Þurfum að virða fjarlægðarmörk og forðast mannfjölda út þetta ár

Sótt­varna­læknir segir okkur þurfa að stunda ítar­legt hrein­læti, virða fjar­lægð­ar­mörk og forð­ast mann­marga staði að minnsta kosti út allt þetta ár.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að þó að aðgerðum vegna far­ald­urs COVID-19 verði aflétt smám saman eftir 4. maí sé ljóst að við þurfum öll að stunda ítar­legt hrein­læti, virða fjar­lægð­ar­mörk, forð­ast mann­marga staði og vernda við­kvæma hópa að minnsta kosti út þetta ár. Aðgerðum sem í gildi eru verður aflétt í áföngum sem hver og einn getur staðið í nokkrar vikur. Ef smitum fjölgar á ný verða aðgerðir hertar aftur.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag fór Þórólfur yfir nýj­ustu tölur um útbreiðslu kór­ónu­veirunnar hér á landi. Hann sagði að óvenju fá sýni hefðu verið rann­sökuð í gær en að sýnum sem skoðuð voru hjá veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans hafi 4 pró­sent reynst jákvæð og 1 pró­sent sýna hjá Íslenskri erfða­grein­ingu.

Átta sjúk­lingar liggja á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans með COVID-19 og sex þeirra eru í önd­un­ar­vél. Tveir eru á gjör­gæslu á Akureyri en hvor­ugur þeirra er í önd­un­ar­vél.

„Ég held að það sé óhætt að segja að far­ald­ur­inn sé á nið­ur­leið eins og und­an­farna daga og að lítið sam­fé­lags­smit sé í gangi,“ sagði Þórólfur. Hann ítrek­aði þó að álagið á spít­al­ana er mjög mikið. Hápunkti þar verður ekki náð fyrr en á næstu dögum.

[adspot]

Hins vegar megi búast við smiti áfram í sam­fé­lag­inu, að það verði við­var­andi um hríð en hversu lengi er enn ómögu­legt að segja. Stór hópur sam­fé­lags­ins er lík­lega mót­tæki­legur fyrir veirunni. Ekki er enn vitað hversu stór en það mun koma í ljós í mótefna­mæl­ingum sem hefj­ast síðar í mán­uð­inum.

„Allt þetta þurfum við að hafa í huga þegar við hugsum um aðgerðir næstu mán­aða. Tryggja þarf að far­aldur fari ekki aftur á flug svo aðgerðir þurfi ekki að fara aftur á byrj­un­ar­reit.“

Takmarkanir settar á stórar samkomur í sumar

En hvað tekur við eftir fjórða maí, eftir að núver­andi sam­komu­bann fellur úr gildi? Þórólfur segir að þá hefj­ist aðgerðir sem miði að því að létta af þeim aðgerðum sem eru nú við lýði. Engin ein góð aðferð, upp­skrift, er til og því lík­legt að ríki muni aflétta sínum aðgerðum með mis­mun­andi hætti. „Þetta verður að ger­ast á til­tölu­lega löngum tíma til að vera viss um að far­aldur blossi ekki upp að nýju.“

[links]Sótt­varna­læknir mun á næstu dögum senda til­lögur til heil­brigð­is­ráð­herra um hvernig aflétta skuli aðgerð­unum í skrefum.

Þórólfur sagði að hvert skref muni taka 3-4 vikur og aflétt­ing allra aðgerða í heild því ná yfir ein­hverja mán­uði, „og yfir sum­ar­tím­ann,“ benti hann á. „Lands­menn þurfa að vera undir það búnir að tak­mark­anir verði settar á stórar sam­komur í sumar.“

Þá eru ákveðnir hlutir sem við verðum að halda áfram, sagði Þórólfur. Lands­menn eru áfram hvattir til að fram­fylgja til­mælum um ítar­legan hand­þvott og hand­sprittun. Þá eru þeir einnig hvattir til að halda áfram tveggja metra fjar­lægð­ar­mörkin, að vernda við­kvæma hópa og forð­ast mann­marga staði. „Þetta þurfum við að við­hafa út þetta ár og verður kannski við­loð­andi við sam­fé­lagið þegar að þessu verður lokið.“

Líkt og Þórólfur greindi frá í við­tali við Kjarnann nýverið er verið að skoða hvaða tak­mark­anir verði settar á komur ferða­manna hingað til lands og ferða­lög Íslend­inga erlendis til að forða því að smit ber­ist hingað aftur.

Þórólfur ítrek­aði á fund­inum að hann bindur ekki vonir við að bólu­efni muni leysa vand­ann í far­aldri þess­arar veiru. Hann telur langt í að það kom­ist í almenna notkun. „Við verðum að reiða okkur á þessar aðgerðir sem við höfum verið að nota hingað til og þær munu gegna lyk­il­hlut­verki í að koma okkur út úr þessum far­aldri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár