Frumvarp um að leggja Þróunarsamvinnustofnun niður lagt fram á þingi

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra mælti í dag fyrir frum­varpi um breyt­ingar á lögum um alþjóð­lega þró­un­ar­sam­vinnu. Verði frum­varpið að lögum verður Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun Íslands lögð niður og verk­efni hennar færð til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Þar verður stofnuð þró­un­ar­sam­vinnu­nefnd auk þess sem breyt­ingar verða gerðar á fyr­ir­komu­lagi íslensku frið­ar­gæsl­unnar.

Í frétt á heima­síðu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir að meg­in­til­laga frum­varps­ins um að færa starf­semi Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins miði „að því að ein­falda skipu­lag til að hámarka árangur af þró­un­ar­sam­vinnu og nýta þá fjár­muni sem íslensk stjórn­völd veita til mála­flokks­ins sem best. Með sam­ein­ingu næst betri heild­ar­sýn yfir mála­flokk­inn, sam­hæf­ing og skil­virkni efld, komið veg fyrir skörun verk­efna og dregið úr óhag­ræði og tví­verkn­aði í rekstri og stjórnun.“

Þar er haft eftir Gunnari Braga að með nýju fyr­ir­komu­lagi þró­un­ar­sam­vinnu séu tengsl þró­un­ar­sam­vinnu og ann­arra utan­rík­is­mála styrkt og sam­skipti við erlend ríki og stofn­anir á sviði þró­un­ar­sam­vinnu sam­stillt við utan­rík­is­stefn­una. „Alþjóð­leg þró­un­ar­sam­vinna hefur tekið umfangs­miklum breyt­ingum sem kallar á breytta nálgun í þró­un­ar­sam­vinnu. Takast þarf á við hnatt­rænar áskor­anir sem krefj­ast sam­spils þró­un­ar­sam­vinnu og ann­arra utan­rík­is­mála.“

Við sam­ein­ing­una verður öllum starfs­mönnum Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unnar boðin sam­bæri­leg störf í ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár