Trump vill lyfjapróf fyrir síðustu kappræðurnar við Clinton

Donald Trump, fram­bjóð­andi Repúblik­ana til for­seta Banda­ríkj­anna, vill að hann og Hillary Clinton, and­stæð­ingur hans og fram­bjóð­andi Demókrata, fari í lyfja­próf fyrir síð­ustu sjón­varp­s­kapp­ræð­urnar í kosn­inga­bar­átt­unni. Þær kapp­ræður fara fram á mið­viku­dag.

Trump var á kosn­inga­fundi í New Hamps­hire þar sem hann sagði að Clinton hefði virst mjög „víruð“ og í miklu stuði þegar síð­ustu kapp­ræð­urnar hófust, en að þeim loknum hafi hún samt varla getað kom­ist í bíl sinn. „Við ættum að fara í lyfja­próf,“ sagði hann svo án þess að útskýra nokkuð frekar.

Trump er líka far­inn að tala mikið um það á ný að verið sé að svindla í kosn­ing­unum.

Líkt og greint var frá í hafa hafa tvær kon­ur til við­bótar við þær fjórar sem áður höfðu gefið sig fram, stigið fram og sakað Trump um kyn­ferð­is­lega áreitni og ósæmi­lega hegðun í garð þeirra. Trump hefur sjálfur svarað því til að þetta séu „lygar­ar" og að þær séu „óaðl­að­and­i", að því er fram kemur í umfjöllun New York Times.

Önnur þeirra sem nú hefur stigið fram, Sum­mer Zer­vos, var á meðal kepp­enda í fimmtu sjón­varps­þátta­röð­inni af Lær­lingnum (App­rent­ice), þar sem þátt­tak­endur reyndu að fá vinnu í einu af fyr­ir­tækjum Trumps. Was­hington Post greindi fyrst frá mál­inu, og veittu kon­urnar báðar við­tal vegna þess­ara ásk­ana. Hin konan heitir Kristin And­er­son og segir að Don­ald Trump hafi káfað á aft­ur­enda hennar þar sem hún þjón­aði til borðs á veit­inga­hús­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár