Svo virðist sem fólki finnist óþægilegt að veita konum sem fá hjartastopp á almannafæri hjartahnoð. Ný kanadísk rannsókn sýnir að aðeins 54 prósent fólks sem fór í hjartastopp á almannafæri var hnoðað af vegfarendum og enn meira sláandi er að konur í hjartastoppi voru 28 prósent ólíklegri en karlar til að fá slíka lífsbjörg. Hins vegar sýndi rannsóknin að engin munur var á meðferð sjúklinga eftir kyni ef veikindin áttu sér stað inni á heimilum.
Vísindamenn hvetja þá sem verða vitni að fólki í hjartastoppi til að hefja endurlífgun – óháð aldri og kyni sjúklingsins.
Teymi kanadískra vísindamanna safnaði gögnum um 39 þúsund manns sem fóru í hjartastopp utan sjúkrahúsa í Bandaríkjunum og Kanada á árunum 2005-2015.
„Við vitum ekki af hverju þetta er svona,“ segir Alexis Cournoyer sem er einn höfunda rannsóknarinnar og starfar sem læknir á sjúkrahúsi í Montreal. „Skýringin gæti verið sú að fólk …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Ef karlmenn eru einnig meirihluti þeirra sem veita hjálp (þetta er tilgáta) þá gæti það verið útskýringin.
Það gildir sérstaklega úti á götu þar sem líklegt er að konan er alls ókunnug hugsanlegum hjálpendum.
Í húsnæði eru meiri líkur á því að konan þekkist (starfssystir, ættingi, vinur) og áhyggjurnar um líf hennar lækka þröskuldinn fyrir utan það að hópur þekkist væntanlega innbyrðis og stappar stáli í hvert annað.
Úti á götu er alltaf öryggara fyrir mann sjálfan að halda sig í bakgrunni.