósa að koma í viðskipti hjá Verne Global að kosta 25 prósentum meira fé vegna kaupa á rándýrum tölvu­búnaði. „Þetta ætti ekki að vera svona og ætti að breytast því þetta er hindrun fyrir suma viðskipta­vini. En aðilar eru með mismun­andi getu til að bregðast við þessu.“

„Ég vil gjarnan tryggja að Ísland skilji hvað við erum að gera og koma því á framfæri að við erum öðruvísi en sumir aðrir hlutir sem eru í gangi í iðnaðinum. Verne Global er öðruvísi, við erum búin að vera með það að markmiði að ná inn alþjóð­legum kúnnum og fyrir­tækjum í viðskiptum og nú búum við að því að vera með nýja eigendur sem ætla að halda áfram að fjárfesta í okkur. Við sjáum vöxt framundan í þessum nýja iðnaði sem mun vaxa um allan heim og teljum að Ísland ætti að hagnast á því,“ segir Ward.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár