28 látnir eftir hryðjuverk í Túnis og 25 í Kúveit

Að minnsta kosti 28 manns eru látnir eftir árás á hótel á vin­sælum ferða­manna­stað í Túnis, strand­bænum Sousse. Fjöl­miðlar í Túnis segja að skot­hríð hafi verið hafin á Imperial Marhaba hót­el­inu og að einn árás­armaður hafi verið drep­inn.

Inn­an­rík­is­ráðu­neyti Túnis segir að flestir hinna látnu hafi verið ferða­menn. Meðal hinna látnu eru sagðir írskir, belgískir, breskir og þýskir ferða­menn. Þá hefur verið sagt að mað­ur­inn sem myrti minnst 28 manns og særði 36 til við­bótar hafi verið einn að verki. Áður hafði verið sagt að árás­ar­menn­irnir hefðu verið tveir.

Maðurinn hafði ekki áður komið við sögu lög­reglu, en hann var náms­maður að sögn fjöl­miðla.

Þetta er önnur hryðju­verka­árásin á vin­sæla ferða­manna­staði í Túnis á nokkrum mán­uðum, en í mars voru 22 myrtir í skotárás á Bardo safnið í höf­uð­borg­inni Túnis.

Sjálfsmorðsárás í Kúveit


Þá eru 25 manns látnir eftir sjálfs­vígsárás á mosku shía-múslima í Kúveit. 202 til við­bótar særð­ust í sprengju­árás­ini. Hryðju­verka­hópur tengdur Íslamska rík­inu hefur lýst ódæð­inu á hendur sér. Íslamska ríkið hefur ráð­ist með svip­uðum hætti á skot­mörk í Sádí-Arabíu og Jemen, en þetta er í fyrsta skipti sem ráð­ist er á mosku shía-múslima í Kúveit.

Um 2000 manns voru í mosk­unni þegar sprengjan sprakk. Khalil al-Salih, þing­maður í Kúveit, varð vitni að árásinni og sagði við Reuters að sprengju­mað­ur­inn hafi verið ungur maður. Hann hafi gengið inn í bæna­sal­inn og sprengt sig í loft upp.

Þá er ótalin hryðju­verka­árásin í Frakk­landi í morgun, þar sem maður var afhöfð­aður og reynt var að sprengja upp gasverk­smiðju í nágrenni Lyon.

Þessi frétt hefur verið upp­færð eftir því sem frek­ari fregnir bár­ust af hryðju­verk­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár