Er Robert Huth besti fótboltaleikmaður í heimi?

Leicester City er átta leikjum frá því að verða Eng­lands­meist­ari í knatt­spyrnu. Fyrir rúmu ári var liðið í neðsta sæti ensku úrvalds­deild­ar­innar. Hvað gerð­ist? Robert Huth gerð­ist.

Robert Huth sýnir að hann sé bestur í heimi.
Robert Huth sýnir að hann sé bestur í heimi.

Í jan­úar 2015 var staða Leicester City í ensku úrvalds­deild­inni ekki beysin. Liðið var í botns­æti deild­ar­innar með 17 stig eftir 23 leiki. Nær óheyrt var að lið næði að bjarga sér frá falli við slíkar aðstæður.

Mörg lið fara á taugum við slíkar aðstæður og eyða um efni fram í leik­menn sem þau binda vonir við að bjargi sér frá falli. Gott dæmi um það var Newcastle United, sem eyddi 28,5 millj­ónum punda í fjóra leik­menn í síð­asta félags­skipta­glugga, en er nú nýbúið að reka knatt­spyrnu­stjór­ann sinn og situr enn í fall­sæti.

Stóra vanda­málið hjá Leicester City, sem var þá stýrt af hinum harð­gerða Nigel Pearson, virt­ist vera að liðið væri ekki að skora nægi­lega mikið af mörkum. Menn eins og Riyad Mahrez, Jamie Vardy og Leonardo Ulloa voru ekki að skila sínu. Því tók Vichai Srivadd­hanaprabha, hinn tælenski eig­andi Leicester City, upp veskið og snar­aði út rúm­lega níu millj­ónum punda fyrir króat­íska sókn­ar­mann­inn Andrej Kramaric, sem var keyptur frá FC Rijeka. Um var að ræða dýrasta leik­mann sem liðið hefur nokkru sinni keypt. Sá hefur náð að skora heil tvö mörk fyrir Leicester City frá því að hann var keyptur og ein­ungis spilað 15 leiki. Kramaric er nú á láni hjá 1899 Hof­fen­heim í þýsku Bundeslig­unni. Með öðrum orðum þá hefur hann ekki leikið neitt hlut­verk sem máli skiptir hjá Leicester City síðan að hann var keyptur þangað.

Tveir aðrir leik­menn gengu til liðs við Leicester City í jan­ú­ar­glugg­anum 2015. Hin aldni Mark Schwarzer gerð­ist vara­mark­vörður Kasper Schmeichel og rúm­lega þrí­tugur, hávax­inn og hægur þýskur mið­vörður, sem hafði spilað víða og ein­ungis leikið einn deild­ar­leik und­an­farið ár, kom til liðs­ins að láni. Hann heitir Robert Huth.

Þýskur landsliðsmaður endar í ofbeldisliði

Huth þótti gríð­ar­legt efni á sínum tíma og var fengin frá Þýska­landi til Chelsea ungur að aldri þar sem hann spil­aði 42 sinnum áður en hann var seldur til Middlesbrough árið 2006. Sá sem gaf honum tæki­færið hjá Chelsea, og stýrði honum í gegnum fyrstu skref fer­il­is­ins, var Ítalinn Claudio Ranieri. Þeir áttu eftir að vinna aftur saman síðar, líkt og frægt er orðið. Huth var á þessum árum þýskur lands­liðs­maður en eftir að Middlesbrough féll árið 2009 var hann seldur til Stoke City. Á því ári lék Huth líka sinn síð­asta lands­leik, en þeir hafa alls verið 19 fram til þessa.

Huth pass­aði vel inn hjá ofbeld­is­fullu liði Stoke undir stjórn Tony Pulis. Það var þrennt sem hægt var að slá föstu um Stoke-lið þess tíma: það spil­aði mjög varn­ar­sinnað, var mjög gróft og treysti að mestu á furðu­lega löng inn­köst frá Rory Delap eða föst leikatriði til að skora flest mörk sem liðið skor­aði. 

Þessu átti öllu að breyta með komu Mark Hughes til Stoke. Liðið átti að verða „betra“ knatt­spyrnu­lið. Huth hélt þó sæti sínu að mestu þar til að hann meidd­ist illa á hné í nóv­em­ber 2013 og spil­aði ekki deild­ar­leik í meira en ár í kjöl­farið.

Hann var kom­inn í erf­iða stöðu. Gerð hans hent­aði ekki þeirri fram­tíð­ar­sýn sem Hughes hafði hjá Stoke, hann var ekki í neinni alvöru leikæf­ingu eftir að hafa verið meiddur meira og minna í heilt ár og það var ekki eins og að lið stæðu í röðum eftir því að kaupa rúm­lega þrí­tugan leik­mann sem þannig áraði hjá. Það var því kær­komið tæki­færi fyrir Huth þegar neðsta lið deild­ar­innar sótt­ist eftir kröftum hans á síð­asta degi félaga­skipta­glugg­ans snemma árs 2015. Og sú ákvörðun, að ganga til liðs við Leicester City, átti eftir að end­ur­vekja feril hans á hátt sem varla nokkur maður trúði að væri mögu­legt.

Skandall og „fiktarinn“ sem tapaði fyrir Færeyjum

Þrátt fyrir að Leicester City hafi tapað fyrsta leiknum sem Huth lék – 2-1 á móti Arsenal – þá fór liðið á ótrú­legt skrið undir lok tíma­bils­ins og vann sjö af síð­ustu níu leikjum sínum.

Sumarið hjá Leicester City varð síðan litað af hneyksl­is­málum eftir að þrír ungir leik­menn liðs­ins urðu sér, og félag­inu, til skammar í æfing­ar­ferð sem farin var til Tælands. Menn­irnir þrír tóku kyns­vall sem þeir áttu með þremur tælenskum stúlkum upp á mynd­band. Á því heyr­ast þeir tala afar niðr­andi um stúlk­urnar og sýndu meðal ann­ars af sér fyr­ir­lit­lega kyn­þátt­ar­for­dóma í þeirra garð. Ljóst var að tælenskur eig­andi félags­ins myndi ekki taka þessu þegj­andi og hljóða­laust. Og það gerði stöð­una enn við­kvæm­ari að einn ungu leik­mann­anna sem tók þátt í athæf­inu var James Pearson, sonur knatt­spyrnu­stjór­ans Nigel Pearson.

Nigel Pearson var þegar kom­inn á hálan ís hjá eig­endum félags­ins þegar atvikið átti sér stað. Hann hafði í raun verið rekin fyrr á árinu 2015 en sá brott­rekstur var síðar dreg­inn til baka. Auk þess þótti við­mót hans og hegðun gagn­vart blaða­mönnum og stuðn­ings­mönnum ekki til fyr­ir­myndar. Pearson hafði nefni­lega kallað blaða­mann sem spurði hann gagn­rýnnar spurn­ingar strút og sagt við stuðn­ings­mann sem hafði látið Pearson heyra það að hann ætti að „fuck off and die“. Fyrir seinna atvikið fékk Pearson leik­bann og sekt.

En atvikið í Tælandi fyllti mæl­inn og þrátt fyrir að hafa bjargað Leicester City á ævin­týra­legan hátt var Pearson rek­inn.

Leikmenn spútnikliðs Leicester fagna marki gegn Manchester City.
Leikmenn spútnikliðs Leicester fagna marki gegn Manchester City.

Það er ljóst að eft­ir­maður hans kveikti ekki í mörgum stuðn­ings­mönnum liðs­ins. Ítalinn Claudio Ranieri hefur verið kall­aður „fikt­ar­inn“ (e. Tin­kerman) fyrir þá áráttu sína að vera sífellt að breyta liðs­upp­still­ingu og leik­skipu­lagi liða sinna á milli leikja. Síðasta starf sem Ranieri hafði sinnt áður en hann var ráð­inn til Leicester var lands­liðs­þjálf­ari Grikk­lands. Síðasta verk hans í því starfi var að tapa fyrir Færeyjum.

Áttu að falla en eru ellefu stigum á undan Arsenal

Það áttu því ekki margir von á því að Leicester City yrði til stór­ræðna á þessu tíma­bili. Raunar spáðu flestir sér­fræð­ingar ensku pressunnar þeim botns­æt­inu í deild­inni. Það hafði eng­inn trú á þessum leik­mönnum og það hafði eng­inn trú á Ranieri. En nú, þegar átta leikir eru eftir, situr liðið í efsta sæti deild­ar­innar með fimm stiga for­skot á Totten­ham og ell­efu stiga for­skot á Arsenal, sem situr í þriðja sæti. Liðið hefur ein­ungis tapað þremur leikjum á þessum tíma­bili. Á blaði á það ekki erf­ið­ustu leik­ina eftir. Fjórir heima­leikir gegn Southampton, West Ham Swansea, og Everton. Úti­leikir gegn Crystal Palace (sem er slakasta lið deild­ar­innar það sem af er ári), Sund­er­land (sem er í bull­andi fall­bar­áttu), Manchester United og Chelsea.

Það eru helst síð­ustu þrír leikir tíma­bils­ins, gegn Manchester United, Everton og Chelsea, sem eru taldir af sér­fræð­ing­unum að gætu orðið ein­hvers konar ban­ana­hýði sem liðið gæti runnið til á.

Liðið virkjað

Þegar Robert Huth kom til Leicester City voru margir þeirra leik­manna sem nú leika lyk­il­hlut­verk hjá lið­inu þegar komnir þangað. Jamie Vardy, marka­hæsti leik­manni deild­ar­innar, var ekk­ert að skora. Riyad Mahrez, sem þykir jafn­vel lík­legur til að verða val­inn bestur á þessu tíma­bili, var enn algjör­lega óþekktur leik­maður sem hafði ekki náð að festa sig í sessi. Kasper Schmeicel var enn þekkt­astur fyrir að vera sonur Peters og Daniel Drinkwater komst sjaldn­ast í frétt­irnar nema þegar verið var að gera grín að skrýtnum nöfnum knatt­spyrnu­leik­manna. Aðal­hetja Leicester City á þessum tíma var Esteban Cambiasso, argentíski miðju­mað­ur­inn sem þá var að verða 35 ára gam­all. Mark Albrighton var efni­legi leik­mað­ur­inn sem hafði aldrei ná að springa út. Danny Simpson og Wes Morgan voru ein­fald­lega dæmdir sem allt of daprir leik­menn til að spila í efstu deild.

Við­bæt­urnar síð­asta sumar voru ekki þess eðlis að þær hafi ollið mik­illi spennu. Varn­ar­miðju­buffið N´Golo Kante var keyptur í stað Cambiasso, sem fór til Grikk­lands af öllum stöðum til að spila meist­ara­deild­ar­fót­bolta, og hefur verið stór­kost­legur. Japaninn Shinji Okazaki varð dýr­ustu kaup félags­ins í þeim félaga­skipta­glugga þegar hann kom frá Mainz. Aust­ur­rík­is­mað­ur­inn Christian Fuchs kom loks frítt frá Schalke til að leika í vinstri bak­varð­ar­stöð­unni.

Leicester City leikur ekki knatt­spyrnu sem snýst um að halda bolt­anum og byggja upp spil. Liðið byggir sína leik­á­ætlun á því að verj­ast gíf­ur­lega skipu­lega, nýta sér mis­tök and­stæð­inga sinna og refsa þeim hratt. Og með því að skora úr föstum leikatriðum. Robert Huth leikur lyk­il­hlut­verk í þessu plani. Hann, félagar hans þrír í vörn­inni með þá Drinkwater/Kante fyrir framan sig og Schmeichel fyrir aftan, eru grunn­ur­inn sem hinir hröðu sókn­ar­menn liðs­ins blómstra á.

Barry Lineker: Fucking brill

Það er ljóst að kapp­hlaupið að enska titl­inum er nú á milli tveggja liða, Leicester City og Totten­ham. Of langt er í liðin fyrir neðan til að þau eigi mögu­leika úr þessu. Og það er eitt­hvað ótrú­lega magnað við þá stöðu, líkt og Gary Lineker skrif­aði um í pistli sem birt­ist á The Guardian á sunnu­dag, og var óvænt stór­skemmti­legur.

Lineker er fæddur og upp­al­inn í Leicester og harður stuðn­ings­maður liðs­ins. Hann sá liðið tapa í bik­ar­úr­slitum árið 1969 þegar hann var átta ára og grét alla leið­ina heim. Pabbi hans, afi og þrír synir eru, eða voru, allir eld­heitir stuðn­ings­menn. Lineker bjarg­aði meira að segja lið­inu frá greiðslu­þroti fyrir nokkrum árum ásamt nokkrum stuðn­ings­mönnum og vinum sem höfðu sterkar taugar til félags­ins. En hann segir í pistl­inum að ekk­ert sem hafi gerst fyrir hann í knatt­spyrnu – og Lineker hefur orðið marka­hæstur á heims­meist­ara­móti – sé hægt að bera saman við það sem nú er að ger­ast hjá Leicester City. „Hlutir eins og þessir ger­ast ein­fald­lega ekki fyrir félög eins og mitt,“ segir Lineker og seg­ist aldrei hafa óskað neins jafn heitt og að Leicester haldi dampi og vinni tit­il­inn. Hann segir að til­finn­ingin sem knatt­spyrnu­á­huga­menn út um allan heim fái vegna þessa - að litla óspenn­andi liðið sem allir héldu að myndu falla en eru nú að vinna – megi lýsa með tísti sem pabbi hans, Barry Lineker, setti inn í febr­úar:

Lineker telur upp allt það sem hefur gengið upp hjá Leicester til að vera í þeirri stöðu sem þeir eru. Alla leik­menn­ina sem hafa lagt sitt að mörkum og blómstrað umfram allar vænt­ingar. En að hans mati er undra­verð­asti hluti liðs­ins vörnin. Sam­an­safn knatt­spyrnu­legra far­ands­verka­manna (e. journeymen) sem hafi náð saman, náð að tengj­ast og búa til hug­ar­far Gandálfs sem útlegst svona: Þú skalt ekki kom­ast fram­hjá okkur (e. thou shalt not pass).

Þar leikur þýska tröllið Robert Huth, sem umbreytti Leicester City úr léleg­asta liði ensku úrvalds­deild­ar­innar í það besta, algjört lyk­il­hlut­verk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár