Búist við 25 prósenta fjölgun kvenna í breska þinginu - verða samt bara 30 prósent

Hlutfall kvenna í breska þing­inu mun lík­lega batna tals­vert í kosn­ing­unum í næstu viku, ef marka má kosn­inga­spá breska blaðs­ins Guardian. Samkvæmt henni munu konur sigra í 198 af þeim 650 ein­menn­ings­kjör­dæmum sem eru í Bret­landi. Ef þetta gengur eftir fjölgar konum í þing­inu um fjórð­ung miðað við þetta kjör­tíma­bil.

Fjölg­unin myndi nema 50 þing­konum, en 148 konur sátu á þingi á síð­asta kjör­tíma­bili. Þrátt fyrir þessa fjölgun yrðu konur aðeins 30 pró­sent þing­manna. Á kjör­tíma­bil­inu sem er að ljúka er hlut­fall kvenna 23 pró­sent.

Enginn flokkur nálægt jöfnum kynjahlutföllum meðal frambjóðenda


Karlar eru í miklum meiri­hluta þeirra sem eru í fram­boði til þing­kosn­ing­anna. 74 pró­sent allra fram­bjóð­end­anna eru karlar, og 26 pró­sent konur. 650 kjör­dæmi eru í Bret­landi og í 102 þeirra er engin kona í fram­boði.

Enginn flokk­anna í Bret­landi kemst nálægt því að bjóða fram jafnt hlut­fall karla og kvenna til þing­kosn­ing­anna í næstu viku. Flokk­ur­inn sem kemst næst því eru Græn­ingjar, en 37 pró­sent þeirra fram­bjóð­enda eru konur. 36 pró­sent fram­bjóð­enda Skosks þjóð­ar­flokks­ins eru konur. Hjá Verka­manna­flokknum eru 34 pró­sent fram­bjóð­enda konur, en hjá öðrum flokkum er hlut­fallið undir þrjá­tíu pró­sentum. Stjórn­ar­flokk­arnir tveir, Íhalds­flokk­ur­inn og Frjáls­lyndir demókratar, eru með karla í tæp­lega 75 pró­sentum sæta. Hjá velska flokknum Plaid Cymru er fjórð­ungur fram­bjóð­enda konur en Breski sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn UKIP rekur lest­ina, aðeins 13 pró­sent fram­bjóð­enda eru konur.

Verkamannaflokkurinn með hæst hlutfall


Miðað við kosn­inga­spána kæm­ist Verka­manna­flokk­ur­inn næst því að vera með jöfn hlut­föll karla og kvenna í þing­flokki sínum. Samkvæmt spá Guardian verða 44 pró­sent þing­manna flokks­ins konur. Hlut­fallið verður 35 pró­sent hjá Skoska þjóð­ar­flokknum, 20 pró­sent hjá Íhalds­flokknum og fjögur pró­sent hjá Frjáls­lyndum demókrötum.

Aukn­ingin hjá Verka­manna­flokknum nemur tíu pró­sentum og hjá Íhalds­flokknum fjölgar konum um fjögur pró­sent. Frjáls­lyndir demókratar voru með lægsta hlut­fall kvenna á síð­asta kjör­tíma­bili, fjórtán pró­sent. Nú þegar flokk­ur­inn stendur frammi fyrir því að tapa nærri helm­ingi sæta sinna er útlit fyrir að aðeins ein kona verði í þing­flokknum, á móti 26 körlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár