Þróunarsamvinnustofnun lögð niður - afhverju (ekki)?

Í mars 2013 sam­þykkti Alþingi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um Þró­un­ar­sam­vinnu­á­ætlun 2013-2016, unna af utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, sem mála­flokk­ur­inn heyrir undir. Í henni er stefnt að því að hlut­deild Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar Íslands(ÞSSÍ) í útgjöldum til þró­un­ar­mála verði 40% á meðan afgangnum er ráð­stafað fyrst og fremst til alþjóð­stofn­anna. Nú eru þær fyr­ir­ætl­anir breyttar að því leyti að nú stendur til að leggja niður Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun Íslands og færa hana undir Utan­rík­is­ráðu­neytið sam­kvæmt frum­varpi sem Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, hefur lagt fram á Alþingi. Í frum­varp­inu má sjá að aðgerðin er fyrst og fremst stjórn­sýslu­leg þar sem allt stars­fólk og öll verk­efni ÞSSÍ munu fær­ast inn í ráðu­neytið. Ekki á afnám ÞSSÍ (eins og aðgerðin var orðuð í fyrstu) að fela í sér stefnu­breyt­ingu og að sögn utan­rík­is­ráð­herra verður t.a.m. áfram haldið í ICEIDA nafnið, sem stofn­unin ber erlendis.

ÞSSÍ hefur frá form­legri stofnun árið 1981 haft yfir­um­sjón með svo­kall­aðri tví­hliða þró­un­ar­að­stoð Íslend­inga, þar sem Ísland er í beinu starf­starfi við ákveðin lönd sem þiggja þró­un­ar­að­stoð. Í dag eru þau lönd Malaví, Mósambík og Úganda, auk þess sem ÞSSÍ hefur stutt jarð­hita­rann­sóknir á nokkrum stöðum í aust­an­verðri Afríku. Marg­hliða þró­un­ar­sam­vinna, þar sem Ísland leggur sitt að mörkum til alþjóða­stofn­anna eins Alþjóða­bank­ans (World Bank) og þró­un­ar­að­stoðar Sam­ein­uðu Þjóðanna(UNDP) er á for­ræði utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sjálfs.

Hörð andstaða og skiptar skoðanir


Í fyrstu umræðu á Alþingi mætti frum­varpið mik­illi and­stöðu. Nær ein­göngu þing­menn stjón­ar­and­stöð­unnar tjáðu sig um málið og hafa nokkrir þeirra lagt fram 21 spurn­ingu til ráð­herra. Árni Páll Árnason gagn­rýndi t.d. harð­lega að það væri mjög óljóst hvernig ætti að haga eft­ir­liti með fram­kvæmd þró­un­ar­sam­vinnu sam­kvæmt frum­varp­inu, Alþingi hefði minna um mála­flokk­inn að segja, vinna stofn­un­ar­innar væri mjög sér­hæfð og að með þessu skap­að­ist hætta á að fólk sem skortir fag­þekk­ingu vinni að mála­flokknum. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, ásamt fleirum spurðu hvers vegna væri ekki beðið eftir nið­ur­stöðu úttektar þró­un­ar­sam­vinnu­nefndar OECD (DAC) á þró­un­ar­sam­vinnu Íslend­inga sem verður til­búin á næsta ári. Margir þing­menn undr­uð­ust einnig að það ætti að leggja niður stofnun sem eft­ir­lits­að­ilar og utan­rík­is­ráð­herra sjálfur segja að standi sig mjög vel.

[caption id="attachment_22781" align="alignnone" width="629"] Gunnar Bragi Sveins­son hefur lagt fram frum­varp um að leggja niður Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun.[/caption]

Gunnar Bragi Sveinsson hefur lagt fram frumvarp um að leggja niður Þróunarsamvinnustofnun.
Gunnar Bragi Sveins­son hefur lagt fram frum­varp um að leggja niður Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun.

Í sam­tali við Kjarnann sagði utan­rík­is­ráð­herra, Gunnar Bragi Sveins­son, að til­gang­ur­inn með frum­varp­inu sé að ná fram sam­legð­ar­á­hrifum, nýta betur starfs­fólk og gera þannig betur í mála­flokknum eins og lagt er til í skýrslu Þóris Guð­munds­sonar. Hann ótt­ast ekki að hags­muna­á­rekstrar verði á milli diplómat­ískra hags­muna Íslands ann­ars vegar og hags­muna þeirra sem þiggja aðstoð hins vegar. Raunar sé þetta leið sem ýmis nágranna­lönd okkar, t.d. Danir og Norðmenn, hafa farið með góðum árangri að hans sögn og að skilin milli utan­rík­is­stefnu og þró­un­ar­mála séu ekki eins skýr og áður. Ráðherra árétt­aði að ekki stæði til að breyta fram­kvæmd þró­un­ar­sam­vinnu að öðru leyti og að til­lögur Þóris um að fækka sam­starfs­löndum og opna í stað­inn sendi­ráð í Eþíópíu eða Kenýa séu ekki í kort­unum sem stendur.

Starfs­maður ÞSSÍ, sem ekki vill láta til nafns síns getið, ótt­ast þó að raunin sé önnur. Á síð­ustu 20 árum hafi allir utan­rík­is­ráð­herrar fengið það inn á borð til sín að leggja stofn­un­ina niður og færa hana inn í ráðu­neytið. Hann spyr: af hverju er þessi löngun fyrir hendi hjá starfs­mönnum ráðu­neyt­is­ins? "Ég held að svarið sé þá að það sé löngun til að kom­ast yfir þessa fjár­muni til þess að geta opnað fyrir fleiri sendi­ráð­s­pósta fyrir utan­rík­is­þjón­ust­una. Þetta er vand­inn sem við eigum við að glíma um leið og við eigum að taka til varna fyrir stofn­un­ina sem á að leggja niður, þá erum að fara inn í faðm ráðu­neyt­is­ins sem ætlar að taka á móti okkur. Hræðileg staða og þess vegna segir eng­inn neitt. Það þorir eng­inn að opna munn­inn.“

Starfs­mað­ur­inn sagði að innan stofn­un­ar­innar væri mikil óánægja með til­lög­unar, þær þyki ótíma­bærar og illa rök­studdar, eins og rakið er í athuga­semdum ÞSSÍ við skýrslu Þóris.

[caption id="attachment_25156" align="alignnone" width="713"] ÞSSÍ starfar meðal ann­ars í Malaví.[/caption]

Langt á eftir nágrönnum okkar


Heild­ar­fram­lög til þró­un­ar­sam­vinnu Íslend­inga árið 2015 verða 3,6 millj­arðar sam­kvæmt fjár­lögum, þar fær ÞSSÍ 1,6 millj­arða. Þetta er ríf­lega helm­ingur af því sem stefnt var á í Þró­un­ar­sam­vinnu­á­ætlun 2013-2016. Utan­rík­is­ráð­herra segir að í Þró­un­ar­sam­vinnu­á­ætlun hafi mennt ætlað sér of mikið. Hann von­ast þó til að sjá fram­lög hækka hægt og bít­andi og mun lík­lega leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis á vor­þingi. Að hans sögn er 0,3% af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu, sem er með­al­tal OECD ríkja, eitt­hvað sem hann langi að horfa til á fyr­ir­séðum tíma. Þess má geta að við­mið Sam­ein­uðu Þjóðanna er að fram­lög til þró­un­ar­mála nemi 0,7% af þjóð­ar­fram­leiðslu.

ÞSSÍ starfar meðal annars í Malí.
ÞSSÍ starfar meðal ann­ars í Malí.

Ísland er mik­ill eft­ir­bátur Norð­ur­land­anna í fram­lögum til þró­un­ar­sam­vinnu og var hlut­fall þró­un­ar­að­stoðar af þjóð­ar­fram­leiðslu Íslands árið 2013 ein­ungis 0.26% á meðan Svíþjóð og Noregur voru yfir 1%. Raunar er Ísland eft­ir­bátur mest­allrar Norður-Evrópu í þessum málum. Ef horft er á útgjöld á mann til tví­hliða þró­un­ar­að­stoðar sést að þau eru frekar lág miðað við aðrar þjóðir eða um rúm­lega 5.000 krónur á mann. Það er um tíundi hluti af fram­lagi Dana, sem þó hafa nær sömu lands­fram­leiðslu á mann og Íslend­ingar. Sé enn­fremur horft á hve Ísland er fámennt sést að ÞSSÍ er mjög lítil stofnun miðað við sam­bæri­legar erlendar stofn­anir. Í Úganda var fram­lag ÞSSÍ ein­ungis 0,14% af allri tví­hliða þró­un­ar­að­stoðar til lands­ins árið 2013, þrátt fyrir að Úganda sé eitt af þremur sam­starfs­löndum Íslands. Þar að auki starfa nær allir, ef ekki allir, veit­endur þró­un­ar­að­stoðar í mun fleiri löndum.

[caption id="attachment_25152" align="alignnone" width="863"] Lönd­un­ar­staður í Kalangala hér­aði á Vikt­or­íu­vatni, sem er fjár­magn­aður af ÞSSÍ.[/caption]

Löndunarstaður í Kalangala héraði á Viktoríuvatni, sem er fjármagnaður af ÞSSÍ.
Lönd­un­ar­staður í Kalangala hér­aði á Vikt­or­íu­vatni, sem er fjár­magn­aður af ÞSSÍ.

Í ljósi þess hve lítil stofnun ÞSSÍ er í alþjóð­legu sam­hengi má skilja þessar fyr­ir­ætl­anir. Margir hafa þó spurt á móti hvort ekki sé nær að færa fleiri verk­efni inn í þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun. Að sögn ÞSSÍ eru ýmis verk­efni utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í eðli sínu tví­hliða aðstoð, þó þau séu marg­hliða að nafn­inu til, vegna þess að þau eru eyrna­merkt ákveðnum verk­efnum. Vilji er innan stofn­un­ar­innar til að taka að sér fleiri verk­efni og reyndi Davíð Oddsson þegar hann var utan­rík­is­ráð­herra að færa öllu þró­un­ar­sam­vinnu verk­efni þangað, sem mætti væg­ast sagt harðri and­stöðu.

Það er ljóst að rök eru fyrir því að reyna að ná fram stærð­ar­hag­ræði í þró­un­ar­sam­vinnu með til­lög­unum. Einnig eru, eins og hefur verið tíundað hér að ofan, ýmis­legt sem mælir gegn því. Þess vegna verður mjög for­vitni­legt að sjá hvernig þessi mál­efni þró­ast. Einnig verður athygl­is­vert að sjá hvert Íslend­ingar ætla að stefna í sinni þró­un­ar­sam­vinnu, þar við erum langt á eftir öðrum nágranna­þjóðum okkar þegar kemur að fram­lögum. Við erum að drag­ast frekar aftur úr ef eitt­hvað er, þvert á þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una sem var sam­þykkt árið 2013. Ekki er þetta ein­ungis for­vitni­legt því þarna er farið með skattfé, heldur sér­stak­lega vegna þess að því er ráð­stafað til að hjálpa fátæk­asta fólki heims, sem getur aðeins látið sig dreyma um lífs­gæðin sem við búum við á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár