Ásmundur Einar svarar því ekki hvort hann las sjálfur gögnin um afskipti Braga

Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra svar­aði því ekki til hvort hann hafi séð gögnin sem umfjöllun Stund­ar­innar um mál Braga Guð­brands­sonar byggj­ast á fyrir fund með vel­ferð­ar­nefnd. Aðstoð­ar­maður ráð­herra tók við gögn­unum fyrir hans hönd.

Segist halda að hann hafi komið hreint fram
Segist halda að hann hafi komið hreint fram Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra sagði í við­tali eftir fund vel­ferð­ar­nefndar að hefði leit­ast við að bjóða nefnd­inni alla sam­vinnu sem hún vildi hvað varði mál Braga Guð­brands­sonar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra svar­aði því ekki með óyggj­andi hætti í morgun hvort hann hefði sjálfur lesið þau gögn sem umfjöllun Stund­ar­innar um afskipti Braga Guð­brands­sonar af barna­vernd­ar­máli byggir á fyrir fund­inn með vel­ferð­ar­nefnd Alþingis 28. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Í við­tali eftir opinn fund vel­ferð­ar­nefndar nú í morgun sagð­ist hann ekki hafa efn­is­legar for­sendur til að meta þær upp­lýs­ingar sem fram komu í fréttum Stund­ar­innar á föstu­dag. 

Ásmundur Einar mætti á opna fund­inn til að svara spurn­ingum nefnd­ar­manna um emb­ætt­is­færslur sínar í máli Braga Guð­brands­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu.

Tilefni fund­ar­ins er for­síðu­um­fjöllun Stund­ar­innar frá því á föstu­dag­inn þar sem greint var frá því að Bragi hefði, í sam­ráði við föður máls­að­ila í barna­vernd­ar­máli, beitt sér fyrir því að faðir, sem barna­vernd­ar­nefnd og með­ferð­ar­að­ili ótt­uð­ust að hefði brotið kyn­ferð­is­lega gegn dætrum sínum, fengi að umgang­ast þær. Þá kom fram í umfjöllun Stund­ar­innar að aðstoð­ar­maður Ásmundar, lög­fræð­ingur og skrif­stofu­stjóri hefðu tekið við gögnum um málið – sím­tals­lýs­ingu og tölvu­pósts­sam­skiptum sem Stundin birti í dag – fyrir hönd ráð­herra á fundi þann 31. jan­úar 2018. Þannig hefði Ásmundi Einari mátt vera kunn­ugt um eðli afskipta Braga Guð­brands­sonar af umræddu barna­vernd­ar­máli áður en hann mætti á fund vel­ferð­ar­nefndar þann 28. febr­úar en látið hjá líða að greina nefnd­ar­mönnum frá því sem hann vissi.

Boðar að fram fari óháð úttekt

„Ég sagði á þessum fundi að það hefðu meðal ann­ars komið fram upp­lýs­ingar í fjöl­miðlum á föstu­dag­inn og í yfir­lýs­ingum frá ein­staka máls­að­ilum. Málið hefði verið til mikið til umfjöll­unar og í því ljósi væri mjög mik­il­vægt og jákvætt að málið yrði skoðað ofan í kjöl­inn,“ sagði Ásmundur í við­tali við Stundina eftir fund­inn.

Þegar þau atriði sem Stundin greindi frá á föstu­dag bár­ust í tal sagð­ist Ásmundur ekki hafa efn­is­legar for­sendur til að meta upp­lý­is­ing­arnar og hvort þær væru réttar. „Það er það sem þarf að koma í ljós í úttekt á mál­inu.“ Þess ber að geta að á fund­inum sjálfum boð­aði Ásmundur Einar að hann hygð­ist fara fram á að óháð úttekt yrði gerð á mál­inu.

Breytingar á framboði Braga komi fram nýjar upplýsingar

Aðspurður hvort ekki hefði verið eðli­legra að slík úttekt hefði farið fram áður en ákveðið var að bjóða Braga fram sem full­trúa Íslands í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna svar­aði Ásmundur Einar því til að ráðu­neytið hefði gert úttekt á kvört­unum þriggja barna­vernd­ar­nefnda á hendur Bragar og skilað nið­ur­stöðum.

„Nið­ur­staðan var sú að Bragi Guð­brands­son hefði ekki brotið af sér í starfi. Sú nið­ur­staða lá til grund­vallar þegar ákveðið var að hann yrði boð­inn fram til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. Verði breyt­ing á þessu þá að sjálf­sögðu verða breyt­ingar á fram­boð­inu.“

Svarar ekki hvort hann hafi leynt nefndina gögnum

Aðspurður um upp­lýs­inga­gjöf sína til vel­ferð­ar­nefndar Alþingis þann 28. febr­úar, þegar ráð­herra þagði um gögnin sem hann hafði fengið afhent í gegnum aðstoð­ar­mann sinn, skrif­stofu­stjóra og lög­fræð­ing í ráðu­neyt­inu mán­uði áður, ítrek­aði Ásmundur það sem fram kom á opna fund­inum í morgun; að hann hefði boðið nefnd­inni frekara sam­tal og aðgang að upp­lýs­ingum og gögnum.

„Á þessum fundi sem hald­inn var 28. febr­úar bauð ég fram allar upp­lýs­ingar og öll gögn sem menn vildu um þetta mál. Sér­stak­lega ef menn vildu fjalla um ein­staka anga þess. Ég held að ég hafi komið hreint fram við nefnd­ina í öllu sem að þessu lýtur. Svo heyri ég ekk­ert frá nefnd­inni fyrr en kemur ítar­leg gagna­beiðni mán­uði seinna. Ég hef því leit­ast við að bjóða nefnd­inni allt það sem hún vill í þessu máli.“

„Ég held að ég hafi komið hreint fram við nefnd­ina í öllu sem að þessu lýtur“

Ásmundur bendir á að umtals­vert magn af gögnum liggi til grund­vallar vinnu í málum sem þessum. „Það er auð­vitað þannig að félags­mála­ráðu­neytið fór með eft­ir­lits­skyldu í þessu máli og ráðu­neytið sjálft var að vinna í mál­inu. Nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins var síðan auð­vitað kynnt fyrir ráð­herra og var það sem var kynnt opin­ber­lega.“ Eins og Stundin hefur áður greint frá var ráð­herra þó einnig kynntur fyrir minn­is­blöðum ráðu­neyt­is­ins um málið, meðal ann­ars minn­is­blaði um hið við­kvæma mál í Hafn­ar­firði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár