Björgólfur Thor á áfram hlut í móðurfélagi Actavis - Hagnast mjög á hækkun bréfa

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son á áfram hlut í Allergan, móð­ur­fé­lagi Actavis, og nýtur góðs af hækkun bréfa í félag­inu í kjöl­far sölu þess á sam­heita­lyfja­starf­semi félags­ins sem til­kynnt var um í dag. Þetta stað­festir Ragn­hildur Sverr­is­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Novators, við Kjarnann. Hún segir enn­fremur að Björgólfi Thor lít­ist vel á söl­una.

Gengi bréfa í Allergan hækk­aði um 4,7 pró­sent í dag eftir að kaup ísra­elska sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Teva Pharmaceutical Industries á sam­heita­lyfja­starf­semi Allergan fyrir 40,5 millj­arða króna, rúm­lega 5.400 millj­arða íslenskra króna, voru til­kynnt og er nú 329,65 dalir á hlut. Þegar lyfja­fyr­ir­tækið Watson tók yfir Actavis í apríl 2012, og Björgólfur Thor eign­að­ist hlut í því félagi, var gengi bréfa þess tæp­lega 60 dalir á hlut. Þá átti Björgólfur Thor um tveggja pró­senta hlut í félag­inu en sá hlutur er í dag kom­inn niður fyrir eitt pró­sent.

Sápuópera í lyfjageiranum


Ísra­elski sam­heita­lyfj­aris­inn Teva Pharmaceutical Industries til­kynnti í morgun um kaup á sam­heita­lyfja­armi Allergan, sem er móð­ur­fé­lag Actavis á Íslandi. Teva mun greiða 33,75 millj­arða dala í pen­ingum og 6,75 millj­arða dali með hluta­bréfum í Teva fyrir hlut­inn. Samhliða þessum kaupum hefur Teva hætt við kaup á keppi­nautnum Mylan.

Kaupin eru þau síð­ustu í röð margra stórra sam­runa í heil­brigð­is­geir­anum, en mikil sam­þjöppun hefur orðið í grein­inni, einkum vegna breyttrar heil­brigð­is­lög­gjafar í Banda­ríkj­unum. Tilraun Teva til að kaupa Mylan hafði verið óvin­veitt og mikið hafði gengið á í sam­skiptum stjórn­enda fyr­ir­tækj­anna áður en að hætt var við kaupin. Ástæðan var sú að Allergan bauð Teva að kaupa sinn sam­heita­lyfja­arm frekar en að taka yfir Mylan. Blaða­maður Bloomberg, Drew Arm­strong, segir svipt­ing­arnar lík­astar sápu­óp­eru.

Sameining eftir sameiningu eftir sameiningu


Þessi risa­kaup skipta máli á Íslandi. Sam­heita­lyfja­arm­ur­inn sem verið er að selja var áður hluti af Actavis, fyr­ir­tækis sem var búið til hér­lendis í gegnum ýmsa sam­runa og var með höf­uð­stöðvar sínar á Íslandi fram til árs­ins 2011. Auk þess á fjár­festir­inn Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, í gegnum fjár­fest­inga­fé­lag sitt og við­skipta­fé­laga sína Novator, hlut í Allergan.

Forsaga þeirrar eignar er sú að þegar Björgólfur Thor samdi um upp­gjör við kröfu­hafa sína þá var hluti þess að hann héldi hlut í Actavis. Í apríl 2012 keypti lyfja­fyr­ir­tækið Watson, sem var skráð á markað í Banda­ríkj­unum, Actavis. Samtals voru greiddar um 700 millj­arðar króna fyrir en til við­bótar áttu að koma greiðslur sem tóku mið af því hvernig rekstur Actavis var árið 2012 sam­kvæmt upp­gjöri. Hagur Björg­ólfs Thors og Novator vænk­að­ist við þetta en í þeirra hlut komu fimm millj­ónir hluta í hinu nýja félagi á grund­velli samn­ings við Deutsche Bank, áður stærsta kröfu­hafa Novators, sem gerður var sam­hliða kaupum Watson. Eftir að til­kynnt var um kaup Watson á Actavis, og þar með sam­ein­ingu þess­ara félaga, hefur mark­aðsvirði þess hækkað hratt. Gengi bréfa á hlut hækk­aði úr tæp­lega 60 dölum frá því til­kynnt var um kaupin í 127,2 dali þann 22. maí 2013, ríf­lega ári síðar. Þetta þýddi að hlutur Björg­ólfs í Actavis í gegnum Novator var á milli 70 og 80 millj­arða króna virði á þeim tíma.

Um miðjan maí 2013 var síðan til­kynnt um enn meiri stækkun á efna­hags­reikn­ingi Actavis þegar greint var frá kaupum félags­ins á írska lyfja­fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Warner Chilcott. Samkvæmt fyrstu fréttum AFP-frétta­veit­unnar var kaup­verðið áætlað um 8,5 millj­arða dala, sem jafn­gilti um 1.100 millj­örðum króna, miðað við gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal dag­inn sem til­kynnt var um við­skiptin.

Í nóv­em­ber 2014 var svo til­kynnt um fyr­ir­hug­aða sam­ein­ingu Actavis og Allergan. Eftir að hún gekk í gegn tók sam­einað fyr­ir­tæki upp síð­ar­nefnda nafnið í júní 2015, þótt starf­semin á Íslandi hafi haldið Actavis-nafn­inu.

Í dag er gengi bréfa 329,65 dalir á hlut, eða rúm­lega fimm sinnum hærra en það var þegar Watson tók yfir Actavis og Björgólfur Thor eign­að­ist hlut í sam­ein­uðu félagi.

Þessi við­skipti hafa gert Björgólf Thor ævin­týra­lega ríkan á ný. Í mars var greint frá því að hann væri kom­inn aftur á lista Forbes yfir þá sem eiga meira en einn millj­arð dali, yfir 134 millj­arða króna, í eignum. Fimm ár eru síðan að Björgólfur Thor komst síð­ast á list­ann.Það þarf varla að taka það fram að Björgólfur Thor er eini Íslend­ing­ur­inn á list­anum, og reyndar eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur nokkru sinni kom­ist á hann. Hann sat í 1.415 sæti á list­anum.

Íslandsstarfsemin fer til Teva


Í til­kynn­ingu sem Actavis á Íslandi sendi frá sér vegna kaupa Teva segir að Teva muni taka yfir alla alþjóð­lega sam­heita­lyfja­starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins sem áður var Actavis, þar á meðal sölu­ein­ingar fyr­ir­tæk­is­ins á sam­heita­lyfja­sviði í Banda­ríkj­unum og alþjóð­lega, alla þró­unar- og fram­leiðslu­starf­semi sem snýr að sam­heita­lyfjum, sölu­starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins á sviði lausa­sölu­lyfja, sem og Medis, dótt­ur­fé­lag Allergan sem selur lyf og lyfja­hug­vit til ann­arra lyfja­fyr­ir­tækja. Þar segir enn­fremur: „Um er að ræða stefnu­breyt­ingu hjá móð­ur­fé­lag­inu en eftir nýlegan sam­runa Actavis og Allergan varð fyr­ir­tækið leið­andi alhliða lyfja­fyr­ir­tæki sem sinnir jöfnum höndum þróun, fram­leiðslu og mark­aðs­setn­ingu frum­lyfja og sam­heita­lyfja. Allergan hyggst hins vegar nú ein­beita sér að upp­bygg­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á sviði frum­lyfja.“

Ekkert kemur fram um hvort sú starf­semi Actavis sem verið hefur hér­lendis verði það áfram, en fyrir skemmstu ákvað Allergan að loka lyfja­verk­smiðju í Hafn­ar­firði árið 2017. Við það á starfs­mönnum Actavis á Íslandi úr um 700 í um 400. Þá var því heitið að önnur starf­semi á Íslandi yrði óbreytt.

Sigurður Óli Ólafsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Actavis á Íslandi, er nú for­stjóri sam­heita­lyfja­sviðs Teva. Teva er stærsti fram­leið­andi sam­heita­lyfja í heim­inum og er fyr­ir­tækið metið á um sex­tíu millj­arða dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár