Efasemdir um að grískir bankar geti opnað á morgun

Seðla­banki Evrópu hefur ákveðið að halda áfram að veita Grikk­landi lausa­fjár­að­stoð eins og verið hefur und­an­farið. Grískir bankar þurfa þessa aðstoð, ekki síst í ljósi þess að bankainn­stæður í grískum bönkum hafa hríð­fallið und­an­farnar vikur og síð­ustu daga hefur áhlaup verið gert á þá.

Þrátt fyrir þennan mikla þrýst­ing verður aðstoð seðla­bank­ans ekki aukin heldur henni haldið óbreyttri. Nú velta margir fyrir sér hvort grískir bankar muni yfir höfuð opna í fyrra­málið. Karl Whelan, pró­fessor við Uni­versity College Dublin, er meðal þeirra sem hefur efa­semdir um að allir bankar geti opnað.

Mikil örtröð hefur skap­ast við marga hrað­banka og fólk tekur út evrur í stórum stíl, eins og sjá má á neð­an­greindri mynd sem var tekin í hrað­banka gríska þings­ins í gær. Á henni er meðal ann­ars þing­maður stjórn­ar­flokks­ins Syriza.



Syriza MP Aglaia Kyritsi queuing at Parli­ament ATM. GREAT JOB GUYSEdit: multiple sources say ATMs inside the Greek Parli­ament have been resupp­lied with cash 4 times today. #chebellambiente

Posted by Luca Riva on Saturday, June 27, 2015

Christine Lagarde, fram­kvæmda­stjóri Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, sendi frá sér yfir­lýs­ingu fyrir skömmu þar sem fram kemur að sjóð­ur­inn sé áfram til­bú­inn til að aðstoða Grikk­land og vinna bæði með Grikkjum og Evr­ópu­sam­band­inu og Seðla­banka Evrópu.

Grískir fjöl­miðlar greina frá því að klukkan sex á íslenskum tíma hafi verið boðað til rík­is­stjórn­ar­fundar í Grikk­landi.

Seint í gær­kvöldi sam­þykkti gríska þingið að boðað verði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um til­lög­urnar sem lán­ar­drottnar þeirra hafa lagt fram, þrátt fyrir að lán­ar­drottn­arnir hafi sagt að til­lög­urnar hafi ekki verið end­an­legar. Atkvæða­greiðslan á að fara fram eftir viku, sunnu­dag­inn 5. júlí.

Þá verður núver­andi neyð­ar­að­stoð­ar­sam­komu­lag Grikk­lands við lán­ar­drottn­anna runnið út, og þeir eiga að hafa staðið í skilum á 1,5 millj­arði evra í afborgun af láni frá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár