Ein umdeildasta stífla í sögu Indlands vígð

Fram­kvæmdum á einu umdeildasta mann­virki Indlands er lokið eftir ára­tuga­vinnu. Tug­þús­undir manna hafa þurft að flytj­ast búferlum og umhverf­is­á­hrif eru geysi­mikil. Mót­mæl­endur létu sig ekki vanta á vígslu stífl­unnar.

Umhverfisverndar- og mannréttindasamtök hafa mótmælt framkvæmdum á Sardar Sarovar-stíflunni. Stíflan var vígð 56 árum eftir að hornsteinninn var lagður.
Umhverf­is­verndar- og mann­rétt­inda­sam­tök hafa mót­mælt fram­kvæmdum á Sardar Sarovar-stífl­unni. Stíflan var vígð 56 árum eftir að horn­steinn­inn var lagður. Mynd: Wiki Commons

Ein stærsta stífla Indlands, Sardar Sarovar-stíflan, var vígð sunnu­dag­inn 17. sept­em­ber eftir ára­tuga langar deilur. Stíflan hefur væg­ast sagt verið umdeild og hafa nátt­úru­verndar- og mann­rétt­inda­sam­tök verið iðin við að mót­mæla fram­kvæmd­unum. Horn­steinn stífl­unar var lagður árið 1961 en bygg­ing hennar hófst árið 1987. Síðan þá hafa oft verið uppi vanga­veltur um að hætta við hana.

For­sæt­is­ráð­herra Indlands Narendra Modi vígði stífl­una þrátt fyrir mikil mót­mæli á þessu ári og til­eink­aði hana fólk­inu á Indlandi. Hann sagði í tísti að þetta verk­efni muni vera þús­undum bænda til bóta og hjálpa til við að upp­fylla hug­sjónir fólks.

Stíflan mun veita vatni til 9.000 þorpa

Mót­mæl­endur létu sig aftur á móti ekki vanta en telja þeir að þús­undir manna muni missa lífs­við­ur­væri sitt með til­komu stífl­unnar. Stíflan mun aftur á móti veita vatni til níu þús­und þorpa í allt að þremur fylkjum; Madhya Pradesh-, Maharashtra- og Gujarat-fylkis.

Hávær­ustu mót­mæl­end­urnir eru í röðum sam­tak­anna The Narmada Bachao Andolan eða NBA en leið­togi þeirra er aðgerðasinn­inn Medha Patkar. Hún og fylg­is­menn hennar mót­mæltu vígsl­unni um helg­ina. Þegar byrjað verður að nota stífl­una mun vatns­borð hækka og telja þau að það muni setja þorp á svæð­inu í mikla hættu.

Slæmar afleiðingar sagðar verri en búist var við

And­staðan við stífl­una á rætur sínar að rekja aftur til mið­biks síð­ustu aldar. Gagn­rýnin hefur aðal­lega beinst að því hvernig farið var að fram­kvæmd­unum sjálfum og stjórn­völd verið gagn­rýnd fyrir fljót­fær og van­hugsuð vinnu­brögð.

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök hafa barist fyrir því að landið verði ósnert en einnig hafa þau barist fyrir þær þús­undir manna sem misst hafa heim­ili sín vegna stíflu­gerð­ar­innar. Slæmar afleið­ingar í Nar­ma­da­dalnum eru sagðar vega mun þyngra en þeir kostir sem stíflan var sögð hafa í upp­hafi. Telja and­stæð­ingar fram­kvæmd­anna að tekið hafi verið fram fyrir hend­urnar á fólki, upp­lýs­ingar ekki verið veittar, mis­skipt­ing gæða hefi auk­ist og svo mætti lengi telja.

Tvöfalt öflugri en Kárahnjúkavirkjun

Eins og fyrr segir hefur ýmsi­legt gengið á við bygg­ingu stífl­unnar. Henni var frestað árið 1996 en Hæsti­réttur á Indlandi úrskurð­aði þá að fram­kvæmdir þyrftu að bíða. Þeim var haldið áfram fjórum árum seinna.

Stíflan er stað­sett í Nar­ma­da­dalnum í Gujarat-fylki og er hún með stærstu stíflum heims. Stíflan sjálf er 1210 metra að lengd og 163 metra að hæð þar sem hún er hæst. Til sam­an­burðar er Kára­hnjúka­stífla 193 metra há og 700 metra löng.

Hún safnar vatni á yfir 214 kílometra svæði sem nær yfir þrjú fylki; Gujarat, Maharashtra og Madhya Pradesh. Stíflan er sögð eiga að fram­leiða allt að 1450 mega­vött af raf­magni sem er tvö­falt meira en upp­sett afl Kára­hnjúka­virkj­unar.

Alþjóðabankinn dró sig út úr framkvæmdum

Alþjóða­bank­inn leikur almennt stórt hlut­verk í stór­fram­kvæmdum á Indlandi. Hann fjár­magnar og hjálpar t.d. til við að leysa ýmis vanda­mál sem fylgja slíkum fram­kvæmdum. Þar ber að nefna þá bóta­skyldu sem fellur á ríkið þegar fólk er flutt af jörðum sínum eða úr þorpum. Tak­markið er þó að sem fæstir þurfi að þjást eða missa heim­ili sín vegna stífl­unnar.

Bankinn orðar það svo að grund­vall­ar­mark­mið í stefnu­skrá Alþjóða­bank­ans sé að ná aftur þeim lífs­gæðum og tekju­getu þeirra sem brott­fluttir eru. Mark­miðið með lán­veit­ingu fyrir Sardar Sarovar-stífl­unni var einnig að bæta hag Indverja og sjá þeim fyrir raf­magni, vatni o.s.frv. og vinna að sem hag­kvæmustum lausnum með rík­is­stjórn­inni.

Alþjóða­bank­inn dró sig aftur á móti út úr verk­efn­inu árið 1993 eftir að harð­orð skýrsla kom út þar sem fram kom að Sardar Sarovar-fram­kvæmdin væri gölluð. Sá fólks­flutn­ingur og end­ur­hæf­ing fólks­ins á vegum verk­efn­is­ins hafi ekki verið ásætt­an­legur undir þessum kring­um­stæðum og umhverf­is­á­hrif verk­efn­is­ins hafi ekki verið fylli­lega könnuð eða nógu vel staðið að þeim.

Framkvæmdum ábótavant

Nið­ur­staða skýrsl­unnar var afdrátt­ar­laus, þ.e. að þessi með­ferð á fólki og umhverfi rétt­læt­ist ekki af mik­il­vægi fram­kvæmd­anna og þá sér­stak­lega vegna þess að fólks­flutn­ing­ur­inn var stór­lega van­met­inn. Ekki voru nægar upp­lýs­ingar til staðar eða rann­sóknir gerðar, bæði hvað varðar svæðið sjálft og sjálfa stíflu­gerð­ina, áður en fram­kvæmdir hófust.

Miklu var ábóta­vant í fram­kvæmd og skipu­lagn­ingu hennar, t.d. voru raf­knúin kerfi, sem áttu að mæla vatns­magn, sett upp eftir bygg­ingu stífl­unnar og þótti það mjög vara­söm og erfið fram­kvæmd. Þó var ekki hætt við fram­kvæmd­irnar í miðjum klíðum; rík­is­stjórnin og fylk­is­stjórn Gujarat til­kynntu að lokið yrði við stífl­una og að fjár­munum yrði safnað til þess.

Umhverfisáhrif gríðarmikil

Miklum land­svæðum var sökkt við gerð stífl­unnar og mun halda áfram. Skóg­lendi og tún fara undir vatn og mikil röskun verður á dýra­lífi við svona aðstæður. Lífríki fiska raskast mikið sem hefur svo aftur áhrif á bæði dýr og menn á svæð­inu.

Einnig hefur stíflu­gerðin áhrif á far­vegi áa. Þegar hinum nátt­úru­lega far­vegi er raskað hefur það áhrif á fólk á mjög stóru svæði þannig að miklar erjur hafa skap­ast milli fylkja. Vandana Shiva, heim­spek­ingur og rit­höf­undur, hefur fjallað um þetta efni og hefur hún bent á að nán­ast allar ár á Indlandi hafi orðið að ágrein­ings­efni.

Shiva segir að árnar Sutlej, Yamuna, Ganges, Narmada, Mahanadi, Krishna og Kaveri hafi verið mið­punktur mik­illa deilna milli fylkja sem eru ósam­mála um eign­ar­hald og úthlutun vatns. Vegna mik­il­vægis vatns­ins eru deil­urnar hat­rammar og sér­stak­lega þegar svo stórar ár eiga í hlut því að afleið­ing­arnar eru miklar þegar þeim er beint úr sínum eðli­lega far­vegi með t.d. stíflu­gerð.

Hundruðir þúsundir manna þurft að flytja sig um set

Þúsundir manna hafa þegar misst heim­ili sín og segja mann­rétt­inda­sam­tök að fleiri verði heim­il­is­lausir. Fólk er neytt til að flytja og margir enda á göt­unni. Opin­berar tölur, sem til eru um þann fjölda fólks sem hefur þurft að flytja sig um set, eru 40.000 til 41.500 en þær þykja mjög fjarri sanni. Líklegra þykir að allt frá 240.000 til hálfrar millj­ónar manna hafi þurft að flytja vegna fram­kvæmd­anna.

Borið hefur á mik­illi óánægju vegna þess að lífi fólks hefur verið raskað á þennan hátt; land, sem gengið hefur milli margra ætt­liða, er horfið og mikil til­finn­inga­leg bönd, sem tengja saman fólkið og landið, rofna. Bænd­urnir hafa sumir enga aðra reynslu en að vinna á akrinum eða ann­ast búfénað. Þetta veldur því að margar fjöl­skyldur enda á göt­unni vegna þess að fyr­ir­vinnan er horfin og pen­inga­bætur end­ast ekki lengi. Þetta kemur fram í úttektum á vegum mann­rétt­inda­sam­taka.

Flutningar bitna á þeim sem minnst mega sín

Í rann­sóknum á fólks­flutn­ingum sem þessum kemur fram að þeir bitna gjarnan mest á konum og börnum. Konan verði oftar en ekki að sjá fyrir fjöl­skyldu sinni og reyn­ist það mörgum erfitt vegna þjóð­fé­lags­hátta þar sem fátækt og stétta­skipt­ing er mikil.

[quote font="0" align="right“]Hvort sem þú elskar stífl­una eða hatar, hvort sem þú vilt hana eða ekki, þá er mik­il­vægt að skilja þá fórn sem færð er[/quote]

Einnig er því haldið fram að ástandið bitni mjög illa á þeim öldr­uðu, því for­sendur fyrir að byrja nýtt líf við svo erf­iðar aðstæður eru varla til staðar. Aðstæður í nýju þorp­unum geti verið hrylli­legar, bæði vegna þess að allt of mörgum er troðið saman á lítið svæði og að matur er af skornum skammti.

Fjöldi manns hefur líka ein­fald­lega horfið, þ.e. engin skrá er yfir fólkið og eng­inn veit í raun­inni um afdrif þeirra. Mjög lík­legt þykir að margir hafi endað á götum stór­borg­anna í fátækt og örbirgð.

Arund­hati Roy, rit­höf­undur og aðgerðasinni, hefur verið ötull tals­maður mót­mæl­enda og gagn­rýnt stífl­una og fram­kvæmd­ina í heild sinni. Hún segir að hvort sem fólk elski stífl­una eða hati; hvort sem fólk vilji hana eða ekki, þá sé mik­il­vægt að skilja þá fórn sem færð er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár