Mynd: Birgir Þór Harðarson

Látum hann hafa boltann

Gylfi Þór Sig­urðs­son, 27 ára gam­all Hafn­firð­ingur, er kom­inn í hóp allra bestu leik­manna sem Ísland hefur átt. Líklega hefur eng­inn leik­maður í sög­unni spilað jafn vel með lands­lið­inu.

Áður en lengra er haldið er best að segja frá stöð­unni eins og hún er. Íslenska karla­lands­liðið komst í 8 liða úrslit á EM í Frakk­landi með sögu­legri frammi­stöðu og er nú í 2. sæti á eftir Króötum í riðl­inum, eftir fimm leiki. Farmiði á HM í Rúss­landi 2018 er aug­ljóst mark­mið. Nú hefur and­legri hindrun verið rutt úr vegi. Þetta er ekki draumur lengur, eftir að liðið komst á EM og spil­aði þar stór­kost­lega. Þetta er hægt þó margt þurfi að ganga upp.

Við eigum okkar stjórnanda

Það má gleðj­ast yfir mörgu í lands­lið­inu, en það er eitt sem gleður mig meira en annað þessi miss­erin. Það er sú stað­reynd að Ísland á orðið leik­mann sem getur stjórnað ferð­inni (stundum talað um dictator - í merk­ing­unni mað­ur­inn sem stjórnar ferð­inni). Gylfi Þór Sig­urðs­son er án nokk­urs vafa besti lands­liðs­maður sem Ísland hefur átt. Það er alveg óhætt að full­yrða það, þar sem hann hefur verið mið­punkt­ur­inn í algjörri kúvend­ingu á lands­lið­inu.

Hann er mað­ur­inn sem stjórnar ferð­inni og leiðir liðið með gæðum sínum og yfir­ferð. Hann er mað­ur­inn sem lands­liðið leitar til, svo til alltaf. Frammi­staða hans þessa dag­ana hlýtur að setja hann í hóp bestu miðju­manna Evrópu.

Töl­fræðin með félags­lið­inu, Swansea City, er betri en hjá flestum öðrum (11 stoðsend­ingar og 9 mörk af miðj­unni, það sem af er), en það er frammi­staðan með Íslandi, horft yfir síð­ustu 5 árin eða svo, sem fleytir honum inn á sviðið með þeim allra bestu. Með fullri virð­ingu fyrir öllum hinum leik­mönnum Íslands, sem mynda sterka liðs­heild, þá hefur verið hrein unun að fylgj­ast með Gylfa verða að þessum leik­manni sem hann er nú orð­inn.

Í baráttu við leikmenn Man. Utd.
Í bar­áttu við leik­menn Man. Utd.

Gaman að sjá til þeirra sem stjórna

Í gegnum tíð­ina hef ég haft gaman af því að fylgj­ast með leik­mönnum sem eru það góðir í fót­bolta, að þeir geta stjórnað og búa yfir þeim eig­in­leikum að „geta tekið leik­ina til sín“, eins og Arnór Guðjohn­sen sagði einu sinni við mig í við­tali. Hann var þá að lýsa þeirri lífs­reynslu þegar hann fylgd­ist með Diego Maradona setja á svið sýn­ingu í Munchen, vorið 1989, þegar Napoli og FC Bayern átt­ust við í und­an­úr­slitum UEFA keppn­innar. Argentíska goð­sögn­ina var þá allt í öllu, færði sig úr einni stöðu í aðra, og „tók leik­inn til sín“ og stjórn­aði ferð­inni. Arnór sat upp í stúku og fylgd­ist með.

Þetta eru ekki alltaf miðju­menn, en oft er sú raunin. Marga má nefna til sög­unnar. Af Íslend­ingum er Ásgeir Sig­ur­vins­son lík­lega sá sem helst má nefna, en Guðjohn­sen feðgarnir Arnór og Eiður Smári koma líka upp í hug­ann. Þeir voru leið­togar á vell­inum hvor með sínum hætti.

Enn þann dag í dag er frammi­staða Eiðs Smára í fyrri hálf­leik gegn Króötum, 3. sept­em­ber 2005, í fersku minni mínu. Þá var hann í stuði og það héldu honum engin bönd. Frábær í sam­spili fram­ar­lega á vell­inum, og skor­aði gott mark á 24. mín­útu leiks­ins. Staðan var 1-0 í hálf­leik, en í seinni hálf­leik sýndu Króatar mátt sinn og unnu 1-3.

Í stór­leiknum sem framundan er í júní, í toppslagnum í und­ankeppni HM, má ekki missa ein­beit­ing­una eitt augna­blik því Króatar eru ann­ál­aðir fyrir gæði sín og ástríðu­fullan leik.

Sé mið tekið af síð­ustu mán­uðum þá er ólík­legt annað en að Gylfi mæti til­bú­inn til leiks, ein­beittur og fullur sjálfs­traust. Hann getur mætt hverjum sem er, haldið bolt­anum og fengið liðs­fé­lag­ana til að blómstra. Samvinna hans og Arons Einars Gunn­ars­sonar, fyr­ir­lið­ans frá Þór á Akureyri, hefur verið aðdá­un­ar­verð.

Gefum boltann á Gylfa

Didier Deschamps, fyr­ir­liði Frakka á HM 1998 og lands­liðs­þjálf­ari nú, lýsti hinu stór­kost­lega franska liði sem vann HM á heima­velli eitt sinn þannig, að Frakkar hefðu búið við þann munað að geta alltaf sent bolt­ann á Zinedine Zidane. Þá var vand­inn leystur.

Gylfi er eins og okkar Zidane. Fyrir nokkrum árum hefði svona lík­ing eflaust verið álitin barna­leg en þannig er það ekki núna. Árang­ur­inn hefur verið með ólík­indum, eins og við þekkjum öll (og skulum ekki þreyt­ast á að minna okkur á!), og stöð­ug­leik­inn í spila­mennsku Gylfa setur hann í fámennan hóp frá­bærra leik­manna sem eru með þræð­ina í hendi sér þegar leik­ur­inn er í gangi.

Kúnstin að treysta mönnum

Aðeins að öðru, ekki óskyldu þó. Í bókum Alex Ferguson um feril hans, Managing My Life (1999), Alex Ferguson (2013) og Leading (2015) þá fjallar Ferguson - frá ýmsum hliðum - um þá kúnst að stjórna íþrótta­fólki með mis­mun­andi styrk­leika og veik­leika og reyna að fá lið til að ná árangri.

Ólíkt því sem ég hafði gert mér grein fyrir, fyrir lestur þess­ara bóka, þá beitti Ferguson þaul­skipu­lögðum aðferðum í bland við til­finn­ingu og mann­lega næmni. Hann gerði miklar kröfur til allra, not­aði gögn á undan flestum örðum knatt­spyrnu­stjórum á Englandi og var ann­ál­aður fyrir ein­staka hæfi­leika við að halda virð­ingu leik­manna og ólíkra karakt­era.

Hann tal­aði til þeirra í liðs­ræðum, með því að fá þá til að hugsa hvað þeir væru búnir að ná langt og hvað það væru mikil for­rétt­indi fyrir þá að spila fyrir Man. Utd. Þegar þess þurfti þá tók hann „hár­þurrk­una“ á leik­menn, en það gerð­ist sárasjaldan, að hans sögn. Það var frekar þannig að leik­menn ótt­uð­ust að hann myndi reið­ast, ef þeir stæðu sig ekki, og það var nóg til þess að þeir lögðu sig fram um að standa sig.

En eitt ein­kenndi hann umfram annað; hann var afar næmur á hæfi­leika leik­manna og bar mikla virð­ingu fyrir þeim, óháð öllu öðru. Sér­stak­lega átti þetta við um leik­menn sem voru góðir í að stjórna leikjum, bæði fram­ar­lega og aft­ar­lega á vell­inum. Hann treysti þeim og lét þá finna fyrir því.

Einn af þeim mönnum sem Ferguson átti sér­stakt sam­band við var franska ólík­inda­tólið Eric Cantona, en hann hætti hjá Man. Utd. svo til upp úr þurru, aðeins 32 ára, eftir magn­aðan sex ára feril hjá félag­inu. 

Í nýj­ustu bók sinni, Leading, sem hann skrifar sam­eig­in­lega með Michael Moritz, birtir hann í heild sinni bréfið sem hann sendi til Cantona þegar hann hætti en í því segir hann að hann hafi „alltaf vonað að hann kæmi aftur á æfinga­svæðið“ þar sem hann gæti haldið áfram að miðla „snilld“ sinni til leik­manna. Cantona hafði eig­in­leika sem voru nær alveg á skjön við þær kröfur sem Ferguson gerði til allra sinna leik­manna þegar kom að aga og dugn­aði. Hann var með óút­reikn­an­legt skap, fékk oft glóru­laus rauð spjöld sem settu liðið í vanda, sinnti stundum varn­ar­vinnu lítið og fór sínar eigin leiðir. 

En hæfi­leikar hans fólust ekki síst ein­stöku sjálfs­trausti, leikskiln­ingi og eig­in­leikum til að hrífa aðra með sér. Hann segir í bók sinni að aðeins fjórir leik­menn hjá Man. Utd. á 26 ára ferli hans sem knatt­spyrnu­stjóri nái því að telj­ast til heimsklassa leik­manna. Það séu Paul Scholes, Cristiano Ronaldo, Ryan Giggs og áður­nefndur Cantona.

Ferguson byggði upp sjálfs­traust í sókn­ar­leik liðs­ins í kringum Cantona, og gaf yngri leik­mönnum fyr­ir­mæli um að reyna að koma bolt­anum á hann og finna glufur á vörnum and­stæð­ing­ana. Cantona varð af þessum ástæðum eins konar leik­stjórn­andi hjá Man. Utd., mað­ur­inn sem leik­menn leit­uðu til og fóru ósjálfrátt að búast við að myndi leysa úr vanda­mál­unum.

Þó að mörgu leyti sé mjög ólíku saman að jafna, þá birt­ist Gylfi manni stundum í svip­uðu hlut­verki, aftar á vell­inum, þegar Ísland er að spila. Svo lengi sem bolt­inn kemst til hans, þá eru líkur til þess að eitt­hvað jákvætt ger­ist hjá íslenska lands­lið­inu. Og vegna þess hve dug­legur og agaður hann er - þvert á það sem finna mátti hjá snill­ingnum Cantona - þá kemst bolt­inn oft í fætur hans og þaðan inn á hættu­svæðin.

Bless­un­ar­lega er Gylfi ólík­legur til að ráð­ast á áhorf­endur, tækla leik­menn full­kom­lega að óþörfu með báðum fótum eða þaðan af verra, eins og ein­kenndi Cantona oft á tíðum, en það má finna sam­svörun í þeim tveimur í gegnum snilld­ina og hvernig hún gerði þá að leið­togum. Hún fer ekki fram­hjá neinum og hún ræður oftar en ekki úrslitum.

Fyrirmyndin sem íþróttahreyfingin þarf

Allir leik­menn hafa sína kosti og galla, en það verður að telj­ast ein­stök lukka fyrir íþrótta­hreyf­ing­una á Íslandi að íslenska lands­liðið sé með leik­mann í far­ar­broddi eins og Gylfa. Hann er góð fyr­ir­mynd yngri leik­manna, hafnar vímu­efnum af öllu tagi alfarið, æfir meira en flestir aðrir, og hefur frá blautu barns­beini stefnt á það að upp­lifa drauma sína. Það vilja ekki allir verða atvinnu­menn í fót­bolta, en Gylfi vildi það og kaus að gefa sig allan í verk­efnið, eins og hann hefur lýst í við­tölum. Sam­an­lagt sendir þetta jákvæð og góð skila­boð til ung­menna. Það er dýr­mætt.

Það er ekki hægt að þakka gervi­gras­höllum fyrir það að hann sé að standa sig vel, nema þá að litlu leyti. Hug­ar­farið og þrot­lausar æfingar - í bland við mikla hæfi­leika vita­skuld - eru alveg örugg­lega nær­tæk­asta skýr­ingin á því hversu frá­bær leik­maður hann er orð­inn.

Umfram allt eigum við Íslend­ingar að njóta þess að fylgj­ast með Gylfa í leikjum með Íslandi, næstu árin, því það er eflaust langt í að við­líka leik­maður komi fram í okkar litla, dásam­lega og fámenna landi. Maður sem er með þræð­ina í hendi sér og leik­menn láta hafa bolt­ann um leið og færi gefst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár