Kjósendur Sjálfstæðisflokks og Framsóknar telja RÚV ekki gæta hlutleysis

Mikill meiri­hluti kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar telja RÚV hlut­drægt á meðan að kjós­endur allra ann­arra flokka telja RÚV gæta hlut­leysis í frétta­flutn­ingi. Greining bendir ekki til þess að fjallað sé nei­kvæðar um ákveðna flokka umfram aðra.

Mikill meiri­hluti kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks telja að RÚV sé hlut­drægt í frétta­flutn­ingi sínum. Alls segj­ast sjö af hverjum tíu Sjálf­stæð­is­mönnum og tæp­lega sjö af hverjum tíu Fram­sókn­ar­mönnum að þeir hafi þá skoðun. Hjá kjós­endum allra ann­arra stjórn­mála­flokka er yfir­gnæf­andi hluti kjós­enda, oft­ast vel yfir 90 pró­sent, þeirrar skoð­unar að RÚV gæti hlut­leysis.

Þetta kemur fram í rann­sókn sem Gallup gerði á við­horfi almenn­ings til hlut­lægni í frétta­flutn­ingi Rík­is­út­varps­ins tók til tíma­bils­ins 23.-30 maí 2016. Í frétt fjöl­miðla­nefndar um rann­sókn­ina kemur fram að engin sér­stök ástæða hafi legið að baki því að þetta tíma­bil varð fyrir val­inu, önnur en sú að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið ákvað í maí 2016 að veita sér­stakri fjár­veit­ingu til fjöl­miðla­rann­sókna og var haf­ist handa við könn­un­ina um leið og for­sendur hennar höfðu verið ákveðnar og fjár­veit­ing tryggð.

Til stóð að fjöl­miðla­nefnd birti nið­ur­stöð­urnar síðar á þessu ári sem hluta af árlegu mati nefnd­ar­innar á almanna­þjón­ustu­hlut­verki RÚV. Því mati sé ekki lokið.

Fjöl­miðla­nefnd hafi hins vegar á síð­ustu dögum borist tvær beiðnir frá fjöl­miðlum um að nið­ur­stöður fram­an­greindra fjöl­miðla­rann­sókna verði afhentar. Fyrri beiðnin barst frá Frétta­blað­inu 18. októ­ber og seinni beiðnin frá Við­skipta­blað­inu 19. októ­ber. „Með vísan til 5. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012 og sjón­ar­miða um gagn­sæi og jafn­ræði hefur nefndin ákveðið að birta nið­ur­stöður grein­inga Gallup og Fjöl­miðla­vakt­ar­innar/Creditinfo á vef sínum, fyrr en til stóð, til upp­lýs­inga fyrir fjöl­miðla og almenn­ing. Áréttað er að ekki er um að ræða heild­ar­mat nefnd­ar­innar á almanna­þjón­ustu­hlut­verki Rík­is­út­varps­ins.“

Ekkert í grein­ingu Fjöl­miðla­vakt­ar­innar/Creditinfo bendir til þess að fleiri nei­kvæðar fréttir séu sagðar af Sjálf­stæð­is­flokki eða Fram­sókn­ar­flokki en öðrum flokkum.

Tveir af hverjum þremur telja RÚV gæta hlutleysis

Í könnun Gallup kom fram að 66,5 pró­sent aðspurðra sögð­ust telja RÚV almennt hlut­laust í fréttum og frétta­tengdu efni sínu. Alls sögð­ust 33,5 pró­sent telja að RÚV væri hlut­drægt og þar af sagð­ist 5,5 pró­sent telja að RÚV væri að öllu leyti hlut­drægt í fréttum og frétta­tengdu efni sínu.

Þeir sem voru með háskóla­próf voru lík­legri til að telja RÚV hlut­laust en þeir sem höfðu lokið lægri menntun og fleiri Reyk­vík­ingar telja RÚV hlut­laust en þeir sem búa á lands­byggð­inni. Þá er skýr munur á milli tekju­hópa. Þeir sem minnstar hafa tekj­urnar telja að RÚV sé hlut­drægt í meira mæli en aðrir. Konur eru sömu­leiðis trú­aðri á hlut­leysi RÚV en karlar.

Mikla athygli vekur að það eru fyrst og síð­ast kjós­endur tveggja flokka sem voru í fram­boði til Alþingis í fyrra sem telja RÚV ekki gæta hlut­leysis í fréttum og frétta­tengdu efni sínu, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Meiri­hluti kjós­enda beggja þeirra flokka telja að RÚV sé hlut­drægt í frétta­flutn­ingi. Þannig segj­ast 71 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins telja að RÚV sé hlut­drægt og 65 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Kjós­endur ann­arra flokka telja nær allir að RÚV gæti hlut­leysis. Þannig segj­ast 96 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna telja að RÚV gæti hlut­leysis, 94 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar, 86 pró­sent kjós­enda Pírata og 84 pró­sent kjós­enda Við­reisnar eru sama sinnis.

Um var að ræða net­könnun og úrtakið var 1.413 manns 18 ára og eldri alls staðar að af land­inu. Fjöldi svar­enda var 876.

Ekki fleiri neikvæðar fréttir um Sjálfstæðis- eða Framsóknarflokk

Greining Fjöl­miðla­vakt­ar­innar/Creditinfo var á fréttaum­fjöllun RÚV í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2013 og 2016. Nið­ur­staða hennar vegna kosn­ing­anna í fyrra var meðal ann­ars sú að Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkar hafi fengið mesta fréttaum­fjöllun og að 88 pró­sent allra frétta sem sagðar voru af stjórn­mála­flokkum í hafi hvorki flokk­ast sem jákvæðar né nei­kvæðar. Um níu pró­sent þeirra töld­ust jákvæðar en þrjú pró­sent nei­kvæðar.

Flestar þeirra frétta sem flokk­uð­ust sem nei­kvæðar voru um Íslensku þjóð­fylk­ing­una, eða sjö pró­sent allra frétta sem sagðar voru af henni. Alls voru fimm pró­sent frétta sem sagðar voru af Fram­sókn­ar­flokknum nei­kvæðar. Fjögur pró­sent þeirra frétta sem sagðar voru af Sam­fylk­ing­unni, Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokknum töld­ust nei­kvæðar. Aðrir flokkar voru með minna hlut­fall nei­kvæðra frétta.

Flestar jákvæðar fréttir voru sagðar um Pírata og voru 22 pró­sent frétta um þá flokk­aðar sem slíkar. Það er mun meira en fréttir af flestum öðrum fram­boðum og er það skýrt í grein­ing­unni með því að meiri­hluti þeirra jákvæðu frétta sem tengd­ust Pírötum hafi snú­ist um umræðu um stjórn­ar­myndun fyrir kosn­ingar. Er þar vísað í svo­kall­aðan Lækja­brekku­fund. Þá voru einnig fréttir af áhuga erlendra fjöl­miðla á fram­boði Pírata sem og fréttir af góðu gengi flokks­ins í skoð­ana­könn­unum.

Af þeim flokkum sem eiga nú full­trúa á Alþingi var minnst hlut­fall frétta jákvæðar þegar fjallað var um Sam­fylk­ingu (fimm pró­sent) og Viðreisn (sex pró­sent).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár