Björgvin Páll hættur við að sækjast eftir því að leiða lista Framsóknar í Reykjavík

Lands­liðs­mark­vörður í hand­bolta ætl­aði að sækj­ast eftir því að leiða lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Hann er nú hættur við og segir að „á leið­inni á úti­völl þá þarf maður að hafa allt liðið á bak­við sig“.

Björgvin Páll Gústavsson er best þekktur sem handboltamarkvörður, en hann hefur einnig beitt sér í málefnum barna með ADHD í skólakerfinu á undanförnum árum.
Björgvin Páll Gúst­avs­son er best þekktur sem hand­bolta­mark­vörður, en hann hefur einnig beitt sér í mál­efnum barna með ADHD í skóla­kerf­inu á und­an­förnum árum. Mynd: EPA

Björgvin Páll Gúst­afs­son, lands­liðs­mark­vörður í hand­bolta, er hættur við að sækj­ast eftir sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook seg­ist hann ein­fald­lega hafa skipt um skoðun. „Þrátt fyrir að stuðn­ing­ur­inn sé mik­ill innan úr flokknum, þá er mik­il­vægt að hafa það í huga að þegar maður er á leið­inni á úti­völl þá þarf maður að hafa allt liðið á bak­við sig. Með þess­ari ákvörðun vil ég hjálpa þeim sem mun leiða flokk­inn í sinni vinnu. Þetta hefur verið sturl­aður til­finn­inga­rús­sí­bani sem að hefur styrkt vilja minn til þess að setja börnin í 1. sæti enn frekar. Ég styrk­ist einnig í þeirri trú minni að það sé minn til­gangur að vera fyr­ir­mynd og hjálpa öllum að líða betur. Ég mun á næstu dögum setja ork­una í vera fyrir boltum og hjálpa börn­unum mínum að líða vel.“

[adspot]Björgvin Páll greindi frá því í stöðu­upp­færslu á Facebook snemma í febr­úar að hann myndi sækj­ast eftir 1.-2. sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins mun stilla upp lista fyrir kom­andi kosn­ingar. Hann nefndi það sér­stak­lega að hann vildi taka taka ábyrgð á því að gæta vel­ferðar barna og ann­arra við­kvæmra hópa í sam­fé­lag­inu.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn reið ekki feitum hesti frá síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um. Hann fékk ein­ungis 3,2 pró­­sent atkvæða og náði ekki inn manni í Reykja­vík.

Nokkrum dögum eftir að Björgvin Páll birti færslu sína sagði Einar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi frétta­maður og stjórn­andi Kast­ljóss á RÚV, að hann hefði fengið fjölda­margar hvatn­ingar til að fara fram fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í Reykja­vík og að hann væri að íhuga það alvar­lega.

Einar hefur ekki starfað innan Fram­sókn­ar­flokks­ins áður en eig­in­kona hans, Milla Ósk Magn­ús­dótt­ir, er aðstoð­ar­maður Will­ums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra og þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Einar var for­maður félags ungra sjálf­stæð­is­manna í Kópa­vogi á árum áður og var sterk­lega orð­aður við fram­boð fyrir þann flokk í Kópa­vogi fyrir skemmstu. Einar og Milla settu hins vegar heim­ili sitt í Kópa­vogi á sölu nokkrum dögum fyrir yfir­lýs­ing­una og boð­uðu flutn­inga í Selja­hverfið í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár