„Höfum við verið með andlýðræðislega stjórnarskrá síðan 1874?“

Það er ekki and­lýð­ræði­legt að halda kosn­ingar til emb­ættis for­seta og um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá á sama tíma, segir Ólafur Þ. Harð­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði. „Höfum við verið með and­lýð­ræð­is­lega stjórn­ar­skrá síðan 1874?“ spyr hann í Morg­un­blað­inu í dag.

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, sagði við þing­setn­ingu Alþingis í vik­unni að það væri „and­stætt lýðræð­is­legu eðli beggja verk­efn­anna“ að kjósa um þau á sama tíma, og teng­ing þeirra væri „jafn­vel and­lýð­ræð­is­leg í eðli sínu.“ Þá hefðu Íslend­ingar vel efni á því að halda tvennar kosn­ingar.

„Ég get ekki séð að það sé and­lýð­ræð­is­legt að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sam­fara for­seta­kosn­ingum eða þing­kosn­ingum. Í mörgum fylkjum Banda­ríkj­anna eru haldnar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur sam­hliða þing- og for­seta­kosn­ingum og þar er öll full­trúa­deild og hluti öld­unga­deildar kjörin á sama degi og for­set­inn. Í Svíþjóð hefur verið kosið til sveit­ar­stjórna um leið og kosið er til þings. Frá fyrstu íslensku stjórn­ar­skránni 1874 til allra síð­ustu ára var bara ein leið til að breyta íslenskri stjórn­ar­skrá: þing sam­þykkti breyt­ingu, síðan voru alþing­is­kosn­ingar, og svo þurfti nýtt þing að sam­þykkja sama stjórn­ar­skrár­frum­varp óbreytt. Í seinni kosn­ing­unum voru kjós­endur sem sé bæði að kjósa þing­menn til fjög­urra eða sex ára – og kjósa um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar. Fleiri lönd hafa haft þennan hátt­inn á,“ segir Ólafur Þ. í dag.

Ólafur segir að deila megi um kosti og galla fyr­ir­komu­lags­ins. „Kost­ur­inn er sá helstur, að þetta fyr­ir­komu­lag er aukin þjón­usta við kjós­endur: gerir þeim auð­veld­ara fyrir að kjósa.“ Reynsla sýni að margar kosn­ingar hafi til­hneig­ingu til að draga úr kjör­sókn. Kostn­aður við fáar kosn­ingar sé minni en við margar, en það séu tæp­lega gild rök. Gallinn sé helst að kjós­endur þurfi að hugsa um fleiri en eitt mál.

„Auðvitað má líka segja, að sum­part sé óheppi­legt að gera miklar breyt­ingar á emb­ætti for­seta í stjórn­ar­skrá um leið og for­seti er kos­inn. En Íslend­ingar hafa margoft breytt stjórn­ar­skrár­á­kvæðum um alþing­is­kosn­ingar um leið og nýtt alþingi var kosið. Og til eru þeir, sem segja að gamla stjórn­ar­skráin hafi reynst vel – þó senni­lega séu þeir miklu fleiri sem vilja breyta henni.“

Telur í raun allar stjórnarskrárbreytingar óþarfar


Guðni Th. Jóhann­es­son, dós­ent í sagn­fræði, tjáir sig einnig um málið við Morg­un­blaðið. „Manni sýn­ist helst að for­seti telji í raun allar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá óþarfar. Það væri í sam­ræmi við fyrri orð hans þegar hann lýsti stjórn­ar­skránni frá 1944 sem listi­legri smíð, án hnökra svo nokkru næmi.“

Guðni segir að það sem þjóð­höfð­ing­inn segi, þó ekki berum orðum, sé að ef breyta eigi stjórn­ar­skránni í veiga­miklum atriðum verði að gera það áður en for­seti er kjör­inn svo að bæði for­seta­efnin og kjós­endur viti hvernig stjórn­skip­unin verði þegar skipt er um for­seta. „En hvað þýðir þetta? Taki nýr for­seti við á næsta ári hljóta kjós­endur að hafa í huga að vel megi vera að stjórn­ar­skrá verði breytt veru­lega í emb­ætt­is­tíð hennar eða hans.“

Guðni segir svo annað umhugs­un­ar­efni að sam­kvæmt núver­andi stjórn­ar­skrá láti for­set­inn ráð­herra fram­kvæma vald sitt, „eins kjána­lega og það hljómar nú í raun­veru­leika sam­tím­ans, og þessir sömu ráð­herrar hafa lýst yfir áhuga á því að kosn­ingar um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá fari fram sam­hliða for­seta­kosn­ingum. Það væri því áhuga­vert að heyra sjón­ar­mið þeirra frekar en sagn­fræð­ings­ins í þessum efnum,“ segir Guðni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár