Ekki verður greitt fyrir gögnin með ferðatöskum fullum af seðlum

Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri opin­ber­aði í dag að ákvörðun hafi verið tekin um að ganga til samn­inga við mann­inn sem hefur boðið gögn um fjár­muna­eign Íslend­inga í þekktum skatta­skjólum til sölu.

Hún á ekki von á því að það verði vand­kvæðum bundið að ganga frá þeim samn­ingi, þar sem íslensk stjórn­völd hafa sam­þykkt að ganga að kröfum hans. Aðspurð hvenær hún geti búist við að fá gögnin, sem snerta alls 416 mál, segir Bryndís að það ætti að vera hægt að ganga frá því fljótt. Það verði hins vegar ekki greitt fyrir þau með ferða­töskum fullum af pen­ingum.

Fjármála- og efna­hags­mála­ráðu­neytið upp­lýsti í gær að mað­ur­inn vilji fá 150 millj­ónir króna fyrir öll gögnin, eða 2.500 evrur (375 þús­und krónur), fyrir hver mál. Mögulegt verður að kaupa ein­ungis hluta gagn­anna. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur sagt að það standi ekki upp á rík­is­stjórn­ina sem hann er í að veita þessum kaupum braut­ar­gengi.

Gögnin annars eðlis en mörg erlend stjórnvöld hafa keypt


En hvers konar gögn eru þetta? Fram hefur komið að um sé að ræða upp­lýs­ingar sem tengja Íslend­inga við félög í skatta­skjólum. Sum gagn­anna eru nokk­urra ára gömul en önnur nýlegri. Bryndís segir að gögnin séu ekki fengin úr banka eða fjár­mála­stofnun. „Þetta er svo­lítið öðru­vísi en var til dæmis í Þýska­landi, þar sem lá fyrir listi um bankainn­stæður með kenni­tölum. Það er fyr­ir­séð að, í að minnsta kosti ein­hverjum til­vikum, þá er þörf á áfram­hald­andi rann­sókn og aðgerðum.“

[caption id="attachment_13628" align="align­right" width="300"] Bryndís Krist­jáns­dóttir, skatt­rann­sókn­ar­stjóri.[/caption]

Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri.
Bryndís Krist­jáns­dóttir, skatt­rann­sókn­ar­stjóri.

Það sem gerð­ist í Þýska­landi var að stjórn­völd þar keyptu gögn um skattaund­an­skot þegna sinna sem höfðu boðið þau til sölu. Yfirvöld í Þýska­landi greiddu sam­tals 20 millj­ónir evra, um þrjá millj­arða króna, fyrir slík gögn á tíma­bil­inu 2006 til 2012. Samkvæmt frétt Der Spiegel um kaupin var ávinn­ingur þýska rík­is­ins vegna kaupanna marg­faldur, eða um tvö þús­und millj­ónir evra. Það gera um þrjú hund­ruð millj­arðar króna.

Bryndís segir að gögnin sem íslensk stjórn­völd ætla að kaupa séu ann­ars eðlis en að hún telji að for­dæmi séu fyrir því að önnur ríki hafi keypt sam­bæri­leg gögn. Hún vill hins vegar ekki segja hver for­dæmin eru en Kjarninn greindi frá því í vik­unni að dönsk stjórn­völd hafi skoðað það alvar­lega að kaupa gögn frá sama aðila og er nú að selja íslenskum stjórn­völdum gögn.

"Útilokað" að borga með ferðatösku fullri af seðlum


Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, gagn­rýndi Bryndísi og emb­ætti hennar harð­lega í við­tali við RÚV um helg­ina fyrir það hvernig haldið hafi verið á gagna­kaups­mál­inu. Sagði Bjarni að sér hafi þótt málið hafa þvælst allt of lengi hjá emb­ætt­inu og að ekki hafi allt stað­ist sem frá því hafi komið. „Eins og til dæmis þegar emb­ættið færir þær upp­lýs­ingar í ráðu­neytið að gögnin standi til boða fyrir til­tekna hlut­falls­fjár­hæð af inn­heimtum skatt­tekjum sem myndi leiða af upp­lýs­ing­unum. En eitt­hvað allt annað kemur í ljós síðar. Og auð­vitað getur það ekki komið til greina að við ætlum að fara að greiða fyrir gögn af þessum toga með ferða­töskum af seðlum til ein­hverra huldu­manna.“

Aðspurð hvort til standi að greiða mann­inum með ferða­tösku fullri af seðlum segir Bryndís að svo sé ekki. „Það held ég að sé úti­lokað.“

[caption id="attachment_8086" align="alignnone" width="1024"] Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, hefur heim­ilað emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra að kaupa gögn um eignir Íslend­inga í erlendum skatta­skjólum.[/caption]

Starfshópur um sakaruppgjöf skilar brátt skýrslu


Þetta er ekki eini angi skattsvika­mála sem verið er að afgreiða þessa dag­anna. Starfs­hópur á vegum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem hefur skoðað hvort ástæða sé til að taka upp svokölluð „Amnesty“ ákvæði í íslenskum skatta­lögum og hvort laga­heim­ildir skatta­yf­ir­valda til öfl­unar upp­lýs­inga í bar­átt­unni gegn skattsvikum, mun skila skýrslu í síð­asta lagi næst­kom­andi sunnu­dag, 15. febr­úar.

Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráðherra, hefur heimilað embætti skattrannsóknarstjóra að kaupa gögn um eignir Íslendinga í erlendum skattaskjólum.
Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, hefur heim­ilað emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra að kaupa gögn um eignir Íslend­inga í erlendum skatta­skjólum.

Í svoköll­uðu „Amnesty“ ákvæði felst að þeim sem svíkja undan skatti verði veitt eins­konar sak­ar­upp­gjöf gegn því að skila því sem þeir skutu undan skatti. Slíkt ákvæði er í lögum í mörgum nágranna­löndum Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár