Topp 10 – Knattspyrnustjórar í úrvalsdeildinni

Enski bolt­inn hefur lengi staðið Íslend­ingum nærri. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur tók saman lista yfir þá 10 knatt­spyrnu­stjóra sem hafa náð bestum árangri.

Alex Ferguson er á topplistanum.
Alex Ferguson er á topp­list­anum. Mynd: EPA

Stjörnu-költ knatt­spyrnu­stjóra í ensku úrvals­deild­inni hefur sjaldan verið meiri en nú. Ljós fjöl­miðl­anna bein­ist sífellt oftar að þeim líkt og þeir séu stór­meist­arar í skák en leik­menn­irnir aðeins tafl­menn.

Um fátt annað var talað sein­asta sumar en kom­andi ein­vígi Manchester-stjór­anna José Mourinho og Pep Guardi­ola og nú er staða Arsene Wenger hjá Arsenal heitasta deilu­málið. Þá er vel­gengni Chelsea og Totten­ham fyrst og fremst þakkað stjórum þeirra, Antonio Conte og Mauricio Potchettino. Augu heims­ins eru á þessum mönnum sem svitna og orga á hlið­ar­lín­unni.

Hér eru 10 knatt­spyrnu­stjórar sem best hafa valdið þessu verk­efni síðan 1993.

10. Martin O´Neill

Leicester City (1995-2000), Aston Villa (2006-210), Sunderland (2011-2013)

Martin O´Neill er fyrst og fremst þekktur fyrir afrek sín í Skotlandi og Írlandi en ár hans í ensku úrvals­deild­inni eru ekki síður til­komu­mikil. O´Neill kom Leicster City upp í úrvals­deild­ina á sínu fyrsta tíma­bili og hélt þeim í efri hlut­anum í fjögur tíma­bil í röð þar til hann hætti árið 2000. Það sem er jafn­vel enn til­komu­meira er að hann vann deild­ar­bik­ar­inn í tvígang og kom lið­inu þar með í Evr­ópu­keppni.

Tveimur árum eftir að hann hætti féllu Leicester. Miklar vonir voru bundnar við O´Neill þegar hann tók við Aston Villa árið 2006 en honum fannst eig­end­urnir ekki styðja nægi­lega við liðið fjár­hags­lega. Úrslitin voru þó ágæt og bættu Aston Villa sig með hverju árinu. Liðið komst þó aldrei hærra en í 6. sæti og í Evr­ópu­deild­ina.

Eftir að O´Neill kvaddi árið 2010 lá leiðin niður á við uns liðið féll loks í fyrsta skipti úr úrvals­deild­inni árið 2016. O´Neill hefur alltaf trúað á ein­falda knatt­spyrnu af gamla skól­anum og hugsar fyrst og fremst um sitt eigið lið fremur en and­stæð­ing­ana.

9. David O´Leary

Leeds United (1998-2002), Aston Villa (2003-2006)

Hið unga Leeds United-lið David O´Leary minnir um margt á sög­una um Íkarus sem flaug of nærri sólu og hrap­aði. Þeir voru eitt mest spenn­andi lið Evrópu um tíma, djarfir og óhefl­aðir. O´Leary var ungur og alger­lega óreyndur stjóri en náði strax árangri, bæði í deild­inni og í Evrópu, án þess þó að vinna neina titla. Árið 2001 komust þeir eft­ir­minni­lega alla leið í und­an­úr­slit meist­ara­deild­ar­innar. O´Leary treysti mikið á upp­alda leik­menn á borð við Jonathan Woodgate, Harry Kewell, Alan Smith og Ian Harte. En eig­end­urnir höfðu fjár­fest gríð­ar­lega í lið­inu og treyst á áfram­hald­andi við­veru í meist­ara­deild­inni. Þegar það tókst ekki lenti liðið í fjár­hags­legri hring­iðu og O´Leary var lát­inn fara.

Eftir nokkur sæmi­leg en jafn­framt við­burð­ar­snauð ár hjá Aston Villa kvaddi O´Leary úrvals­deild­ina árið 2006. O´Leary hefur sinnt útsend­ara­störfum fyrir Arsenal undan farin ár og hefur sagt að hann geti vel hugsað sér að snúa aftur í stjóra­stól ef gott tæki­færi býðst.

[adspot]

8. Kenny Dalglish

Liverpool (1985-1991 og 2011-2012), Blackburn Rovers (1991-1995), Newcastle United (1997-1998)

„King Kenny“ er einn besti leik­maður og knatt­spyrnu­stjóri sem Liverpool hafa átt og stýrði lið­inu til fjölda titla undir lok níunda ára­tug­ar­ins, þá sem spilandi-knatt­spyrnu­stjóri. Hann stimpl­aði sig svo inn í úrvals­deild­ina með því að gera ann­arrar deild­ar­liðið Blackburn Rovers að enskum meist­urum á aðeins fjórum árum og var val­inn knatt­spyrnu­stjóri árs­ins fyrir vikið. Liðið var fjár­magnað af hinum vell­auð­uga iðn­jöfri Jack Walker en Dalglish kall­aði það þó „lið fólks­ins“ vegna þess að Blackburn er í raun lít­ill verka­manna­bær.

Tveimur árum síðar gerði hann aðra atlögu að Eng­lands­meist­aratitl­inum með Newcastle United. Á síð­ustu árum hefur hann gegnt ýmsum stöðum hjá Liverpool, m.a. sem knatt­spyrnu­stjóri um skamma hríð. Sá tími minnti ekk­ert á fyrrum dýrð­ar­daga hans hjá lið­inu og hann var tal­inn spila úrelta knatt­spyrnu. En hann skil­aði þó einum deild­ar­bikar í safnið.

7. Harry Redknapp

West Ham United (1994-2001), Portsmouth (2002-2004 og 2005-2008), Southampton (2004-2005), Tottenham Hotspur (2008-2012), Queens Park Rangers (2012-2015)

Harry Redknapp verður ávallt nefndur í sömu andrá og West Ham United, klúbbnum sem hann spil­aði með á sjö­unda ára­tugnum og stýrði á þeim tíunda. Þar komu hæfi­leikar hans til að ala upp og hlúa að ungum knatt­spyrnu­mönnum best í ljós með leik­mönnum á borð við Frank Lampard, Joe Cole, Michael Carrick og Rio Ferdin­and. Redknapp var einnig slyngur á mark­að­inum og lið hans þóttu spila sókn­djarfan og skemmti­legan bolta.

Hann er í miklum metum hjá stuðn­ings­mönnum Portsmouth fyrir þrennar sakir, þ.e. að koma lið­inu upp í úrvals­deild­ina, að vinna FA bik­ar­inn árið 2008 og að fella höf­uð­and­stæð­inga þeirra Southampton. Stærsta starfið sem Redknapp fékk var hjá Totten­ham og þar stóð hann sig með prýði. Hann kom lið­inu í meist­ara­deild Evrópu í fyrsta sinn og var val­inn knatt­spyrnu­stjóri árs­ins 2010 fyrir vikið. Hjá Queens Park Rangers féll hann hins vegar í annað skiptið á ferl­inum og er það einn helsti löstur á frá­bærum ferli í úrvals­deild­inni.

6. Rafa Benitez

Liverpool (2004-2010), Chelsea (2012-2013), Newcastle United (2016-)

Benitez var tal­inn krafta­verka­maður og taktískur snill­ingur þegar hann kom til Liverpool eftir að hafa unnið spænsku deild­ina í tvígang með Valencia. Sú trú jókst þegar hann sigr­aði meist­ara­deild Evrópu á sínu fyrsta ári hjá félag­inu eftir ótrú­legan úrslita­leik gegn AC Milan sem leiddi 3-0 í hálf­leik. FA bikar fylgdi ári seinna og liðið gerði í tvígang harða atlögu að Eng­lands­meist­aratitl­inum sem kom þó aldrei.

Í nóv­em­ber árið 2012 var Benitez óvænt ráð­inn til Chelsea út það tíma­bil. Liverpool og Chelsea höfðu eldað saman grátt silfur á tíma Benitez og háð fjórar rimmur í meist­ara­deild­inni. Hann var aldrei tek­inn í sátt þrátt fyrir að hafa skilað lið­inu þriðja sæti deild­ar­innar og fyrsta Evr­ópu­deildar bik­arnum.

Benitez fékk það erf­iða verk­efni að bjarga Newcastle United frá falli undir lok tíma­bils­ins 2015/2016. Þrátt fyrir góð úrslit tókst það ekki en hann virð­ist nú vera að stýra þeim rak­leiðis aftur upp á þessu tíma­bili.

5. Claudio Ranieri

Chelsea (2000-2004), Leicester City (2015-2017)

Ranieri var lengi vel tal­inn einn óheppn­asti knatt­spyrnu­stjóri heims. Hann hefur þjálfað næstum öll stóru liðin á Ítalíu en einnig á Spáni og í Frakk­landi og er þekktur fyrir að byggja upp góð lið. Eftir 30 ára starf voru tveir bik­artitlar þó það eina sem hann hafði unnið. Þar með eru talin árin fjögur sem hann stýrði Chelsea og fékk við­ur­nefnið fálm­ar­inn vegna þess að hann breytti svo oft um leikk­erfi og leik­menn.

Það kom því eins og þruma úr heið­skýru lofti þegar hann var ráð­inn til Leicester City sum­arið 2015 eftir storma­saman tíma stjór­ans Nigel Pearson. Allir bjugg­ust við að liðið færi lóð­beint niður en þá gerð­ist hið ótrú­leg­asta krafta­verk í sögu enska bolt­ans. Leicester unnu og unnu og komu sér strax á topp úrvals­deild­ar­innar. Þar sigldu þeir allt tíma­bilið og unnu tit­il­inn í fyrsta sinn í sögu félags­ins…. með 10 stiga mun. Lyk­ill­inn að þessu var varn­ar­leik­ur­inn því þeir héldu hreinu í alls 15 leiki. Ævin­týrið end­aði illa hjá Ranieri og flestir knatt­spyrnu­á­huga­menn tóku það mjög nærri sér. Því Ranieri er mikil til­finn­inga­vera og sér­legur heið­urs­maður.

4. Sam Allardyce

Bolton Wanderers (1999-2007), Newcastle United (2007-2008), Blackburn Rovers (2008-2010), West Ham United (2011-2015), Sunderland (2015-2016), Crystal Palace (2016-)

Ef það er ein­hver kann á úrvals­deild­ina þá er það „Big Sam“ Allardyce. Hann er þekktur fyrir að halda liðum frá falli og það var einmitt ástæðan fyrir því að hann var ráð­inn til Crystal Palace nú fyrir jól.

Allardyce er þekkt­astur fyrir veru sína hjá Bolton þar sem hann kom þeim upp í úrvals­deild­ina árið 2001 og hélt þeim í efri helm­ingnum í fjögur ár. Hann kom þeim meira að segja í Evr­ópu­keppni í fyrsta sinn. Mesta afrekið sem hann vann var aftur á móti hjá Sund­er­land, tíma­bilið 2015/2016. Sund­er­land voru í fall­sæti í 237 daga sam­an­lagt en björg­uðu sér fyrir horn á loka­metr­unum. Stóri-Sámur fagn­aði því með því að fá sér bjór á sína alþýð­legu vísu.

Allardyce hefur aldrei fengið tæki­færi hjá stærstu klúbb­unum en tími hans hjá enska lands­lið­inu er sá svart­asti á ferli hans. Allardyce hrökkl­að­ist úr starfi eftir aðeins einn leik eftir að fjöl­miðlar komu upp um spill­ing­ar­mál honum tengt. Allardyce er mjög skipu­lagður og leggur mikla áherslu á varn­ar­leik og föst leikatriði. En hann á sína óhefð­bundnu siði í þjálfun eins og t.d. hug­leiðslu.

3. Arsene Wenger

Arsenal (1996-)

Fólk yppti öxlum haustið 1996 þegar Wenger kom til Arsenal frá Japan. George Graham hafði gert Arsenal að varn­ar­sinn­að­asta liði deild­ar­innar en Wenger breytti alger­lega hug­ar­fari liðs­ins án þess þó að brjóta upp varn­ar­múr­inn fræga. Hann keypti sókn­ar­snill­inga frá Frakk­landi og brátt byrj­uðu titl­arnir að flæða inn.

Hápunkt­inum var náð þegar liðið tap­aði ekki einum ein­asta deild­ar­leik tíma­bilið 2003/2004. Þessum árangri var náð með því að halda sig við sókn­ar­leik sem byggði á tækni­legri getu leik­manna og hafa traust og trú á þeim. Leikmenn hafa notið þess að spila fyrir Wenger og hann hefur gefið yngri leik­mönnum næg tæki­færi.

Síðustu 10 ár hefur hann haldið lið­inu á hásléttu án þess að ná neinum tindum (fyrir utan tvo bik­artitla) og þar með verið gagn­rýndur fyrir stöðnun. Kaup hans á leik­mönnum hafa versnað og hann hefur verið óvilj­ugur að splæsa eins og keppi­nautar hans. Yngri aðdá­endur þekkja ekk­ert annað en Arsenal undir Wenger og margir eru orðnir þreyttir. Það er þó ótrú­legur árangur að enda aldrei neðar en í fjórða sæti í heila tvo ára­tugi.

2. José Mourinho

Chelsea (2004-2007 og 2013-2015), Manchester United (2016-)

Mourinho kom inn í enska bolt­ann með látum sum­arið 2004 eftir að hafa unnið meist­ara­deild­ina með Porto. Á blaða­manna­fundi sagði hann: „Ég held að ég sé sá sér­staki“, og allar götur síðan hefur hann baðað sig í sviðs­ljós­inu. Það er ekk­ert grátt svæði, sá sér­staki er annað hvort hat­aður eða elsk­aður en eng­inn getur neitað snilli hans.[links]

Á sínu fyrsta tíma­bili unnu Chelsea sinn fyrsta titil í hálfa öld, settu stiga­met og fengu aðeins á sig 15 mörk. Hvert sem hann fer sankar hann að sér titlum en stoppar þó aldrei lengi á hverjum stað. Á síð­ustu 15 árum hefur hann unnið 19 stóra bik­ara og titla.

Mourinho er ekki hug­sjóna­maður heldur er tak­mark hans að vinna… sama hvað það kostar. Hann leggur meiri áherslu á varn­ar­leik en sókn­ar­leik, er skipu­lagður en við­bragðs­fljótur og stundar miskun­ar­lausan sál­fræði­hernað. Síðustu 5 ár hafa ekki verið jafn gjöful og ára­tug­ur­inn þar á undan og hrun hans hjá Chelsea tíma­bilið 2015/2016 setti blett á feril hans. Hann er þó lík­legur til að bæta bik­urum í skáp Manchester United á kom­andi árum.

1. Alex Ferguson

Manchester United (1986-2013)

Eftir að hafa losað helj­ar­g­rip Glasgow-risanna á skoska bolt­anum með Aberdeen var Ferguson ráð­inn til Manchester United árið 1986. Fyrstu árin voru erfið og minnstu mun­aði að hann yrði rek­inn. Hann vann loks enska tit­il­inn árið 1993 á fyrsta ári úrvals­deild­ar­innar og þá hófst veldi sem leið ekki undir lok fyrr en hann sett­ist í helgan stein 20 árum síðar.

Þegar upp var staðið vann hann 13 deild­ar­titla, 5 bik­ara, 4 deild­ar­bik­ara, 2 Evr­ópu­meist­aratitla og margt fleira. Eftir 1993 end­aði liðið aldrei neðar en í þriðja sæti í deild­inni og 11 sinnum var Ferguson val­inn knatt­spyrnu­stjóri árs­ins. Ferguson byggði liðið upp frá grunni og tók áhættur með að leyfa yngri leik­mönnum að spreyta sig. Hann gerði miklar kröfur til leik­manna og hélt járnaga á lið­inu. Lyk­il­at­riði var að stjórna hrað­anum í leiknum og þora að sækja fram og vinna.

Á seinni hluta fer­ils­ins reiddu Manchester United sig meira á að kaupa alþjóð­legar stór­stjörnur á meðan ung­linga­starfið versn­aði. Ferguson náði þó ávallt, ólíkt eft­ir­mönnum hans, að ná því allra besta út úr leik­mönnum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár