Ný útlán banka til fyrirtækja umfram uppgreiðslur voru um átta milljarðar í fyrra

Ný útlán til atvinnu­fyr­ir­tækja lands­ins á nýliðnu ári voru innan við tíu pró­sent þess sem þau voru árið 2019 og 1/27 af því sem þau voru árið 2018.

Íslenska banka­kerfið lán­aði atvinnu­fyr­ir­tækjum lands­ins alls sjö millj­arða króna í nýjum útlánum, að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðsl­u­m, í des­em­ber síð­ast­liðnum. Við það hækk­aði heild­ar­um­fang nýrra útlána sem veitt voru til fyr­ir­tækja á árinu 2020 veru­lega, eða upp í 7,8 millj­arða króna.

Þetta kemur fram í nýjum tölum um stöðu banka­kerf­is­ins sem Seðla­banki Íslands birti á föstu­dag.

Í októ­ber­mán­uði voru upp­greiðslur og umfram­greiðslur atvinnu­fyr­ir­tækja 16 millj­örðum krónum umfram þá upp­hæð sem bank­arnir lán­uðu út í ný útlán og í nóv­em­ber­mán­uði voru ný útlán 19 millj­ónum krónum umfram það sem var greitt upp. Staðan sner­ist hins vegar við í jóla­mán­uð­inum og útlán til atvinnu­fyr­ir­tækja tóku kipp.

Sá mán­uður var einn af fjórum mán­uðum árs­ins þar sem bank­arnir lán­uðu sem ein­hverju nemur til atvinnu­fyr­ir­tækja. Í mars voru 16,2 millj­arðar króna lán­aðir út nettó, í ágúst 12,5 millj­arðar króna og í sept­em­ber átta millj­arðar króna. Hina mán­uði árs­ins voru ný útlán annað hvort verið nei­kvæð eða hverf­and­i.

Þau voru samt sem áður langt frá því sem þau voru árið 2019, þegar heild­ar­um­fang nýrra útlána umfram upp­greiðslur og umfram­greiðslur, var 105 millj­arðar króna. Munurinn er enn meiri ef borið er saman við árið 2018, þegar bank­arnir lán­uðu tæp­lega 209 millj­arða króna í ný útlán til fyr­ir­tækja, eða 27 sinnum meira en þeir gerðu í fyrra.

Mikill samdráttur

Mik­ill vöxtur var í útlánum inn­­láns­­stofn­ana lands­ins á upp­gangs­tímum síð­­­ustu ára. Um er að ræða, að upp­i­­­stöðu, útlán sem Lands­­bank­inn, Íslands­­­banki, Arion banki og Kvika banki veita.

[adspot]Árið 2013 voru ný veitt útlán til atvinn­u­­fyr­ir­tækja 79,2 millj­­arðar króna. Ári síðar voru þeir 30 pró­­sent meiri og á árinu 2015 juk­ust þau um 52 pró­­sent. Ári síðar var heild­­ar­um­­fang nýrra útlána komið í 196,5 millj­­arða króna og hélst á því róli út árið 2018, þegar það topp­aði í 208,7 millj­­örðum króna.

Síðan þá hefur verið umtals­verður sam­­dráttur í nýjum útlán­­um. Árið 2019 voru þau 104,8 millj­­arðar króna og nán­­ast helm­ing­uð­ust á milli ára.

Í fyrra varð síðan orðið eðl­is­breyt­ing og bank­­arnir grein­i­­lega haldið að sér höndum í útlánum í þeirri heimskreppu sem nú gengur yfir.

Umfangsmiklar aðgerðir skila litlu

Seðla­­banki Íslands hefur gripið til ýmissa aðgerða vegna yfir­­stand­andi ástands sem ætti að nýt­­ast bönkum og við­­skipta­vinum þeirra. Sveiflu­­jöfn­un­­ar­­auki, við­bót­ar­kröfur á eigið fé fjár­mála­fyr­ir­tækja umfram lög­bundnar eig­in­fjár­kröf­ur, var afnumin sem losar veru­­lega um það eigið fé sem bank­­arnir þurfa að halda á og stýri­vextir voru lækk­­aðir úr 4,5 pró­­sentum niður í 0,75 pró­­sent, sem átti að skila miklu betri kjörum fyrir við­­skipta­vini banka.

Seðla­­bank­inn sagði í Fjár­­­mála­­stöð­ug­­leika­­riti sínu sem kom út í júní 2020 að vaxta­­lækk­­un­­ar­­ferlið hafi hins vegar „ekki skilað sér alveg eins vel á inn­­láns- og útláns­vexti KMB [kerf­is­lega mik­il­vægir bankar] og sér­­stak­­lega hafa vextir nýrra útlána til fyr­ir­tækja lítið lækk­­að.“

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­bank­ans ákvað að halda sveiflu­jöfn­un­ar­auk­anum á fjár­mála­fyr­ir­tæki í núll næstu þrjá mán­uði með ákvörðun sem var birt um miðjan des­em­ber. Ef mikil hætta er á þenslu getur Seðla­­bank­inn hækkað auk­ann til að koma í veg fyrir of mik­inn útlána­vöxt, en ef hætta er á sam­drætti getur bank­inn lækkað auk­ann til að efla útlána­­getu fjár­­­mála­­fyr­ir­tækj­anna.

Meiri hætta á gjaldþrotum

Fjallað var áfram um þessa þróun í nýjasta Fjár­­­mála­­stöð­ug­­leika­­riti Seðla­­banka Íslands, sem kom út í lok sept­em­ber­ síð­ast­lið­ins. Þar sagði að sam­­dráttur í inn­­­lendum skuldum fyr­ir­tækja bendi til þess að aðgengi fyr­ir­tækja að fjár­­­magni sé hugs­an­­lega tor­veld­­ara en áður, fyrst og fremst vegna auk­innar áhættu sem end­­ur­­spegl­­ast í hækk­­andi vaxta­á­lagi fyr­ir­tækja­út­­lána bank­anna. „Efna­hags­­sam­­drátt­­ur­inn og aukin óvissa vegna far­­sótt­­ar­innar hefur einnig dregið veru­­lega úr eft­ir­­spurn eftir lánum þar sem sam­hliða dregur bæði úr áhætt­u­­sækni fyr­ir­tækja og fram­­boði á arð­­bærum fjár­­­fest­ing­­ar­tæki­­fær­­um.“

Seðla­­bank­inn sagði þar að hann teldi að skuldir fyr­ir­tækja sem nýta sér lána­úr­ræði stjórn­­­valda og fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja myndi fara vax­andi. „Mörg fyr­ir­tæki hafa orðið fyrir miklum tekju­­sam­drætti og munu fara skuld­­sett­­ari inn í þann efna­hags­bata sem vænta má þegar far­­sóttin verður um garð geng­in. Áhætta fyr­ir­tækja vegna vaxta­breyt­inga og/eða tekju­­falls eykst með auk­inni skuld­­setn­ingu. Lágt vaxta­stig styður þó við skuld­­sett fyr­ir­tæki að öðru óbreyttu og eykur sjálf­­bærni skuld­­setn­ing­­ar.“

Versn­andi útlána­­gæði lána­­stofn­ana end­­ur­­spegl­ist hins vegar í breyttu áhætt­u­mati og vax­andi virð­is­rýrnun á öðrum árs­fjórð­ungi. Enn sem komið er hafi aðeins lít­ill hluti útlána kerf­is­lega mik­il­vægra banka til fyr­ir­tækja verið færður á stig 3 sam­­kvæmt IFRS-9-­­reikn­ings­skila­­stað­l­in­um, en við­­búið sé að það breyt­ist næstu mis­s­eri enda hafi orðið tvö­­­földun á kröf­u­virði útlána á stigi 2 og virð­is­rýrnun þeirra fimm­fald­­ast. „Hættan á enn frek­­ari virð­is­rýrnun og fjölgun gjald­­þrota fer vax­and­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár