Búist við því að forsætisráðherra Grikklands segi af sér og boði til kosninga

Búist er við því að Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, til­kynni í kvöld að boðað verði til nýrra þing­kosn­inga í land­inu.

Tsipras situr nú á fundi með ráð­gjöfum sínum og fregnir herma að hann hygg­ist segja af sér emb­ætti og að bráða­birgða­stjórn verði mynduð sem muni stjórna land­inu fram að kosn­ingum þann 20. sept­em­ber. Rík­is­sjón­varpið í Grikk­landi segir að for­sæt­is­ráð­herr­ann hafi fundað með for­seta lands­ins í gær­kvöldi og lík­legt er talið að þeir hafi rætt um nýjar kosn­ingar.

Tonight #Tsipras is expected to resign, transitional gov't to take over, with probable date of elections Sept. 20. #Greece

— Dim Rapidis (@rapidis) August 20, 2015

#Greece on #election mode again, meeting between @atsipras and top aides started at parli­ament

— Nektaria Stamouli (@nstamouli) August 20, 2015

Tsipras er tal­inn ætla að gera þetta til að bregð­ast við upp­reisn innan stjórn­ar­flokks­ins Syriza í tengslum við neyð­ar­lána­pakk­ann sem grísk stjórn­völd sömdu um við lán­ar­drottna sína. Fyrsta greiðslan úr þessum þriðja neyð­ar­lána­pakka til Grikk­lands barst í morgun, þrettán millj­arðar evra, og Grikkir greiddu strax í kjöl­farið afborgun af láni til Seðla­banka Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár