Mynd: Heiða Helgadóttir

Barn rekur á land

Nýjasta skáld­saga Sölva Björns Sig­urðs­sonar hefst á því að barn rekur á land við Hjör­leifs­höfða haustið 1839. Sagan kall­ast á við flótta­manna­krís­una, eitt­hvert stærsta mál sam­tím­ans, og á brýnt erindi við les­endur dags­ins í dag. Jón Bjarki Magússon ræddi við höf­und­inn um skáld­sög­una Seltu sem er eins konar óður til manns­and­ans og þess góða í mann­inum.

Hvað gerir maður þegar ókunn­ugt barn rekur ófor­var­endis á fjörur hans? Þetta er á meðal þeirra spurn­inga sem rit­höf­und­ur­inn Sölvi Björn Sig­urðs­son spyr í nýrri skáld­sögu sinni, Seltu, apókrýfu úr ævi land­læknis. Sagan, sem ger­ist á haust­mán­uðum 1839, fjallar um land­lækni sem lífgar við lít­inn dreng sem rekið hefur á land fyrir ströndum Hjörleifshöfða. Fljót­lega kemur í ljós að dreng­ur­inn virð­ist ómálga á íslensku, þótt hann mæli nokkur kunn­ug­leg orð sem benda helst til þess að hann komi frá fjar­lægu landi að því er virð­ist utan Evrópu. Sýruson. Sandsinni. Fyndinn hestur. Þeir kump­ánar halda í kjöl­farið í afdrifa­ríkt og ævin­týra­legt ferða­lag þvert yfir jök­ulár, sanda og hálendi í leit að upp­runa þess síð­ar­nefnda, og njóta meðal ann­ars lið­sinnis aðstoð­ar­manns­ins Mister Und­er­ta­ker og servants­stúlku á hæli.

Sölvi Björn hefur vakið verð­skuld­aða athygli fyrir leik sinn að hinum ýmsu bók­mennta­formum í gegnum árin, hlotið rithöfunda­við­ur­kenn­ingu RÚV, Menn­ing­ar­verð­laun …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár