Óttast umferðaröngþveiti við fyrirhugaðan leikskóla í Fossvogsdal

Íbúar í Foss­vogs­dal fagna sumir nýjum leik­skóla sem fyr­ir­hug­aður er neðst í dalnum, en hafa áhyggjur af umferð sem fylgja mun starf­sem­inni. Embætti skipu­lags­full­trúa telur að hætta á umferð­ar­öng­þveiti ætti að vera í lág­marki. Deiliskipu­lags­til­laga fyrir leik­skóla­lóð­ina hefur verið sam­þykkt til aug­lýs­ingar.

Fossvogsvegur
Foss­vogs­vegur Nokkrir íbúar bentu borg­inni á að þeir teldu að Foss­vogs­vegur muni illa ráða við þá umferð sem fylgir nýjum leik­skóla fyrir allt að 150 börn. Mynd: Já.is

Nokkrir íbúar neð­ar­lega í Foss­vogs­dal, þar sem Reykja­vík­ur­borg áformar að byggja nýjan leik­skóla fyrir allt að 150 börn, lýsa yfir áhyggjum af því að þegar leik­skól­inn verði byggður muni bíla­um­ferð aukast mjög mikið á svæð­inu. Embætti skipu­lags­full­trúa í Reykja­vík­ur­borg segir í svörum til íbúa að fylgst verði með þróun umferðar um Foss­vogs­veg og ráð­staf­anir gerðar, ef þurfa þykir.

Samþykkt var í borg­ar­ráði í gær að aug­lýsa deiliskipu­lags­til­lögu fyrir svæðið. Í henni er gert ráð fyrir að svæð­inu megi rísa 2.200 fer­metra tíma­bundin leik­skóla­bygg­ing, auk þess sem skil­greindur er bygg­ing­ar­reitur fyrir allt að 2.400 fer­metra leik­skóla sem á að vera á lóð­inni til fram­búðar.

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins sátu hjá við afgreiðslu máls­ins, en í umhverfis- og skipu­lags­ráði tóku full­trúar flokks­ins undir með þeim íbúum í hverf­inu sem töldu stað­setn­ing­una ekki heppi­lega fyrir leik­skóla af þess­ari stærð. „Eins og íbúar í hverf­inu benda á er Foss­vogs­gata þröng, með gang­stétt aðeins öðrum megin og hentar því ekki hinni miklu umferð, sem mun óhjá­kvæmi­lega fylgja stórum leik­skóla,“ sagði í bókun full­trúa sjálf­stæð­is­manna í umhverfis- og skipu­lags­ráði í vik­unni.

Hætta á umferðaröngþveiti ætti að vera í lágmarki, segir skipulagsfulltrúi

Einn íbúi sagði, í umsögn um svo­kall­aða skipu­lags­lýs­ingu sem sam­þykkt hefur verið fyrir svæðið, að það sé „óraunsæ róm­an­tík að halda að for­eldrar munu koma með börn sín gang­andi eða hjólandi í leik­skól­ann“ og að hug­myndin um að setja niður leik­skóla á þessum stað, á lóð sem heitir Foss­vogs­blettur 2-2A, muni stefna á milli 300 til 400 bílum auka­lega niður í Foss­vogsal­inn á hverjum degi, „með til­heyr­andi teppum á þessu afmark­aða frið­sæla svæði“. 

Í svari til þessa íbúa frá skipu­lags­full­trúa er bent á að tvær aðkomu­leiðir séu að Foss­vogs­vegi, bæði frá Bústaða­vegi um Háa­leit­is­braut og hins vegar frá Bústaða­vegi um Eyr­ar­land og umferð sé um göt­urnar í báðar áttir. „Hætta á umferð­ar­öng­þveiti ætti því að vera í lág­marki,“ segir í svar­inu frá skipu­lags­full­trúa borg­ar­innar, en boðað að fylgst verði með áhrifum leik­skól­ans á umferð­ina, sem áður segir.

Hrifin af leikskóla en telja hann of fjölmennan

Þeir íbúar sem sendu inn umsagnir við skipu­lags­lýs­ingu reits­ins, lýstu sumir yfir ánægju með að það standi til að reisa leik­skóla á svæð­inu, en athuga­semdir eru gerðar við fyrir hug­aða stærð hans. 

„10 deilda leik­skóli fyrir 150 börn í grónu íbúa­hverfi þar sem gatna­kerfið er þröngt og aðkoma erfið er of stór. Lagt er til að leik­skól­inn muni taka við mun færri börnum,“ skrifar einn fast­eigna­eig­andi á svæð­inu.  

Ævin­týra­borgTil stendur að setja upp tíma­bundið leik­skóla­hús­næði á lóð­inni og byggja var­an­lega leik­skóla­bygg­ingu þar við hliðiná.

Annar segir for­eldra innan hverf­is­ins lengi hafa kallað eftir leik­skóla­plássi innan hverfis og segir í umsögn hans að skut­lið á milli póst­núm­era fyrir og eftir vinnu sé von­andi á enda. Fyr­ir­hug­aður leik­skóli sé hins vegar of stór, og það rök­styður íbú­inn með því að nærum­hverfið sé ekki þétt­byggt, í nærum­hverf­inu séu ekki margar barna­fjöl­skyldur og stað­setn­ingin sé í jaðri hverf­is­ins, en ekki miðju þess.

„Að ofan­töldu má leiða að umferðin til og frá leik­skól­anum sé mest megnis á bíl. Þrátt fyrir mjög góða hjóla­stíga höfum við áhyggjur af því að barna­fjöl­skyldur muni koma og fara akandi,“ skrifar íbú­inn, sem nefnir að skyn­sam­legri nálgun væri að byrja með 50 barna leik­skóla á svæð­inu og að minni leik­skóli myndi frekar þjóna sínu nærum­hverfi. „Upplifun okkar er sú að hér sé verið að leysa tíma­bund­inn vanda vegna myglu­mála og barna­fjölda vestan Elliðaár með einu penna­striki í Fossvogi,“ skrifar íbú­inn í nið­ur­lagi umsagnar sinnar.

Ætla má að fleiri íbúar rafhjólavæðist eða noti almenningssamgöngur

Í svari skipu­lags­full­trúa borg­ar­innar er til þessa íbúa segir að þessi áform ein og sér muni því miður ekki leysa núver­andi skort á leik­skóla­plássum. 

„Mark­miðið með áformum þessum er miklu fremur að nýta sem best gróð­ur­sælt og skjól­gott svæði sem hentar einkar vel fyrir starf­semi leik­skóla og byggja góðan leik­skóla til fram­tíðar sem hefur gott aðgengi frá helstu stofn­brautum borg­ar­innar, bæði akandi og hjólandi umferðar. Lóðirnar báðar til sam­ans veita nægj­an­legt rými fyrir 10 deilda leik­skóla en sú stærð þykir jafn­framt auka hag­kvæmni fram­kvæmd­ar­innar,“ segir í svari skipu­lags­full­trú­ans.

Þar kemur einnig fram að leik­skól­anum sé ekki ætlað að þjóna ein­göngu nærum­hverfi sínu, heldur ekki síður starfs­fólki stofn­ana í nágrenn­inu, eins og Borg­ar­spít­ala, RÚV og Kringl­unni. 

„Líkast til mun meiri­hluti barna koma og fara frá leik­skóla í bíl. Spár um fjölda barna í hverfum borg­ar­innar benda þó til þess að fjöldi barna í þessu hverfi muni aukast á kom­andi árum og þá munu for­eldrar geta komið með börn sín til leik­skól­ans með öðrum ferða­mátum en bílum. Enn­fremur má ætla að enn fleiri íbúar Foss­vogs­dals muni raf­hjóla­væð­ast eða nýta sér almenn­ings­sam­göngur sem mun vega upp á móti ætl­aðri bíla­um­ferð að hinum nýja leik­skóla,“ segir í svari skipu­lags­full­trú­ans.

Skipu­lags­lýs­ingin og ábend­ingar og athuga­semdir voru kynnt á fundi umhverfis- og skipu­lags­ráðs borg­ar­innar á mið­viku­dag­inn. Síðan var sam­þykkt í borg­ar­ráði á fimmtu­dag að aug­lýsa deiliskipu­lags­til­lögu fyrir reit­inn. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir 32 bíla­stæðum við leik­skól­ann.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár