Staðan í Brexit er grafalvarleg

Eiríkur Bergmann Ein­ars­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, segir að það sé engin lausn enn sem komið er komin fram á því hvernig sé hægt að leysa Brexit-hnút­inn.

„Það veit eng­inn almenni­lega hvernig þetta fer. Staðan er grafal­var­leg. Það er engin leið að líta fram­hjá því að það eru tvær vikur þangað til að þeir eiga að fara út úr Evr­ópu­sam­band­inu. Og það er engin lausn ennþá á því hvernig það mun fara.“

Þetta sagði Eiríkur Berg­mann Ein­ars­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, um stöð­una á Brexit, útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu,í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni. Eiríkur var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, í þætt­inum. Hægt er að sjá stiklu úr honum hér að neðan.

Breska þingið hefur tví­vegis hafnað útgöngu­samn­ingi sem Theresa May for­sæt­is­ráð­herra lands­ins hefur lagt fyrir það. Auk þess hafn­aði það í vik­unni því að ganga út úr sam­band­inu án samn­ings og að óska eftir frestun á útgöngu, en útgöngu­dagur Breta er settur 29. mars næst­kom­andi.

Eiríkur sagði þetta alveg ótrú­lega stöðu fyrir breska þjóð­þingið að vera í. „Og fyrir bresku þjóð­ina alla og það er óljóst hvernig þeir geta kom­ist út úr þessu.“

[adspot]Hann sagði flókið að fresta útgöng­unni, sem nú hefur verið sam­þykkt að gera. Það væri til að mynda algjör­lega fárán­legt að fresta henni fram yfir Evr­ópu­þings­kosn­ingar sem fara fram 23 til 26 maí næst­kom­andi. „Þá verða Bretar lögum sam­kvæmt að fara í þá atkvæða­greiðslu og kjósa full­trúa á Evr­ópu­þingið sem eiga að taka þátt í að setja Evr­ópu­sam­band­inu lög og dreifa út fjár­munum þess fyrir næstu fimm árin án þess að verða þar áfram. Það gerir málið mjög erfitt.“

Eiríkur greindi frá því að hann hefði heyrt skemmti­lega kenn­ingu innan úr breska Íhalds­flokknum, þar sem menn væru að velta því fyrir sér að Theresa May gætti staðið frammi fyrir því að hrein­lega aft­ur­kalla úrsögn­ina. „Þá er málið komið á núll­punkt og hún þyrfti eflaust að segja af sér og boða til nýrra kosn­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár