Kristján Þór ætlar ekki fram í næstu kosningum

Óvin­sæl­asti ráð­herra lands­ins ætlar að hætta á þingi. Hann segir umræð­una um sjáv­ar­út­veg „því miður oft lit­ast af van­þekk­ingu eða for­dómum“.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, mun ekki fara fram í þing­kosn­ing­unum í haust. Hann hefur verið virkur í stjórn­málum í á fjórða ára­tug, fyrst sveit­ar­stjórn­ar­málum og síðar í lands­málum. Hann er sem stendur fyrsti þing­maður síns kjör­dæmis. Frá þess­ari ákvörðun greinir Kristján Þór í við­tali við Morg­un­blaðið í dag en við­mæl­endur Kjarnans innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa síð­ustu mán­uði gengið út frá því að þetta yrði nið­ur­staða Krist­jáns Þórs. Hann er eini sitj­andi ráð­herr­ann sem mun ekki verða í fram­boði 25. sept­em­ber næst­kom­andi, þegar kosið verður nýtt Alþingi.

[links]Í nýlegri könnun sem Maskína gerði fyrir frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar kom fram að Kristján Þór er langóvin­sæl­asti ráð­herra lands­ins. Alls sögð­ust 64 pró­sent aðspurðra verða óánægðir með störf hans en sá sem kom næstur á eftir honum hvað ónægju varðar, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, mæld­ist með 43 pró­sent óánægju. Einungis níu pró­sent lands­manna sögð­ust vera ánægðir með störf Krist­jáns Þórs. Það er tæp­lega einni þriðji af þeirri ánægju sem mæld­ist hjá þeim ráð­herra sem næst minnst ánægja mæld­ist með, en 28 pró­sent sögð­ust vera ánægð með störf Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, umhverf­is­ráð­herra og vara­for­manns Vinstri grænna.

Kristján Þór hefur verið mikið í eld­lín­unni á kjör­tíma­bil­inu, meðal ann­ars vegna náina tengsla sinna við sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherja, sem er til rann­sóknar hér­lendis, í Namibíu og Noregi vegna gruns um að það hafi framið skatta­laga­brot, pen­inga­þvætti og greitt mútur fyrir aðgang að kvóta.

Þegar Krist­ján Þór kom fyrir stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd vegna þeirra tengsla í jan­úar 2020, nokkrum mán­uðum eftir að Sam­herj­a­málið kom upp, sagði hann að það væri erfitt að greina á milli þess hvenær maður væri að tala við vin og hvenær maður væri að tala við for­svar­s­­mann fyr­ir­tæk­­is. Þetta væri einn og sami mað­­ur­inn. Þessi orð lét hann falla þegar ráð­herr­ann var spurður út í sím­tal sem hann átti við Þor­­stein Má Bald­vins­son, for­stjóra og einn aðal­eig­anda Samherja, þegar mál­efni Sam­herja komust í hámæli í fyrra­haust. Það sím­tal, þar sem Krist­ján Þór spurði Þor­­stein Má meðal ann­­ars hvernig hann hefði það, hefur verið harð­­lega gagn­rýnt af mörg­um, meðal ann­­ars af þing­­mönnum stjórn­­­ar­and­­stöð­unn­­ar.

[adspot]Kristján Þór ræðir umræðu um sjáv­ar­út­veg og Samherja í við­tal­inu við Morg­un­blaðið. Þar segir hann að honum finn­ist að umræðan um sjáv­ar­út­veg sé stundum komin handan raun­veru­leik­ans. „Þetta er atvinnu­grein sem hefur alltaf skilað sínu til sam­fé­lags­ins og lagði í raun grunn­inn að vel­sæld og vel­ferð þjóð­ar­innar. Hún leggur til gríð­ar­leg verð­mæti. Við sáum eftir hrun hverju sjáv­ar­út­veg­ur­inn skilar, við sjáum það aftur núna í kór­ónu­krepp­unni að greinin heldur í horf­inu og skilar sínu inn í sam­fé­lagið. Sýnir mikla aðlög­un­ar­hæfni og um leið óum­deilda styrk­leika íslenska fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins. Hér gösla sumir fram og segja að sjáv­ar­út­veg­ur­inn skili engu í sam­eig­in­lega sjóði þegar skatta­spor sjáv­ar­út­vegs­ins er um 80 millj­arðar króna á hverju ári. Umræðan um þessa atvinnu­grein virð­ist því miður oft lit­ast af van­þekk­ingu eða for­dómum.“

Hann seg­ist ekk­ert hafa að fela varð­andi tengsl sín við Samherja og segir að það þýði ekki að velta sér upp úr gagn­rýn­inni á þau. „Ég gekk fram í því, þegar ég varð ráð­herra þess­ara mála­flokka, að draga fram upp­lýs­ingar og tengsl mín við Samherja. Ég vildi gera algjör­lega hreint fyrir mínum dyrum af því ég hef ekk­ert að fela um það. En ég stjórna ekki umræð­unni og þeir sem það kjósa geta málað upp ein­hverja mynd af and­stæð­ingi sínum sem þeir vilja að fólk trúi. Við því er fátt að gera nema benda á stað­reyndir máls­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár