Japan eykur fé til varnarmála til að mæta Kína

Varn­ar­mála­ráðu­neyti Japans hefur óskað eftir auknum fjár­munum til varn­ar­mála á næsta ári til að geta elft her sinn gagn­vart Kína. Kín­verjar hafa und­an­farið sótt í sig veðrið í Asíu og gert aukið til­kall til umdeildra land­svæða og eyja með útþenslu herja sinna.

Þess vegna hefur ráðu­neytið óskað eftir því að fá 5,09 trilljónir jena, eða um það bil 5,5 trilljónir íslenskra króna í fjár­heim­ildir á næsta fjár­lögum sem taka gildi í apríl 2016. Kín­verjar hafa und­an­farin ár notað land­fyll­ingar til að búa til eyjur á umdeildum svæðum í Suður Kínahafi og byggt á þeim her­stöðvar. Þá hafa Kín­verjar jafn­framt ásælst Senkaku-eyja­kla­s­ann sem lýtur stjórn Japana.

Í morgun fluttu ástr­alskir fjöl­miðlar fréttir af því að Kín­verjar væru nú til­búnir að beita her­afli frá þessum mann­gerðu eyjum; her­stöðvar séu til­búnar og að það sé lítið sem banda­lag Banda­ríkja­manna, Ástrala og ann­ara ríkja í Suður Kínahafi geti gert til að koma í veg fyrir ólög­legar aðgerðir Kínverja.

Þá er haft eftir hern­arð­ar­sér­fræð­ingum að árið 2017 verði þessar her­stöðvar búnar höfnum, skálum, brjóst­virkjum, fall­byssum, flug­völlum og lang­drægum rat­sjár­kerfum sem geri Kín­verjum kleift að beita her­afli víða á þessu umdeilda svæði. Þannig gætu þeir haft áhrif á flutn­inga­leiðir og bannað öðrum ríkjum sem gera til­kall til svæð­is­ins að koma þar.

Þrír fimmtu hlutar allra flutn­inga til og frá Ástralíu fara til dæmis um svæðið. „Þetta er gríð­ar­lega stór taktískur sigur Kínverja,“ hefur The Sydney Morning Herald eftir opin­berum starfs­manni í Ástralíu.

Japan hefur jafnt og þétt aukið útgjöld til hern­að­ar­mála síð­ustu fjögur ár, að þeirra sögn til að mæta her­afli Kínverja. Tíu árum áður hafði Japan dregið veru­lega úr útgjöldum til varn­ar­mála en áhyggjur af stækkun kín­verska flot­ans hafa snúið þeirri þróun við. Þessi þróun mála er einnig í takti við stefnu­mótun Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Japan, sem vill mæta kín­verskum áhrifum og auka mátt jap­anska hers­ins.

Hern­að­ar­á­herslum Abe hefur verið mót­mælt í Japan en hann hefur ítrekað farið þess á leit að stjórn­ar­skrár­á­kvæðum verði breytt svo jap­anska hernum verði gert kleift að berj­ast á erlendri grundu, í fyrsta sinn síðan í Seinni heim­styrj­öld­inni.

Á leið­toga­fundið ASEAN-ríkj­anna í Suð-Austur Asíu í sumar reyndu Kín­verjar að slá á áhyggjur nágranna­þjóða sinna með því að segj­ast vera hættir allri eyja­myndun með upp­fyll­ingum á skerjum. Aðrar þjóðir tóku fálega í þær yfir­lýs­ingar og bentu á hern­að­ar­upp­bygg­ingu á þessum eyjum sem væru varla til að skapa frið um svæðið.

[caption id="attachment_37874" align="alignnone" width="1024"] Kín­verjar eru hættir fram­kvæmdum við Spratly-eyjar.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár