Yfir hundrað hvali rak á land

Hern­að­ar­brölt, olíu­leit og for­vitnir ferða­menn eru meðal mögu­legra skýr­inga á fjölda skráðra hval­reka við Ísland sem fór í hæstu hæðir á árinu 2021. Hlýnun jarðar og breyttar far­leiðir þess­ara líf­rænu kolefn­is­fang­ara koma einnig sterk­lega til greina.

Stóran hval rak að landi í Þorlákshöfn í október.
Stóran hval rak að landi í Þor­láks­höfn í októ­ber. Mynd: Sveitarfélagið Ölfus

Hnísur. Skugga­nefjur. Hnúfu­bakar og hnýð­ingar. Þetta eru meðal hvala­teg­unda sem rak að Íslands­ströndum á nýliðnu ári. Að minnsta kosti 105 dýr rak á land í 45 atburðum. Það er óvenju mikið miðað við síð­ustu ár að und­an­skildu árinu 2019 er 152 hval­rekar voru skráðir hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun í 42 atburðum. Stórar grind­hvala­vöður sem syntu upp í fjörur skýra m.a. þennan mikla fjölda bæði þá og nú.

Stærsti ein­staki atburð­ur­inn í ár átti sér stað í Árnes­hreppi í októ­ber um 50 dýr syntu þar upp í fjöru og drápust eitt af öðru. Land­helg­is­gæslan var kölluð til og dró hún hræin úr fjör­unni í Melavík, setti um borð í varð­skipið Þór og sigldi með þau út fyrir sjáv­ar­falls­strauma þar sem hræj­unum var varpað í hafið. Við þessa umfangs­miklu aðgerð naut Gæslan lið­sinnis vaskra heima­manna sem telja núorðið, í þessu fámenn­asta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, færri en grind­hval­ina í vöð­unni. Sam­bæri­legur atburður varð síð­ari hluta júní­mán­aðar árið 2019 er svip­aðan fjölda grind­hvala rak á land í Löngu­fjörum á Snæ­fells­nesi. Það ár strönd­uðu einnig um 50 grind­hvalir við Útskála­kirkju í Garði. Reynt var að bjarga þeim og tókst að koma um þrjá­tíu þeirra aftur á haf út á lífi. Tuttugu dýr drápust.

„Ekkert er vitað með ástæður,“ segir Sverrir Daníel Hall­dórs­son, líf­fræð­ingur hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun, spurður um hvað valdi óvenju miklum fjölda hval­reka á árinu sem er að líða. Lengi hafi „hern­að­ar­brölt og olíu­leit verið grunuð“ um að fæla hvali og valda skaða á heyrn þeirra. Til dæmis hafi mik­ill fjöldi and­ar­nefja og ann­arra svín­hvala árið 2019 verið tengdur við her­fæf­ingar í norð­ur­höfum en það ár rak óvenju mik­inn fjölda and­ar­nefja um allt norð­an­vert Norður-Atl­ants­haf.

„En eins og gefur að skilja þá er erfitt að fá ein­hverjar upp­lýs­ingar frá hern­að­ar­yf­ir­völdum um verk­efni þeirra,“ bendir Sverrir á. Þó hafi fjöl­þjóð­legur hópur verið að sækj­ast eftir upp­lýs­ingum svo ranna­saka megi þetta til hlítar.

Flestir þeirra hvala sem rak á fjörur á árinu eru af teg­undum sem við flest þekkjum. Tveir hnúfu­bakar, tvær lang­reyðar, átta búr­hvalir, tvær hrefnur og sömu­leiðis tvær hnísur, svo dæmi séu tekin. En í yfir­liti því sem Haf­rann­sókn­ar­stofnun sendi Kjarn­anum um skráða hval­reka frá upp­hafi árs og til 8. Desember er einnig að finna fágæt­ari teg­undir.

Tvær skugga­nefjur rak til að mynda á land. Það heyrir til tíð­inda þótt fjórar slíkar hafi gert slíkt hið sama árið 2018. Skugga­nefjur virð­ast aðal­lega halda sig á rúm­sjó og eru sjald­séðar á grunn­sævi. Tegundin finnst bæði á norður- og suð­ur­hveli jarðar og nær útbreiðsla hennar frá kald­tempruðum svæðum að mið­baug. Þær verða 5-7 metrar að lengd og aðal­fæða þeirra er smokk­fiskur. Skugga­nefja er yfir­leitt ein á ferð eða í litlum hópum. Þær eru hlé­drægar og virð­ast forð­ast báta. Árið 2008 sagði í frétt á vef Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar, í til­efni af því að skugga­nefju hafði rekið að Hval­eyr­ar­holti sunnan Hafn­ar­fjarðar, að hún væri sú sjö­unda af sinni teg­und sem heim­ildir væru um að fund­ist hefðu í fjörum Íslands. Þar af hefðu fimm þeirra rekið á land á tólf ára tíma­bili.

Þá rak norð­snjáldra að landi skammt sunnan við Grenivík í vor. Það verður einnig að telj­ast til tíð­inda því aðeins er vitað um átta önnur til­vik hér við land síðan Haf­rann­sókna­stofnun hóf skrán­ingu hval­reka með skipu­lögðum hætti um 1980. Fyrsti stað­festi fund­ur­inn var árið 1992 við bæinn Ós í Breiðdal og síð­ast árið 2018, þegar tarf rak á land í Höfðavík í Vest­manna­eyjum. Norð­snjáldrar halda sig mest fjarri landi djúpt á hafi úti og eru auk þess mjög styggir.

Sverrir Daníel fór á vett­vang hval­rek­ans ásamt úti­bús­stjóra stofn­un­ar­innar á Akureyri, Hlyni Pét­urs­syni, og mældu þeir hval­inn og tóku sýni til nán­ari rann­sókna. Ekki var annað að sjá en að norð­snjáldr­inn væri í góðu lík­am­legu ástandi, en engar fæðu­leifar fund­ust í maga hans og ekk­ert plast heldur, sem að und­an­förnu hefur fund­ist í tölu­verðu magni í mögum hvala af svín­hvala­ætt. Dán­ar­or­sök er því ókunn.

[links]Fyrir utan grind­hval­ina sem strönd­uðu í fjör­unni á Ströndum var það gríð­ar­stór hnúfu­bakur sem rak á land á Garð­skaga sem vakti hvað mesta athygli okkar mann­anna. Þúsundir lögðu leið sína þangað til að berja hræið augum. Þetta var kven­dýr, um fimmtán metrar að lengd og lík­lega um 30 tonn að þyngd.

Hvalir líkt og önnur dýr und­ir­djúpanna virða ekki mörk sem menn­irnir draga – hvort sem þau kall­ast land­helgi eða alþjóð­leg haf­svæði. Þau haga sínum ferðum eftir hefðum og nátt­úru­legum þáttum á borð við sjáv­ar­strauma og hita­stig. Leit að æti rekur þau áfram sem og leit að maka til æxl­unar á ákveðnum árs­tíma sömu­leiðis.

Að sögn Sverris má að ein­hverju leyti lík­lega kenna til­færslu á far­leiðum hvala milli ára um breyti­leika í fjölda mis­mun­andi teg­unda við Ísland. Einnig hafa verið að finn­ast „suð­læg­ari“ teg­undir á norð­ur­slóðum, s.s. ráka­höfr­ungar, „sem mann grunar að séu þá til komnir vegna hlýn­unar sjávar und­an­farin ár“.

Ferðamenn á fáförnum stöðum

Einnig seg­ist hann hafa grunað að aukn­ing í straumi ferða­manna inn­lendra sem erlendra sem geri sér ferð niður í fjöru „um hvipp­inn og hvapp­inn“ hafi verið skýr­ing á stöðugri aukn­ingu til­kynn­inga um hval­reka síð­ustu ár. „En ef árið 2021 er á pari við 2019 er ekki hægt að nota þá skýr­ingu eina þar sem aðeins brot af fjölda ferða­manna 2021 er miðað við 2019.“

Hvalir, margir með sína risa­vöxnu skrokka, eru nauð­syn­legur hlekkur í líf­ríki sjávar og við­haldi vist­kerfa þess. Í raun má segja að hvert og eitt hvals­hræ sem sekkur til botns sé sjálf­stætt vist­kerfi. Hringrásin sem hefst með dauða hvals er nauð­syn­leg fjölda líf­vera. Í hræj­unum er mjög mikil nær­ing og fjöld­inn allur af dýrum nartar í þau, líkt og Edda Elísabet Magn­ús­dóttir, sjávar- og atferl­is­vist­fræð­ingur, sagði við Kjarnann.

Hlutverk þeirra á meðan þeir lifa er svo auð­vitað einnig stórt. Risa­stórt. Þeirra lóð vegur til að mynda þungt þegar kemur að því að binda koltví­sýr­ing sem los­aður er út í and­rúms­loftið. Úrgangur úr þeim, hvalakúkur, er nær­ing fyrir plöntu­svif sem aftur hefur gíf­ur­leg áhrif á lofts­lagið því talið er að það bindi allt að 40 pró­sent alls koltví­sýr­ings í and­rúms­loft­inu – um fjórum sinnum meira en Amazon-frum­skóg­ur­inn. Hvalir hafa því verið kall­aðir líf­rænir kolefn­is­fang­arar og sá þáttur þeirra í hinni mik­il­vægu hringrás nátt­úr­unnar hefur verið að koma æ betur í ljós síð­ustu ár.

Leiða má hins vegar líkum að því, líkt og fjallað var um í ítar­legri frétta­skýr­ingu BBC á þessu ári, að á þeim þús­und árum sem þeir hafa verið veiddir hafi margir stofnar minnkað um 66-90 pró­sent. Það hefur lík­lega breytt miklu í líf­ríki sjávar og jarð­ar­innar allrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár