Sjónum beint að flóttabörnum - minnst 10 þúsund börn týnd í Evrópu

Minnst 10 þús­und flótta­börn hafa horfið eftir að hafa komið til Evrópu að sögn evr­ópsku lög­regl­unnar Europol. Mörg eru talin vera fórn­ar­lömb mansals, enda séu skipu­lögð glæpa­sam­tök að herja á flótta­menn.

Brian Donald, yfir­maður hjá Europol, segir að fimm þús­und börn hafi horfið á Ítalíu og þús­und séu týnd í Svíþjóð. „Það er ekki fjarri lagi að segja að við séum að leita að yfir tíu þús­und börnum. Þau eru ekki öll fórn­ar­lömb glæpa, sum gætu verið komin til fjöl­skyldu­með­lima. Við vitum bara ekki hvar þau eru, hvað þau eru að gera eða með hverjum þau eru,“ segir hann við The Observer í Bret­landi.

Flótta­börn sem koma til Evrópu án for­ráða­manna eru eitt stærsta vanda­málið sem teng­ist flótta­manna­krís­unni. Þau eru við­kvæm­asti hópur þeirra sem koma til Evrópu. Donald segir að flótta­börn sem komið hafi til Evrópu und­an­farið telji 270 þús­und. Þau séu ekki öll skráð inn í álf­una, og ekki séu öll án fylgdar, en mik­ill hluti þeirra sé það samt lík­lega. Því sé var­lega áætlað að segja 10 þús­und börn séu týnd.

Greint var frá því á föstu­dags­kvöld að um 100 grímu­klæddir menn hafi komið saman í mið­borg Stokk­hólms, ráð­ist á fólk sem leit út fyrir að vera af erlendum upp­runa og hvöttu til árása á börn sem komið hafa til Sví­þjóðar sem flótta­menn. Einnig fund­ust bæk­lingar þar sem hvatt var til þess að fólk réð­ist á börn sem eru á flótta án fylgdar.

Þarf milljarða til að koma flóttabörnum í skóla

Í breska fjöl­miðl­inum Guardian hefur sjónum þó einnig verið beint að þeim börnum sem eru á flótta utan Evrópu. Í dag birt­ist grein eftir frið­ar­verð­launa­hafann Malölu Yousafzai og sýr­lensku flótta­kon­una Muzoon Almellehan. Þar hvetja þær til þess að ríkar þjóðir heims verji 1,4 millj­örðum punda til þess að tryggja að flótta­börn kom­ist í skóla. Þær hitt­ust fyrst í flótta­manna­búðum í Jórdaníu, þar sem sýr­lenskar stúlkur niður í 12 ára eru giftar eldri mönnum í þeirri von að það muni bjarga þeim frá fátækt og ofbeldi. Flestar þessar stúlkur fari aldrei aftur í skóla.

Áður en stríðið í Sýrlandi hófst hafi hins vegar öll börn átt kost á 12 ára ókeypis skóla­göngu, og læsi var 90%.

„Ríki á land­mær­unum eins og Jórdanía, Líbanon, Tyrkland, Egypta­land og Írak hafa opnað dyrnar og skól­ana sína fyrir sýr­lenskum börnum, en hafa ekki burði til að hjálpa öllum. Ríkustu lönd heims hvetja flótta­menn til að vera áfram á því svæði í stað þess að koma til Evrópu, á meðan þau veita ekki fjár­magnið sem nágranna­ríkin þurfa til að takast á við krís­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár