Staðan í þinginu: Fimm dagar eftir, 82 mál í nefndum og nokkur enn ókomin í þingið

Samkvæmt starfs­á­ætlun Alþingis eru fimm heilir þing­funda­dagar eftir á þessu vor­þingi. Þrátt fyrir þennan stutta tíma sem á að vera eftir er ekki farið að semja milli stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu um þing­lok. Kjarninn fer yfir stöðu mála á þing­inu.

Auk þess­ara fimm þing­funda­daga sem eftir eru sam­kvæmt áætlun er búið að bæta við þing­fundi eftir hádegið á morgun, en morg­un­dag­ur­inn átti upp­haf­lega ekki að vera þing­funda­dagur. Eftir morg­un­dag­inn hefj­ast svo allir þing­fundir sem eftir eru klukkan 10 á morgn­anna, sem gefur meiri tíma til þing­funda­starfa á hverjum degi en oft­ast. Þrátt fyrir það virð­ist ljóst að ekki mun takast að klára störf þings­ins innan þessa ramma. Stjórn­ar­liðar hafa tjáð sig um það að áfram verði fundað, ekki síst hefur þetta heyrst á máli Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, enda á hún fjögur stór mál sem ýmist eru nýkomin inn í þingið eða eiga enn eftir að gera það.

Allar fasta­nefndir þings­ins funda í dag og fjórar munu funda aftur á morgun. Vænt­an­lega munu nefnd­irnar afgreiða þónokkur mál á þessum fundum, en 82 mál eru nú í nefndum eftir fyrstu umræðu á þing­inu. Fyrir liggur að mörg þeirra munu ekki fara úr nefndum, meðal ann­ars hefur verið til­kynnt að mál stjórn­ar­innar eins og nátt­úrupass­inn verða ekki kláruð. 23 mál hafa verið afgreidd úr nefndum og bíða ann­arrar umræðu í þing­inu og 5 mál bíða þriðju umræðu.

Þá eru ótalin málin sem búið er að boða að komi inn í þingið en hafa enn ekki litið dags­ins ljós. Tvö þess­ara mála eru eins og fyrr segir hús­næð­is­mál hús­næð­is­mála­ráð­herr­ans, sem mik­ill styr hefur staðið um und­an­farna daga. Þá hafa ráð­herrar boðað frum­vörp tengd hafta­málum, meðal ann­ars um stöð­ug­leika­skatt. Þá á eftir að koma í ljós hver aðkoma stjórn­valda að kjara­deil­unum verður, og hvernig sú aðkoma kemur þá til kasta þings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár